Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Side 12
12
og hugsjónum kaupfjelagsskaparins og tengi alla kaup-
fjelagsmenn sarnan, bæði til sóknar og varnar.
F*að var þetta, sem vakti fyrir kaupfjelögunum í F’ing-
eyjarsýslu, þegar þau, fyrir nokkrum árum gjörðu sam-
band sín á milli. F’að sambandsfjelag hefur að vísu ekki
afkastað miklu ennþá, en haldið hefur það fundi árlega,
og með því aukið kunnugleika og samhug milli fjelag-
anna, samræmt skipulag þeirra að miklu leyti, og brotið
upp á sameiginlegum framkvæmdum, þó í smáum stýl
hafi verið, og nú hefur þetta sambandsfjelag afráðið að
gefa út tímarit fyrir kaupfjelög og önnur samvinnufje-
lög hjer á landi. Hvort þetta verður annað en tilraun
ein eða byrjun, veltur auðvitað á undirtektunum, á því,
hvort önnur kaupfjelög og kaupfjelagsmenn víðsvegar
um land vilja styðja að útbreiðslu ritsins og senda því
riígjörðir, og önnur samvinnufjelög taka í sama strenginn.
Tilgangur ritsins, sem með þessu Iitla hepti byrjar
starf sitt, er, eins og áður er sagt, að ryðja samvinnu-
hugmyndum braut hjer á landi, og efla og styrkja þann
vísir til samvinnufjelagsskapar, sem nú er til. Auk hug-
leiðinga um viðfangsefnið sjálft, mun það því flytja
skýrslur um starfsemi og fyrirkomulag kaupfjelaga og
annara samvinnufjelaga, og væntum vjer, sem gengizt
höfum fyrir stofnun ritsins, að öll fjelög á landinu telji
sjer skylt að senda því skýrslur um þetta. Ennfremur
er ætlazt til að ritið flytji skýrslur og fræðandi ritgjörðir
um samvinnufjelög í öðrum löndum, þvf þar verðum
vjer að fá fyrirmyndir, og þaðan hljótum vjer að fá
hinar sterkustu hvatir til að starfa ótrauðir.
Pá mun og ritið telja sjer skylt, að vera á verði gegn
hverskonar árásum á kaupfjelög og önnur samvinnufje-
'ög, og að leiðrjetta fjarstæður og ranghermi um þau,
er stundum birtast í blöðum vorum og tímaritum, en
aðal-markið á að vera, að tengja saman hugi og krapta
allra þeirra íslendinga, er vinna vilja að samvinnufjelags-
skap hjer á landi, allra þeirra, er trúa því og treysta, að
á þeim grundvelli verði auðveldast og öruggast reist