Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Qupperneq 19

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Qupperneq 19
19 aukafund á Akureyri. Voru þar mættir kjörnir fulltrúar frá nokkrum fjelögum utan sambandsins, eður frá Kaup- fjelagi Skagfirðinga, Kaupfjelagi Eyfirðinga, Pöntunarfje- lagi Fljótsdalshjeraðs og Kaupfjelagi Breiðdæla. Komu fram fullar líkur fyrir því á fundinum, að þessi fjelög muni óska þess að fá inngöngu í sambandið og geta fengið hana á næsta aðalfundi fjelagsins. Verði þessi ráðagjörð framkvæmd, stækkar sambandið- mjög mikið og ætti því þá jafnframt að vaxa ásmegin, til að kljúfa strauminn, ef vel er á öllu haldið. Ársumsetning þessara kaupfjelaga, sem nú ætla að ganga í sambandið, var árið 1905 um 450 þús. kr. í útlendum vörum. Pað er því auðsætt, að sambandsfjelagið getur, framvegis, varið talsverðu fje til sameiginlegra þarfa og tilrauna, án þess að tillagið frá hverri fjelagsdeild verði sjerlega tilfinnan- legt, einkum ef það tækist jafnhliða, með samvinnunni, að spara einhver útgjöld, sem nú hvíla á hverju sjer- stöku fjelagi. Auðvitað verður stjórn og samvinna ervið- ari, þegar hringurinn stækkar, en hjer koma bættar sam- göngur og talsíminn sem hjálparmeðul, sem sjálfgefið er að hagnyta sjer, ef málefnið er á annað borð þess vert, að til þess sje varið vinnu og fje. * * * Hjer að framan hefur nú stuttlega verið minnst á til- drögin að stofnun Sambandskaupfjelags Pingeyinga, og nokkuð vikið að þýðingu og starfsemi þessa fjelags. Sýnist það þá eiga vel við að Iáta lög fjelagsins koma á eptir fyrir almenningssýn. Lögin eru víst lítið kunn í sambandsdeildum fjelagsins sjálfs, og því síður í fjelög- um utan sambandsins. Ef ný fjelög ganga í sambandið, þarf að endurskoða lögin og líklega breyta þeim eitthvað. Er þá gott að sem flestir hafi haft auðveldan aðgang að því að kynna sjer Iögin og íhuga sem bezt væntanlegar breyt- ingar.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.