Samvinnan - 01.08.1984, Síða 23
Valur Amþórsson ræðir við tvo fundarmenn.
Gunnar Sveinsson, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Suðurnesja í hópi nokkurra
lundarmanna.
Landbúnaðarmál:
Stefnan mi&ist við
a& fullnægja þörfum
innanlandsmarka ffar
Landbúnaðarmál. voru að þessu
sinni sérmál aðalfundarins, og
yoru þar þrír framsögumenn,
Þau Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
ondi á Öngulstöðum í Eyjafirði,
^nstín H. Tryggvadóttir, kennari í
arðabæ, og Magnús G. Friðgeirsson
rkvstj. Búvörudeildar Sambandsins.
au héldu öll ýtarlegar framsöguræð-
Ur> og í framhaldi af þeim urðu miklar
amræður um þessi mál, bæði á fundin-
um sjálfum og í sex umræðuhópum
sem störfuðu að kvöldi fyrri fundar-
dagsins. Síðan skiluðu umræðuhóp-
arnir álitum sínum, og að því loknu
urðu enn talsverðar umræður á fund-
inum. Að þeim loknum samþykkti
fundurinn einróma eftirfarandi álykt-
un um landbúnaðarmálin:
„Aðalfundur Sambands íslenskra
samvinnufélaga, haldinn á Bifröst 13.-
14. júní 1984, telur að stefna í fram-
leiðslumálum landbúnaðarins skuli
miðast fyrst og gremst við að fullnægja
þörfum innlends markaðar.
Lögð skal áhersla á að koma til
móts við óskir neytenda um vörugæði
og vöruval, og efla samráð og samstarf
neytenda og framleiðenda í vinnslu-
og sölufyrirtækjum samvinnumanna.
Niðurgreiðslur á landbúnaðarvör-
um verði ekki lækkaðar, því að þær
örva sölu og létta kaup heimilanna á
þessum vörum.
Fundurinn telur að í meginatriðum
eigi að stunda búvöruframleiðsluna á
fjölskyldubúum af þeirri stærð sem
staðið getur undir fjárfestingu með
nútímatækni og húsakosti, og skilað
fjölskyldulaunum sambærilegum við
það sem aðrir atvinnuvegir gefa.
Fundurinn telur að aðlögun búvöru-
framleiðslunnar að innlendri
markaðsþörf þurfi að gerast skipulega
og í áföngum. Samhliða þeirri aðlögun
verði stórátak gert í eflingu atvinnu-
lífs, svo að ekki komi til frekari
röskunar í byggð landsins.
Fundurinn bendir á að viðhald
byggðar og atvinnuþróun í strjálbýli á
ekki að vera hlutverk bændastéttar-
innar einnar.
Gera þarf þjóðarátak til að hindra
mikla byggðaröskun og tryggja að
auðlindir landsins verði nýttar til at-
vinnusköpunar.“
23