Fréttablaðið - 27.08.2009, Síða 2
2 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
STJÓRNMÁL Gunnar Helgi Kristins-
son stjórnmálafræðingur segist
fastlega gera ráð fyrir að fram-
koma Sigmundar Ernis Rúnars-
sonar alþingismanns í ræðustól
Alþingis hafi skaðað hann. Hefur
Sigmundur Ernir viðurkennt að
hafa smakkað vín áður en hann
hélt ræðu um Icesave-málið síð-
astliðinn fimmtudag. Var hann að
koma úr golfmóti MP-banka.
„Það er engin leið að segja þó
hver langtímaáhrifin eru. Ræðst
það meira af því hvernig honum
gengur,“ segir Gunnar. Telur
hann þetta lítil áhrif geta haft á
Samfylkinguna, nema þetta verði
fjölmiðlamál í langan tíma.
Gunnar Helgi man ekki eftir
öðrum dæmum þar sem menn
hafi verið drukknir í þingstól.
Gæti það þó hafa gerst hér áður
fyrr þegar engar upptökur voru
og þingmönnum leyfð-
ist að leiðrétta
ræður sínar
eft ir á hjá
þingriturum.
„Ekki er gott
að hann hafi
neitað þessu
fyrst og hann
er í verri
málum vegna
þess,“ segir
Gunnar en
Sigmundur neitaði fyrst staðfast-
lega að hafa smakkað áfengi áður
en hann fór í ræðustól.
En á Sigmundur að
segja af sér? „Ef hann
hefur misst traust
kjósenda sinna og
Samfylkingarinnar
hlýtur sú spurning að
vakna,“ segir Gunnar
Helgi.
- vsp
Helgi, eru útkastararnir flinkir
í innköstum?
„Ekki eins flinkir og í uppköstum.“
Helgi Guðjónsson skipuleggur nú
fótboltamót ásamt öðrum starfsmönn-
um Kaffibarsins, þar sem eldri kynslóð
Kaffibarsmanna mætir þeirri yngri.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
5
2
8
RÚSSLAND, AP Rússnesk stjórnvöld
hafa beðið um aðstoð frá öðrum
ríkjum við að upplýsa hvað gerðist
þegar flutningaskipið Arctic Sea
hvarf sjónum í nokkrar vikur.
Utanríkisráðuneyti Rússlands
segir að við fyrstu leit í skip-
inu hafi ekki fundist neitt grun-
samlegt, en áður hafði Alexander
Bastrykin, yfirmaður rannsókn-
arnefndar ríkisins, sagt að hugs-
anlega hafi í farmi skipsins verið
eitthvað annað en timbur frá Finn-
landi.
Skipið fannst skammt frá Græn-
höfðaeyjum fyrr í mánuðinum,
en átta manns hafa verið ákærðir
fyrir að hafa rænt því. - gb
Farmur týnda skipsins:
Rússar biðja
um aðstoð
ARCTIC SEA Hugsanlegt að fleira en
timbur frá Finnlandi hafi verið í skipinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Stjórnmálafræðingur segir að framkoma Sigmundar Ernis hafi skaðað hann:
Ekki gott að Sigmundur neitaði
MENNTAMÁL Katrín Jakobsdótt-
ir menntamálaráðherra segir að
umsókn Menntaskólans hljóti enga
sérmeðferð við leyfisveitingu. Skoða
þarf umsóknina í heild. Gæti með-
ferð ráðuneytisins tekið um fjóra
mánuði.
Menntaráð Reykjavíkurborgar
samþykkti umsókn Menntaskólans
fyrir sitt leyti í gær. Menntamála-
ráðuneytið veitir hins vegar endan-
legt starfsleyfi. Í nýrri reglugerð,
sem ekki er búið að samþykkja af
ráðherra, er tími leyfisveitinga
áætlaður fjórir mánuðir.
„Um leið og við fáum leyfið förum
við af stað,“ segir Edda Huld Sigurð-
ardóttir, skólastjóri Menntaskól-
ans. Skólinn hefur sótt um að starfa
í gamla Heilsuverndarhúsinu við
Barónsstíg.
Hún segir að ekki þýði að æsa sig
yfir málshraða menntamálaráðu-
neytisins þar sem það myndi ekki
hjálpa. „Nú bíðum við bara auð-
mjúk eftir að ráðuneytið fjalli vel
um umsóknina,“ segir Edda.
