Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Page 48
48
skoðun mjög svo margra fjelagsmanna. Og þegar svo
er komið, að menn fylgjast með í framsóknarmáli ýmist
af vanafestu, vináttu eða venzlasamböndum, eða þá fyrir
það þrekleysi, sem eigi vill brjóta bág við einhvern ein-
stakan mann, eða eitthvað annað; þegar menn hafa tap-
að trúnni á þýðingu málefnisins, markmiði þess, fram-
sóknarafli og grundvallarskipulagi, þá er engin furða,
þó fjelagsfylkingunni verði sein og ervið gangan upp
eptir framsóknarbrekkunni.
Jeg hef nú verið að leita eptir því, að hverju leyti
kaupfjelagsskapurinn væri talinn úrelt stofnun, og gizkað
þar á ýmislegt, sem of langt yrði upp að telja og sund-
ur að rekja, að þessu sinni. En mjer finnst líklegt, að
einhverjir af mörgum verði fúsir á að koma fram með
sínar ástæður fyrir því, hjer í tímaritinu, að telja kaup-
fjelagsskap vorn ótímabæran nú orðið. Ef það er gjört,
verður tækifæri til að ræða málið ýtarlega á báðar hlið-
ar, og það getur svo aptur stuðlað til þess, að hrinda
því í rjett horf, sem reynist að stefna í öfuga átt. Þetta,
og þvf um líkt, ætti að vera eitt af helztu hlutverkum
tímaritsins.
Tilgang kaupfjelaganna má sjá af lögum þeirra. Eins
og það hefur ekki verið sýnt fram á það enn þá, að sá
tilgangur sje rangur eða óhollur til þjóðlegra framfara,
eins víst er hitt, að fjelögin eiga nokkuð langt í land
rneð það, að ná tilganginum að fullu og öllu, þó tals-
vert hafi miðað í áttina. Meðan svo er, getur mjer ekki
skilizt, að kaupfjelögin sjeu úrelt, nje frumlagshugmyndir
þeirra ótímabærar. Hitt er annað mál, að ýmisleg fyrir-
komulagsatriði, deyfð, skortur á góðri forstöðu, og margt
fleira getur skemmt árangurinn af starfinu og tafið fyrir
þroska fjelaganna, en þetta getur hæglega komið fyrir,
þó aðalgrundvöllurinn sje góður og fjelagskjarninn heil-
brigður í sjálfu sjer. Sje hjer vissulega eitthvað bogið
eða úrelt á yfirborði fjelagsskaparins er það á valdi fje-
lagsmanna sjálfra að laga allt þesskonar í hendi sjer, þar
sem alstaðar mun vera lýðveldisskipulag í lögum fjelaganna.