Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Side 21
21
Aukafundi má og halda, þegar framkvæmdarstjóra þykir
nauðsýn á. Á aðalfundi kýs fulltrúaráðið einn mann úr
sínum flokki, er sje framkvæmdarstjóri sambandsins og
annan til vara, er íaki við störfum hins, ef forföll hindra
hann. Framkvæmdarstjóri kveður til sambandsfunda.
6. grein.
Fulltrúafundir hafa fjárráð Sambandskaupfjelagsins og
ráða öllum ráðum þess og framkvæmdum. Peir geta
falið framkvæmdarstjóra það af valdi sínu, sem nauðsýn
þykir til bera, með sjerstökum fundarályktunum; þeir á-
kveða og að öðru leyti störf hans árlega. Á aðalfundi
skulu fram lagðir reikningar sambandsfjelagsins fyrir
næst liðið almanaksár, til athugunar og samþykkis. F*ar
skal og leggja fram skýrslu um vöruumsetning hverrar
deildar, næsta ár á undan. Loks skal fulltrúaráðið á aðal-
fundi gjöra fjárhagsáætlun fyrir sambandsfjelagið fyrir
yfir standandi almanaksár, og er hún skuldbindandi fyrir
hverja deild í fjelaginu, þó því að eins, að útgjöld fari
eigi fram úr 2 % af vöruumsetning hverrar deildar, næsta
ár á undan.
7. grein.
Allar ályktanir fulltrúaráðsins á fundum þess, ef þær
snerta verzlunarframkvæmdir sambandsins, eru bindandi
fyrir það í heild sinni, enda fari framkvæmdir þær eigi
fyrir verksvið sambandsfjelagsins, nje heldur komi í
t>ága við lög sambandsdeildanna eða verksvið. Afl at-
kvæða ræður á fundum.
8. grein.
Kostnaður við fundahöld satpbandsins, þar með talinn
ferðakostnaður og dagpeningar, jafnist niður á deild-
irnar eptir fulltrúatölu jáeirra. Allur annar kostnaður, til
framkvæmdarstjóra og fjelagsþarfa eptir umsetning, sbr.
4.-6. grein, og greiðist tillagið eptir ákvæðum fulltrúa-
ráðsins.
2