Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Qupperneq 11

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Qupperneq 11
11 aði fjárverðið við það að stórum mun, og dró það úr útflutningnum. Þetta kom mjög hart niður á kaupfjelög- unum, því flest þeirra höfðu byggt verzlun sína að miklu leyti á sauðfjár útflutningi. Samtímis harðnar samkeppnin mjög af hendi kaupmanna, sem fyrst í stað virtist veita þessum fjelagsskap litla eptirtekt. En þrátt fyrir þetta hafa mörg af þeim fjelögum, sem stofnuð voru fyrir 1890, lifað og þrifizt fram á þennan dag, og ný fjelög risið upp í stað þeirra, sem hætt hafa að starfa. Eru fjelögin nú 13 eða 14, skipulag þeirra fastara og örugg- ara en áður var, og flest, eða máske öll, hafa þau safnað nokkru starfsfje, sum all-álitlegum upphæðum. þau munu og flest, eða öll, hafa losað sig við skuldir við umboðs- menn í útlöndum, og eru því ekki bundin þeim fjötr- um lengur. þetta er í stuttu máli saga kaupfjelaganna hjer á landi síðustu 25 árin. Sýnir hún, að minni hyggju, Ijóslega, að þessi hreyfing er ekki í apturför eða með dauða- mörkum, heldur þvert á móti. Þessi aldar-fjórðungur hefur verið bernsku og lærdómsárin; nú tekur við starfsskeiðið. Hið gagnstæða væri bæði óeðlilegt og hörmulegt, því fram að síðustu aldamótum voru kaup- fjelögin hin eina tilraun til samvinnufjelagsskapar hjer á landi. Auðvitað er skipulagi fjelaganna á ýmsan hátt ábótavant, og aðstaða þeirra örðug, en tilfinnanlegast hefur þó verið, að engin teljandi samvinna eða samband hefur verið milli þeirra, og að þau hafa ekkert málgagn haft. Dagblöð vor hafa flest verið nær því lokuð fyrir ritgjörðum uni kaupfjelagsmál, og tímaritin hafa haft önnur viðfangsefni. Við þetta má eigi una. Veruleg efl- ing og framför kaupfjelaganna er undir því komin, að þau vinni saman. í sambandi og samvinnu geta þau verið öflug til framkvæmda og örugg gegn árásum, en hvert í sínu lagi eru þau of fámenn og fátæk til þess, að geta þrifizt til lengdar og náð tilgangi sínum. En til þess, að samvinnan geti komizt á, er nauðsýn- legt að fjelögin hafi málgagn, er berjist fyrir málefnum

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.