Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 15

Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 15
(Bernhöfstbakarí núna) og niður Spítalastíg, hann með sína löngutöng í lykkjunni en ég með alla hendina. Við gengum alltaf niður að Tjörn. Stundum hittum við endurnar og stundum séra Bjarna og stundum bæði endurnar og séra Bjarna. Svo heim aftur. Hver göngutúr tók nákvæmlega 45 mínútur. Stundvísi Jónasar í Brennu var annáluð (eins og lesa má m. a. í Árbókum Reykjavíkur eftir Jón biskup Helgason), og nutu nágrannar hans góðs af henni þegar austanvindar blésu öllum slögum Dómkirkjuklukkunnar yfir Vesturbæ- inn. E>á stilltu þeir úr sín og klukkur eftir því hvenær Jónas í Brennu fór framhjá gluggunum hjá þeim á leið til vinnu sinnar á morgnana. Hann var mjög grandvar maður og áreiðanleg- ur, þögull að jafnaði en stóð við allt sem hann sagði. Á gamlársdagsmorg- un árið 1936 sagði hann við mig: „Eg fer í dag klukkan tvö.“ Hann hafði misst konu sína, ömmu mína Guðríði Jónsdóttur, tveim árum áður eftir rúmlega hálfrar aldar hljóðláta sam- búð og var nú orðinn áttatíu og fjögurra ára gamall og lá veikur í rúminu. Ég var þrettán ára og sat hjá honum og var að lesa Námur Saló- mons eftir Rider Haggard. Ég lokaði bókinni og fór að finna börnin hans tvö, móður mína Ragnheiði og Helga frænda, og skilaði þessu til þeirra. Og á slaginu tvö þennan gamlársdag dó Jónas í Brennu. Næstu árin var oft þannig ástatt fyrir mér að ég óskaði þess að hann væri kominn til að bjóða mér í snæriskrók. Ég er reyndar enn ekki hættur að lenda í vandræðum af því tagi.) Vilhjálmur frá Skáholti sneri sér að félaga sínum og sagði: „Þetta er dóttursonur Jónas- ar í Brennu.“ En sá góði maður sannaði nú það sem mig hafði grunað að hann var ekki eins mikið skáld og Vilhjálmur. Hann sagði: „Ég er farinn.“ „Farinn?“ sagði Vilhjálmur. „Erég ekki að enda við að segja þér að þetta er dóttursonur Jónasar í Brennu?“ »Jú,“ sagði félagi hans. „Ég er samt farinn. Ég mundi vera farinn þó hann væri dóttursonur Jónasar frá Hriflu.“ Skáldið frá Skáholti fórnaði hönd- um til himins og hrópaði í örvæntingu: „Af hverju eru það alltaf vitlausustu mennirnir sem eiga brennivínið?“ Svo hélt hann á eftir félaga sínum. Stórkaupmenn, - var þeim nú nokk- uð að vanbúnaði lengur að halda áfram kappgöngunni? Já. Það kom maður austan hafnarbakkann. Hann hélt á fjórum fuglum, tveimur í hvorri hendi. „Hvaða dauðu fuglar eru þetta?“ spurðu stórkaupmenn. „Skarfar," sagði maðurinn og stanz- aði. Hann var hár vexti og þrekinn og hafði ekki getað útvegað sér nógu stóra peysu því að ermarnar á henni náðu aðeins með naumindum niður á miðjan framhandlegg, berhentur eins- og ekkert væri sjálfsagðara í öllu þessu frosti, með sígarettu í munnin- um og sogaði allan reykinn oní sig án þess nokkuð kæmi upp aftur, - einn þessara hraustu manna sem aldrei fá nógu sterkt tóbak. „Hvar skauztu þá?“ spurðu stór- kaupmenn. „Kringum Engey,“ sagði maðurinn. „Varstu lengi?“ spurðu stórkaup- menn. „Síðan átta í morgun,“ sagði hann. „Á hvað selurðu þá?“ spurðu þeir. „Sjö krónur stykkið,“ sagði hann. „Það er lítið kaup fyrir heilan dag,“ sögðu þeir. „Það er betra en ekkert í atvinnu- leysi,“ sagði hann. „Hvernig eru þeir étnir?“ spurðu stórkaupmenn. „Eins og aðrir fuglar,“ sagði maður- inn. „Maður brúkar tennurnar." Stórkaupmenn fóru að hlæja. Þeir voru stórkaupmenn með kímnigáfu. „Er ekki erfitt að hamfletta þá?“ spurðu þeir. „Getur það ekki verið problem? Getur ekki verið problem að hamfletta þá?“ „Nei,“ sagði maðurinn. „Það er ekki neitt erfitt að hamfletta skarfa frekar en aðra fugla, ef maður kann réttu tökin.“ Svo kvaddi hann og fór. Og stórkaupmenn (sem reyndar höfðu staðið í viðbragðsstöðu á meðan þeir töluðu við manninn) héldu áfram göngunni. Ég heyrði það síðast til þeirra að þeir voru að velta því fyrir sér hvort skarfar mundu vera betri steiktir eða soðnir. Og ég hélt áfram að horfa á hljóm- borð hafnarinnar og hlusta á Debussy. ♦ Hann var mjög grandvar maður og áreiðanlegur, þögull að jafnaði og stóð við allt sem hann sagði. Á gamlársdagsmorgun árið 1936 sagði hann við mig: ,,Ég fer í dag klukkan tvö.“ 15

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.