Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2009, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 27.08.2009, Qupperneq 25
             ! "#$% &'( )* + ,-%,.,/,-%,.,0& Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 HÁRSPANGIR eru það heitasta í dag, vilja tísku- spekúlantar meina. Ástæðan er sú að Victoria Beckham skrýðist fjölbreyttum hárspöngum þessa dagana og hún veit, jú, sínu viti um strauma og stefnur. „Ég er í kjól sem ég og mamma hönnuðum en hún saumaði. Þetta er útskriftarkjóllinn minn,“ segir Íris Hrannardóttir, sem útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands í vor og hóf fyrir stuttu nám við hönnunardeild í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. „Kjóllinn getur bæði verið ein- faldur og fínn,“ segir Íris og bætir við að þær mæðgur hafi haft það að leiðarljósi að hann nýttist oftar en við útskriftina. „Við keyptum efni sem má þvo og lítur út eins og hrá silki en er það ekki. Ég vildi gera eitthvað sem ég gæti notað aftur,“ útskýrir Íris sem þó hefur ekki notað hann oft því hún hefur eytt sumrinu í Flatey hjá ömmu sinni og afa. Íris segist hafa mikinn áhuga á tísku og að þess vegna hafi hún ákveðið að fara í hönnunarnám eftir stúdentspróf. „Mig hefur alltaf langað að læra eitthvað hönnunar- tengt. Mér líst mjög vel á þetta, það er þessa tvo tíma sem ég er búin að fara í,“ segir Íris brosandi. „Mér finnst svo gaman að sauma og búa eitthvað til.“ Tískuáhuginn birtist snemma hjá Írisi. „Ég valdi til dæmis á mig fötin sjálf frá því að ég var um tveggja ára. Ég tók tímabil þar sem ég gekk um með pils á hausnum og önnur þar sem ég var alltaf í kjól- um,“ upplýsir Íris og heldur áfram: „Mamma hætti að klæða mig þegar ég var fimm ára. Hún var hætt að þora að kaupa á mig föt nema ég veldi þau.“ Aðspurð segir Íris áhugann á tísku hafa þróast. „Núna skoða ég mikið af tískublöðum og hugsa um tísku. Ég velti því til dæmis fyrir mér hvar eitthvað byrjaði eins og hjá hvaða hönnuðum,“ segir Íris. Hvernig lýsirðu stíl þínum? „Ég myndi segja að hann væri kven- legur. Ég er mikið í peysum, kjól- um og pilsum og er eiginlega allt- af í háum hælum. Mér finnst mjög gaman að vera í lituðum sokkabux- um sem lífga upp á. Svo er ég skó- fíkill,“ fullyrðir Íris sem veit ekki nákvæmlega hversu margir skór leynast í fataskápnum. martaf@frettabladid.is Gekk með pils á haus Íris Hrannardóttir hefur lengi haft áhuga á tísku og ákvað í vor að fara að læra hönnun eftir stúdents- prófið. Um tveggja ára aldur var hún farin að velja fötin sín sjálf og í dag gengur hún í kvenlegum fötum. Írisi finnst gaman að fara í litríka sokka eða sokkabuxur til að lífga upp á. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.