Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Qupperneq 24
24
umsögn ýmsra manna, að þroski fjelagsins hljóti þegar
að hafa náð hámarkinu, hefur það komið í ljós, að um-
setning fjelagsins hefur, síðast liðið ár, aukizt um nálægt
37/io miljónir króna. Petta er, að nokkru leyti, inngöngu
nýrra fjelaga að þakka og auknum viðskiptum eldri fje-
laga, en eflaust á sívaxandi tryggð manna við fjelags-
skapinn einnig hlut að máli í þessu efni.
Pó sú tillaga liggi nú fyrir að úthluta jafnháum árs-
ágóða og í fyrra, þá hefur hreinn ágóði verið heldur
lægri 1905 en árið 1904. Jafnvel þó það sje víst, í sjálfu
sjer, að vaxandi umsetning veiti aukna hagsmuni, verð-
ur* þess þó vel að gæta, að ágóðinn getur orðið misjafn,
af því hjer kemur það á veginn, sem á verzlunarmáli er
nefnt »Konjunkturer«, verðsveiflur, sem enginn verzlunar-
maður getur haft vald yfir, en þetta getur haft mjög
mikil áhrif á árságóðann. Hjer reynir á dugnað kaup-
mannsins, því hjer veltur svo afarmikið á því, að þekkja
sem allra bezt ástand og atburði víðs vegar um heim,
til þess að geta gizkað sem rjettast á tilvonandi verð-
sveiflur og hagað kaupum eptir því. Að vísu er ekki
jafnan unnt að reikna út þessar verðsveiflur, af því af-
leiðing getur þar orsök fylgt, með svo skjótri svipan,
að ekkert ráðrúm fáist, en það mun mega telja það eina
hina sterkari hlið fjelagsins, að forstöðumenn þess hafa
verið hjer vakandi á verði. Verðsveiflurnar koniu illa við
hag margra stofnana, um liðið ár, en sambandsfjelaginu
vegnaði þar vonum framar. Þetta veitir voru málefni
traust og festu, þar sem það kemur í Ijós, að vel getur
farnazt, þó útlitið sje ískyggilegt; en víst er þetta jafn-
framt hinum harmur, sem alltaf eru á vakki og bíða
eptir hinu mikla hrapi, er þeir hafa spáð oss. Vonandi
er að þeim verði ónýt biðin, ef vjer tryggjum grund-
völlinn æ betur og betur eptir því, sem byggingin
hækkar.
Þá skýrði förmaður frá því, hvernig ýms fyrirtæki og
stofnanir hefðu borið sig, árið sem leið, sem fjelagið
hefur með höndum. Að eins eitt fyrirtækið hafði bakað