Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Side 54

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Side 54
54 að fjöldi manns tekur þátt í þessum fjelagsskap, og fje- lögin eflast og útbreiðast allt af meir og meir. Til fróðleiks og uppörvunar vill tímaritið, við og við, flytja frjettir af útlendum kaupfjelögum og sambands- fjelögum. * * ♦ 1. Stærsta sjerstakt kaupfjelag í heimi er í borginni Leeds á Englandi. Arið 1Q05 var umsetning fjelagsins fullar 28 milj. kr. Hreinn ágóði varð um 1800 þús. kr. í menningarsjóð voru lagðar 14 þús. kr. í fjelaginu er lögð mikil áherzla á það að efla upplýsing og menntun fjelagsmanna. Fyrirlestrar eru haldnir og kennsla veitt í ýmsum greinum. Fjelagið á bókasöfn og lestrarsali; það gengst fyrir skemmtisamkomum, samsöng og fleiru þess konar. Tala fjelagsmanna er um 50,000. Allir viðurkenna að fjelagið hafi verið borginni til mestu heilla, þó marg- ir spáðu hinu gagnstæða, þegar fjelagið var að myndast í fyrstunni. 2. Umsetning sambandsfjelagsins á Svisslandi var, síð- ast liðið ár, fullar 9 milj. franka og er það 19% 'meira en árið 1904. 3. Ungverska sambandsfjelagið hafði 5% milj. kr. um- setning, síðast liðið ár (1905). Fjelögum í sambandinu hafði fjölgað um rúman fimtung. 4. / Svíþjóð eru mörg samvinnufjelög. Kaupfjelög eru þar um 600, og að auki mörg önnur samvinnufjelög. Það er áætlað að umsetning þessara fjelaga sje árlega um 40 milj. kr. og fjelagsmenn um 100,000. Fyrir sjö árum síðan var þar stofnað sambandsfjelag. Það var kraptlítið, fyrstu fimm árin, en hefur stækkað álitlega síðan; eru nú 140 fjelög í sambandinu og tala fjelags- manna um 27 þús. Tala enskra samvinnufjelagsmanna var, árið 1905, rúm- lega 2]/4 miljj. og hafði fjelagsmönnum fjölgað það ár um 50þús. Umsetningsambandsfjelagsins varhið nefnda ár 1719 milj. kr. og árságóðinn varð um 191 milj. kr. S.J.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.