Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Síða 30
30
sjálf rneð þarf, eins og sumstaðar hefur orðið ofan á í
enskum fjelögum. Vera má að í sambandi við þetta
standi sú mikla hreyfing, sem nú er vakin fyrir því hjá
dönsku fjelögunum, að þau stofni sjerstakan banka fyrir
fjelögin, svo þau geti einnig verið sem sjálfstæðust í
öllum peningamálum.
Til skýringar er vert að geta þess, að ágóðinn af á-
góðaskyldum vörum var, í raun rjettri, meiri en það,
sem úthlutað var, 5 %, því 1 % gekk til þess að greiða
afborgun af fasteignum fjelagsins, og til ýmsra sjóð-
stofnana, sem auka sameignina, og sem hin sjerstöku
fjelög eiga hlutfallslega. Auk þessa hafði fjelögunum
verið út borgað í »Bonus« af ýmsum vörum yfir 50
þúsundir króna.
Tímaritið vill geta, innan skamms, flutt skýrslu yfir
sjóðeignir íslenzku kaupfjelaganna.
S.J.