Búið er að skrá yfir 40 börn í skól-
ann og segir Edda að foreldrarnir
muni líklega skrá þau úr skólanum
ef þetta tekur langan tíma. Spurð
hvort þetta hafi neikvæð áhrif á
trúverðugleika skólans telur hún
svo ekki vera. „Ef hlutirnir eru vel
úr garði gerðir þá er þetta í lagi,“
segir Edda. - vsp
Menntaráð Reykjavíkur samþykkti umsókn Menntaskólans í gær:
Gæti tekið fjóra mánuði í viðbót
EDDA HULD Edda segir að ekki þýði að
æsa sig yfir málshraðanum þar sem það
myndi ekki hjálpa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÍNA, AP Meirihluti allra líf-
færa, sem notuð eru til ígræðslu
í Kína, er fenginn úr líflátnum
föngum. Ríkisfjölmiðlar í Kína
skýrðu frá þessu í gær, en sjald-
gæft er að stjórnvöld þar veiti
upplýsingar um þennan þátt
heilbrigðiskerfisins, sem sætt
hefur gagnrýni árum saman.
Þetta kom fram í tengslum við
herferð, sem heilbrigðisráðu-
neyti Kína og Rauði krossinn í
Kína hófu nú í vikunni þar sem
fólk er hvatt til að gerast líffæra-
gjafar. Tilgangur herferðarinn-
ar er meðal annars sagður sá,
að líffæraígræðslur í Kína verði
ekki jafn háðar líffærum dauða-
dæmdra fanga og verið hefur.
Haft er eftir Huang Jiefu
heilbrigðisráðherra að ekki
sé sæmandi að dauðadæmdir
fangar séu notaðir með þessum
hætti. - gb
Kínversk stjórnvöld:
Líffæri úr líf-
látnum föngum
HEIMILIN Fyrir liggur að þær
aðgerðir sem þegar hefur verið
gripið til af hálfu stjórnvalda og
fjármálastofnana duga engan veg-
inn til að mæta þeim vanda sem
við blasir. Þetta kemur fram í
nýrri ályktun miðstjórnar ASÍ um
greiðsluvanda heimilanna.
„Ríkisstjórnin verður að bregð-
ast strax við og koma með raun-
hæfar og virkar aðgerðir til að
létta skulda- og greiðslubyrði
heimilanna,“ segir í ályktuninni.
Að óbreyttu mun ástandið
aðeins versna næstu mánuði, ekki
síst í ljósi þess að á sama tíma og
skuldir vaxa ört fer kaupmáttur
minnkandi, að mati miðstjórnar
ASÍ. Leggur ASÍ áherslu á að allar
leiðir til lausnar fjárhagsvanda
heimilanna verði skoðaðar. - vsp
Ályktun miðstjórnar ASÍ:
Aðgerðir stjórn-
valda duga ekki
SIGMUNDUR ERNIR
RÚNARSSON Hann
viðurkenndi í gær
að hafa smakkað
vín áður en hann
steig í pontu á
þinginu.
Ekki er gott að hann hafi
neitað þessu fyrst og
hann er í verri málum vegna
þess.
GUNNAR HELGI KRISTINSSON
STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR
VIÐSKIPTI Lýður Guðmundsson,
stjórnarformaður Existu og
fyrrum stjórnarmaður í Kaup-
þingi, segir að hann hafi ekki
vitað um lán Kaupþings til
Sjeiks Mohameds bin Khalifa
Al-Thani.
Lánið hafi ekki komið á borð
stjórnarinnar. Þetta kom fram í
viðtali við Kastljós í gærkvöldi.
Al Thani keypti 5,01 prósents
hlut í Kaupþingi í gegnum fyrir-
tækið Q Finance ehf. rétt fyrir
hrun á genginu 690 krónur á
hlut. Málið hefur verið til rann-
sóknar hjá Fjármálaeftirlitinu
að undanförnu vegna gruns um
sýndarviðskipti. - vsp
Lýður Guðmundsson:
Vissi ekki um
lán til Al-Thani
FJÁRMÁL Lýður Guðmundsson, for-
maður stjórnar Exista, segir skila-
nefndir gömlu bankanna krefjast
þess að lykilstjórnendur félagsins
taki ekki þátt í enduruppbyggingu
þess og séu þar á öndverðum meiði
við erlenda kröfuhafa.
