Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Síða 55
55
IV. Kaupfjelagsafmæli.
Hinn 24. Júní 1905 hjelt kaupfjelagið »Frörup« á Fjóni
25 ára afmæli sitt í húsi fjelagsins. Allir fyrstu forstöðu-
menn fjelagsins voru mættir nema einn, sem dáinn var.
Menn skemmtu sjer á samkomunni við söng og ræðu-
höld. Efni til borðhalds fluttu menn heiman að. Aðal-
ræðumaðurinn, Fr. Voigt, hjelt ágætan fyrirlestur um
kaupfjelagshreyfinguna, allt frá kaupfjelagi hinna 28 vef-
ara í Rochdale á Englandi, til þessa tíma, þegar hreyf-
ingin er búin að festa rætur um allan hinn menntaða
heim. Ræðumaður brýndi það loks fyrir fjelagsmönnum
að hafa duglega og áhugaríka menn í fjelagsstjórninni,
og reyna að halda í þá meðan þeir stunduðu störf sín
með fullri alúð, svo fjelagið gæti notið góðs af þekking
þeirri, er þeir hafa aflað sjer.
Kaupfjelag þetta var stofnað árið 1881.
Fyrsta árið voru tekjur fjelagsins.............kr. 9,914.25
Gjöldin voru....................................» 9,476.11
Tekjuafgangur varð.............................kr. 438.14
Fjelagsmönnum var borgað út 6 °/o. Pá var skuld fjelags-
ins kr. 2500.00 í hluteignum og fyrir lántöku kr. 500.00,
samtals kr. 3,000.00.
Eptir síðasta reikningi fjelagsins, 22. Marz 1906, voru allar
árstekjur fjelagsins kr. 42,862.84. Útgjöld fjelagsins sama ár
voru kr. 38,028.07. Fjelagsmönnum var úthlutað í ágóða
12 o/o, eður kr. 4,290.72.
Arið 1899 var byggt hús handa fjelaginu, það kostaði
kr. 8,307.65. Pá var varasjóður fjelagsins orðinn kr. 2,026.88
og varði fjelagið honum upp í byggingarkostnaðinn, en tók
afborgunarlán að öðru leyti. Nú er hússkuldin kr. 2,500.00.
Kaupfjelagið á nú:
Húsið með áhöldum virt á...................kr. 9,567.65
Vöruforða með innkaupsverði................» 5,355.71
Flyt . . . kr. 14,923.36