Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Síða 31
Verðlag.
Enn sem komið er hafa tímaritinu eigi borizt neinar
skýrslur, er lúta að verzlun kaupfjelaganna. Aptur á móti
er þess að vænta, að í næsta hepti geti komið nokkuð
af hagfræðilegum skýrslum, ef formenn fjelaganna víkjast
vel við ósk sambandsfjelagsins í þeim efnum. Pað er
brýn þörf á því, að eigi sje undir höfuð lagt, að senda
ritstjórninni þess konar efni, bæði að því leyti sem beðið
er um ákveðin svör og til teknar skýrslur, og eins hvers
konar annað, er menn hyggja að til skýringar og fróð-
leiks horfi, fyrir -kaupfjelög og samvinnufjelög. Þó þess
konar efni þyki eigi öllum auðmelt nje aðgengilegt, þá
veltur þýðing ritsins eigi hvað sízt á því, að hjer sje
ekki til sparað og allt fram sett sem rjettast og ýtarleg-
ast. Tölur og skýrslur, sem ekki verða hraktar, ættu að
geta sannfært menn og komið í veg fyrir staðlausar á-
gizkanir, og þaggað niður, betur en flest annað, atvinnu-
róg og órökstuddan orðasveim. Hagskýrslur fjelaganna
e'ga að geta sýnt það, áreiðanlega, hvernig fjárhagurinn
er, eignir og skuldir; hvað ágengt verður með fjársöfn-
un> fjelagatal, m. fl. og fl.
Eitt af því, sem verður að telja fróðlegt og gagnlegt
í þessum efnum, er það, að ritið flytji, við og við, ágrip
af verðlagsskrám, einkum að því er snertir aðfluttar vör-
ur. Þessum verðlagsskrám þyrftu að fylgja nokkrar skýr-
mgar, svo sem um það, hvernig verðreikningnum er
hagað, hvenær og hvar vörurnar eru keyptar, m. fl. Það
eru talsverðar líkur til þess, að sum kaupfjelögin kaupi
ekki, eða »panti« allar þær vörutegundir, sem þó væri