Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Qupperneq 18
18
anna á víxl, og hefur það einnig orðið til fróðleiksauka
og meiri viðkynningar.
Talsvert hefur verið unnið að því, samkvæmt tiigangi
fjelagsins, að koma á samræmi í skipulagi og framkvæmd-
um sambandsdeildanna, og hefur þar sumt náð fram að
ganga, þó þar sje enn talsvert verkefni fyrir höndum.
Fyrir íhugun og reynslu er mönnum að verða það
nokkuð ljósara, en í fyrstu, að hver einstaklingur og
fjelagsdeild verður að fullnægja til teknum aðalskilyrð-
um, svo að samvinna geti átt sjer stað, fjelagsskapurinn
standi á traustum grundvelli og verðskuldi tiltrú og álit
út á við.
Af verklegum framkvæmdum er það helzt að telja,
að fjelagið hefur, við og við, sent mann til útlanda, á
sameiginlegan kostnað, til þess að reka þar sameiginleg
eða sjerstök erindi fyrir fjelagsdeildirnar, og kynna sjer
ýmislegt, er hafði þýðingu fyrir fjelögin. Einnig hafa
stundum menn verið sendir til þess, að hafa gætur á
útflutningsfje deildanna.
Á dagskrá fjelagsins hafa ýms samvinnufyrirtæki staðið,
sem enn hafa eigi framgang fengið, svo sém: um sjerstakan
skipsfarm af rúg, beint frá rúglöndunum, um sameinaða
pöntun á timbri, salti, kolum og fleiru. Pá hefur og
talsvert verið um það rætt, að fjelögin hefðu sameigin-
legan erindreka fyrir sig í útlöndum, einkum á Norður-
löndum, er þau veldu sjer sjálf og launuðu að öllu
leyti. F’ó ekkert af þessu hafi enn til framkvæmda kornið,
þá hefur hjer samt ýmislegt verið undir búið. Þessi sam-
vinnumál eru því eigi upp á hyllu lögð, heldur verður
þeim væntanlega haldið fram, að því leyti sem þau verða
framvegis talin nauðsýnleg og líkleg til framgangs.
Á síðasta aðalfundi fjelagsins var samþykkt að sam-
bandsfjelagið kæmi á fót »tímariti um kaupfjelagsmál-
efni, er jafnframt sje málgagn fyrir hvers konar sam-
vinnufjelagsskap«. Hjer er verklegt viðfangsefni fyrir fje-
lagið, hversu sem um það fer í framkvæmdinni.
1 síðast liðnum Ágústmánuði hjelt sambaridsfjelagið