Á aðalfundi Exista í gær voru
ársreikningar félagsins ekki lagð-
ir fram. Var það sagt vera vegna
óvissu um uppgjör gjaldeyris-
skiptasamninga við gömlu bank-
ana.
Lýður sagði gríðarlega hagsmuni
í húfi að vel tækist til með endur-
reisn Exista, bæði vegna orðspors
þjóðarinnar erlendis og hér á landi
þar sem endurgreiðslur félags-
ins til innlendra kröfuhafa gætu
numið tugum milljörðum króna.
„Þar á meðal eru fjármunir sem
munu renna til gamla Landsbank-
ans og um leið upp í Icesave-reikn-
ing þjóðarinnar,“ sagði stjórnar-
formaðurinn.
Stjórnarformaðurinn sagði alla
erlenda kröfuhafa, samtals 37
alþjóðlega banka, hafa samþykkt
áætlun um endurgreiðslu skulda
Exista á næstu árum. Það hafi
margir íslenskir kröfuhafar sömu-
leiðis gert, Málið hafi þó dregist,
aðallega vegna „tregðu“ skila-
nefnda Glitnis og Kaupþings.
„Fyrirstaðan hefur einkum
verið fólgin í kröfum um að lykil-
stjórnendur félagsins vikju til hlið-
ar af ástæðum sem ekki hafa feng-
ist skýrðar. Erlendir kröfuhafar
hafa hins vegar sett það fram sem
skilyrði fyrir framgangi samn-
inga af sinni hálfu að tryggt verði
að stjórnendateymi leiði umbreyt-
ingu félagsins,“ fullyrti Lýður sem
kvað það vanhugsað að hindra
lykilstjórnendur í uppbyggingu
félagsins.
„Þessi frétt er með ólíkind-
um eins og sjá má af því hvernig
hún er framsett,“ segir Erlend-
ur Hjaltason, forstjóri Exista, um
frétt Ríkissjónvarpsins þess efnis
að stjórnendur Existu hafi í til-
boði til kröfuhafa félagins viljað
„skammta sér“ einn milljarð króna
á ári fyrir að reka félagið.
Í frétt RÚV á mánudag sagði enn
fremur að skilanefndir bankanna
hefðu talið tilboð Exista-manna
næstum „ófyrirleitið“ og „fyrir
utan velsæmismörk“ og hafnað
því. Exista væri í reynd gjaldþrota
og ekki annað en „skel“ utan um
gríðarlegar skuldir.
Erlendur neitar því að sett hafi
verið fram slíkt tilboð til kröfu-
hafa. „Kostnaði verður haldið í
lágmarki og má gera ráð fyrir að
hann verði aðeins brot af þessari
tölu,“ svarar Erlendur aðspurður
um áðurnefndan milljarð.
Þá hafnar forstjórinn því að
Exista sé komið í þrot. „Það er
fjárflæði í félaginu og það getur
staðið undir skuldbindingum til
framtíðar.“ gar@frettabladid.is
Segir Exista borga inn
á Icesave-reikninginn
Formaður stjórnar Exista gagnrýnir „tregðu“ skilanefnda gömlu bankanna á
meðan erlendir bankir fallist á endurreisnaráætlun. Í húfi séu meðal annars
greiðslur Exista til Landsbankans og þar með í Icesave-reikning þjóðarinnar.
FORSTJÓRAR OG STJÓRNARFORMAÐUR EXISTA Erlendur Hjaltason, Lýður Guðmunds-
son og Sigurður Valtýsson eru æðstu stjórnendur Exista sem tapaði gríðarlegum
fjármunum á falli Kaupþings. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Sjálfstæðismenn telja
að í Icesave-frumvarpinu séu
ákvæði sem feli í sér skuldbinding-
ar sem hafi ekki lagastuðning. Á
þetta til dæmis við um afsal bóta-
réttar. Íslenski sjóðurinn sé rétt-
laus vegna alls skaða sem breska
ríkið kynni að valda. Þetta kemur
fram í minnihlutaáliti sjálfstæðis-
manna í fjárlaganefnd.
Telja þeir að verði frumvarpið
samþykkt kunni ágallar á evrópsk-
um lögum að leiða til skaðabóta-
réttar á hendur ESB. Jafnframt
hafi ríkisstjórnin virt að vettugi
fyrirmæli Alþingis sem voru í
þingsályktunartillögu. - vsp
Sjálfstæðismenn um Icesave:
Skuldbindingar
án lagastoðar
SPURNING DAGSINS