Samvinnan - 01.08.1984, Side 38
Vorið sem hann fór
Mér fannst ég aftur
orðin barn í sumarleyfi
og vænti hálft í hvoru,
að mamma kallaði á
mig í hrygg og grænar
baunir við undirleik
útvarpsmessunnar.
38
Sumar nætur gat ég ekki sofið. -
Það er í sjálfu sér ekki óalgengt
á vorin að ég eigi erfitt með svefn
þegar daginn tekur að lengja, meðan
ég er enn að venjast birtunni og
fisbláu húminu. Þá ligg ég venjulega
kyrr undir sænginni og læt sem ég sofi,
anda hægt og reglulega til að blekkja
sjálfa mig. Þetta vor þegar hann fór
dugðu ekki gömul ráð. Ég sofnaði
ekki heldur greip mig skelfing,
hræðsla við að deyja, ótti við að lokast
inni í sjálfri mér og ná ekki sambandi
við umheiminn eða við að missa vitið.
Ég æddi friðlaus um herbergin og
þarfnaðist einhvers, vissi þó ekki hvað
það var. Ég greip bók en gat ekki lesið
orðin sem í henni stóðu. Ég setti plötu
á fóninn en engin tónlist var við hæfi
og ég skipti um plötur í sífellu, eftir
hálft lag, eftir fáeina tóna, þar til ég
gafst upp. Ég fékk mér að borða en
maturinn var bragðlaus og ég hafði
enga lyst á honum. Ég skenkti mér í
glas en vínið slökkti engan þorsta.
Sumar nætur sat ég og lagði kapal,
stokka, leggja, fletta, endalaust og
skipti engu hvort þrautin gekk upp
eða ekki. Stundum reikaði ég niður í
fjöru, sat þar hrollköld á steini og
horfði á óþreytandi öldurnar hverfa
inn til landsins og út aftur einsog
ekkert skipti máli í heiminum annað
en hafið. Nokkrar nætur gekk ég um
götu borgarinnar, mannauðar og
framandlegar og þótti ég vera í
ókunnu landi, hitti yfirleitt engan og
hélt heim þegarfuglarnirvoru byrjaðir
að syngja í görðum.
Vorið sem hann fór sat ég tímun-
um saman og gældi við heimil-
isköttinn, gulbröndótt, stælt
fress, sem hafði setið við völd í
íbúðinni frá því hann flutti til okkar
lítill hnoðri, bústinn og uppátækja-
samur og heillandi í þokkafullri sjálfs-
vitund. Ég faðmaði dýrið að mér,
klóraði því undir hökunni og strauk
því hátt og Iágt, bar það jafnvel með
mér inn að sofa í rúminu mínu, sem
þó hafði tekið margar vikur að venja
það af sem kettling. Á endanum fékk
kisi nóg af þessum óhóflegu ástaratlot-
um og strauk að heiman. Hann hvarf
í marga daga og nætur, hafði aldrei
verið svo lengi í burtu áður og ég var
byrjuð að halda að hann hefði orðið
fyrir bíl. Ég leitaði allstaðar sem mér
kom til hugar, æddi um hverfið,
gægðist inn í garða og kallaði „kisi
minn, kiss, kiss“ í hverju skúmaskoti.
Einn daginn sá ég bregða fyrir ketti
sem svipaði til hans í Hljómskálagarð-
inum, stökk úr strætó á næstu stöð og
leitaði þar langt fram á nótt. Mér leið
einsog aula. - Auðvitað kom hann svo
heim af sjálfsdáðum, magur, rifinn og
ánægður með sig eftir breimastand og
vafasöm ástarævintýri. Ég var með
kökk í hálsinum meðan ég sauð handa
honum fisk og grét niður í stríðan
feldinn meðan hann lapti mjólkina
sína af mikilli græðgi. Eftir máltíðina
teygði hann nautnalega úr sér, þvoði
sér hátt og lágt og gekk til stofu
strokinn og hreinn einsog ekkert hefði
í skorist. Ég sat og horfði á hann sofa
í stólnum sem hann hafði eignað sér
kettlingur. Daginn eftir lét ég lóga
honum.
Þetta vor hitti ég mann með djúp
og dökk augu sem ég sökkti mér
lengi í. Við áttum saman helgi,
yndislega óraunverulega einsog væri
hún klippt úr rykfallinni ástarsögu
sem allir hafa löngu gleymt. Það var
brakandi ferskur útiilmur af sængur-
fötunum í breiðu rúminu þar sem við
lágum saman, átum brauð og ost og
drukkum hvítvín, hlógum, elskuð-
umst og hvísluðumst á einsog einhver
kynni að heyra til okkar annars. Ég
hélt að ég væri ástfangin. Síðdegis á
sunnudegi spiluðum við gamlar bítla-
plötur, drukkum koníak með kaffinu
og hann sagði mér að hann væri giftur.
Meðan ég steikti lærissneiðar og bjó
til hrásalat mundi ég að dökk augu
höfðu ævinlega minnt mig á hunda og
nautgripi.
Það vor, vorið sem hann fór, stóð
ég ráðþrota gagnvart tímanum.
Hvert var hann floginn, hvað
hafði orðið af öllum þeim vikum,
öllum mánuðunum sem mjökuðust
lúshægt áfram meðan þeir báru heitið
á dagatalinu? Hvað var orðið af árun-
um fimm, sem ég hafði verið hluti af
heildinni „við“? Ég botnaði ekki neitt
í neinu. Jafnvel hversdagstíminn leið
ekki einsog hann átti vanda til, skipu-
lega og í réttri röð, sekúndur, mínút-