Fréttablaðið - 27.08.2009, Síða 29

Fréttablaðið - 27.08.2009, Síða 29
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 3gallabuxur ● fréttablaðið ● Royce skinny Wmn Stærðir: 24-33 Þvottar: 4 litir í boði Snið: Klassískt G-star snið, niðurþröngar. Dömusnið Arc loose Tapered Wmn Stærðir: 24-33 Þvottar: einn litur í boði Snið: 3D “effect” snið, laust að ofanverðu en örlítið niðurþröngar. Dömusnið Blade pant slim Stærðir: 27-36 Þvottar: tveir litir í boði Snið: Niðurþröngar, lág íseta, þröngt snið. Herrasnið Men Jack pant. Stærðir: 28-36 Þvottar: þrír litir í boði Snið: Straight fit, milli há íseta, þrengjast aðeins niður við hné. Herrasnið KYNNING G-Star hefur náð mikilli útbreiðslu á undanförnum árum og eru nú í kringum 160 slíkar verslanir víðs vegar um heiminn. Tískuvöruframleiðandinn G- Star, sem upphaflega fékkst eingöngu við gallabuxna- framleiðslu, stendur á tíma- mótum en fyrir tækið var stofn- að í Hollandi árið 1989 og er því tuttugu ára á árinu. Í dag býður framleiðandinn upp á heild- stæða fatalínu fyrir konur jafnt sem karla. „Til að byrja með voru G- Star-vörurnar inni í öðrum verslunum en fyrir tæpum sjö árum síðan ákváðu framleiðend- urnir að opna eigin verslanir og hafa þær náð mikilli útbreiðslu,“ segir Þorvaldur Skúlason fram- kvæmdastjóri G-Star á Lauga- vegi sem var opnuð árið 2006. „Ég hugsa að það séu í kring- um 160 G-Star-verslanir um allan heim, þar á meðal í New York, London, Ósló, Stokkhólmi, Kaupmannhöfn, Tókýó og Hong Kong. Í G-Star er að sögn Þorvaldar að finna vandaðan fatnað. „Við státum af breiðu vöru úrvali og erum með tæplega 50 mismun- andi gallabuxnasnið fyrir konur og karla sem eru allt frá því að vera þröng og yfir í útvíð. Þá erum við með peysur, yfirhafn- ir, skyrtur, boli, sokka og nær- föt á dömur og herra auk þess sem við eigum von á skólínu eftir áramót.“ Þorvaldur segir nokkuð vandasamt að nefna helstu áherslur í vetur enda sé margt í gangi. „Ég bendi fólki alltaf á að velja þau föt sem klæðir það best en ef ég ætti að nefna eitt- hvað þá hefur fjólublái liturinn verið nokkuð heitur auk þess sem ljósari gallabuxur eru að koma inn. Þessar dökku standa þó ávallt fyrir sínu en G-Star ruddi einmitt brautina með svarbláar gallabuxur sem hafa átt miklum vinsældum að fagna en upp á ensku heita þær ýmist Crushed Black eða Crus- hed Blue. Þá erum við með síðar jakkapeysur á karla og Arc Loose-gallabuxur á konur sem eru lausar en samt niðurmjóar en að auki hafa beinu sniðin vera að sækja á.“ Að sögn Þorvaldar hefur óhagstætt gengi krónunnar leitt til þess að fötin hafa hækkað í verði en þó sé verðið hagstæð- ara hér heima en til að mynda í New York, Kaupmannahöfn og London. „Viðskipti við er- lenda ferðamenn hafa því auk- ist en auk þess höfum við reynt að fara skynsamlega í þetta og draga úr álagningu eins og kostur er.“ Allt frá niðurmjóu yfir í útvítt og ljósu í dökkt Þorvaldur segir margt í gangi í tískunni. Hann ráðleggur fólki umfram allt að velja gallabuxur og önnur föt sem fara því vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Gallabuxur, þessar klassísku bláu, náðu heimsvinsældum í síð- ari heimsstyrjöldinni. Árið 1942 er þeirra fyrst getið í íslenskum dag- blöðum en þann 13. ágúst það sama ár auglýsir Indriðabúð, sem þá var að Þingholtsstræti 15, gallabuxur á börn á átta krónur og fimmtíu aura. Fyrstu árin voru gallabuxur mikið keyptar á börn en á sjötta áratugnum stórjukust vinsældir þeirra hérlendis og þá fyrst og fremst meðal karlmanna. Þó feng- ust einnig gallabuxur á konur og til að mynda auglýsti Varðan á Laugavegi gallabuxur á konur til sölu árið 1956 og gallabuxur „með smekk“ á stelpur en smekkbuxur úr gallaefni nutu mikilla vinsælda á þessum árum. - jma Gallabuxur náðu fyrst vinsældum sem barnafatnaður á Íslandi. Náðu vinsældum í seinna stríði LJ Ó SM YN D A SA FN R EY KJ AV ÍK U R/ 36 5

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.