Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Síða 13
13
hin glæsilega höll efnalegra framfara og sjálfstæðis, er
vjer allir viljum reisa, á voru kæra föðurlandi.
Fyrst um sinn, að minnsta kosti, kostar Sambandskaup-
fjelag Pingeyinga tímaritið, og ber ábyrgð á útgáfu þess.
Verður það því að líkindum framan af mest fyrir kaup-
fjelögin, en eins og áður er sagt, og nafnið bendir til,
er því ætlað engu síður að starfa fyrir rjómabú og
önnur samvinnufjelög, sem stofnuð kunna að verða. Pað
eru einmitt rjómabúin, sem beztar vonir gefa um fram-
tíð samvinnufjelaga hjer á landi. Allir eru sammála um,
hve afar-mikið gagn þau hafa unnið landbúnaðinum á
Suðurlandi, og hve sterk uppörfun þau hafa verið fyrir
bændur þar, til framtakssemi og dugnaðar. Pað hefur
gengið svo fljótt og vel og sljett, að koma þeim á fót,
enda hafa allir, landstjórn, þing og einstaklingar, lagzt
þar á eitt. Er það ekki bending til vor um, að í öðrum
greinum muni geta gengið eins vel, og árangurinn orðið
eins glæsilegur, ef áhuginn er jafn-ríkur, og allir eins
samhentir?
Jeg tel þarflaust að gera nánari grein fyrir stefnu rits
þessa. Nafn þess nægir til að benda á aðal-drættina, og
sjálft verður það smám saman að skýra hana nánar. Jeg
efast ekki um, að mjög margir verði stofnendunum sam-
mála um, að hlutverk þess sje gagnlegt og göfugt, en
reynslan ein getur skorið úr, hvernig tekst að leysa það
af höndum. En það eitt er víst, að til þess að það verði
vel gjört, þarf aðstoð og styrk margra góðra drengja, og
treysti eg því að þeir finnist, og leggi fram krapta sína.
Húsavík, í Des. 1906.
Steingrímur Jónsson.