Fréttablaðið - 27.08.2009, Page 32

Fréttablaðið - 27.08.2009, Page 32
 27. ÁGÚST 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● jazz Norski trompetleikarinn Arve Henriksen leikur meginhlut- verk í elektrónískum djassi samtímans og hefur fengið frá- bæra dóma fyrir plötur sínar. Hann spilar ásamt elektróníkn- um Jan Bang og söngkonunni Anna Maria Friman á Nasa næsta laugardagskvöld. Arve sagði blaðamanni frá því sem veitir honum innblástur. „Það er langt síðan ég hóf leitina að nýjum hljóðum og japönsk tónlist heillaði mig. Shakuhachi-bambus- flautan fannst mér hljóma æðis- lega. Mér datt í hug hvort ég gæti umbreytt trompetinu og hljóðum þess í eitthvað annað. Ég hlusta líka á mikið af þjóðlaga tónlist frá öllum heimshornum, raddavinnu og fleira, þannig að það er ekki bara japönsk tónlist sem veitir mér innblástur, heldur alls konar hljóð að ógleymdri norskri þjóð- lagatónlist.“ Hverju blæs djass fólki í brjóst á annan hátt en aðrar tónlistar- stefnur? „Kjarninn í djassi er þetta að spinna og það sem kemur af hvatvísi meðan maður spilar, það er mikið pláss fyrir þinn eigin stíl, þínar eigin hugmyndir og að- ferðir við að gera tónlist. Í klass- ískri tónlist er nær allt skrifað og fullsamið. Ég held að vegna þess að djasslistamenn lita tónlistina eigin litum hreyfi hún öðruvísi við þeim.“ Arve hefur áður spilað hér á landi ásamt Hilmari Jenssyni og Terje Isungset. „Ég ætla mér að vera í Reykjavík í nokkra daga eftir tónleikana og vonandi getum við heimsótt nokkra staði í kring- um borgina. Eftir það fer ég á tónleikaferðalag með Christian Wallumrød, norskum píanó leikara. Í október er ég svo að fara á túr um Asíu. Vonandi get ég unnið meira með Hilmari Jenssyni og Skúla Sverrissyni í framtíðinni. Þeir gerðu plötu fyrir nokkrum árum sem ég hlustaði mjög mikið á og það væri frábært að vinna með þeim. Svo hefur Sunna Gunnlaugs- dóttir verið í sambandi við mig og vill vinna með mér. Það er svo mikið af góðri tónlist sem kemur frá Íslandi, ég er forvitinn að sjá hvernig tónlistin, landslagið og fólkið tengist. Allir þekkja Björk og Sigur Rós, frábæra listamenn sem hafa verið mér innblástur í mörg ár. Í gamla daga var það Mezzoforte sem var okkur algjör innspýting þegar við vorum 16, 17 ára. Þannig að koma mín til Ís- lands á sér langan aðdraganda og ég hlakka mikið til að koma.“ Jóel Pálsson, Narodna Muzika og Jagúar taka við af Arve og fé- lögum á Nasa og er viðburðurinn því nokkuð sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. - kbs Fékk innblástur frá Björk, Sigur Rós og Mezzoforte Arve Henriksen leitar að innblæstri og samstarfsaðilum á Reykjavík Jazzhátíð. MYND/JOHANNA L DIEHL Tólf nemendur sem stunda nám í hljóðtækni við Tækniskólann hafa tekið upp alla tónleika Jazzhátíðar. „Við hjá Tækniskólanum og Sýr- landi vorum fengin til að taka upp alla Jazzhátíð, eins og hún leggur sig,“ segir Ívar Baldvin Júlíusson, nemandi í hljóðtækni. „Þetta nýt- ist sem verkefni fyrir okkur í nám- inu.“ Ívar segir að einn til tveir nem- endur hafi verið sendir á hverja tónleika. „Við skipuleggjum okkur vel, förum út með græjur, tökum upp og hljóðblöndum svo og gerum hæft til útgáfu,“ útskýrir Ívar. Aðspurður segir Ívar upptök- urnar hafa gengið mjög vel. „Ein- hver smá vandamál hafa verið inni á milli en ekkert sem ekki er hægt að laga. Við lærum af reynsl- unni,“ segir Ívar og heldur áfram: „Þetta er eldskírn og þær upptök- ur sem ég hef heyrt hafa hljómað mjög vel.“ Ívar segir hópinn aldrei hafa tekið upp jafn viðamikið verkefni þó fyrr í sumar hafi þau unnið við tónleikaröð í Skálholti. „Það var ekki nærri jafn stórt og þetta. Jazzhátíð stendur í tuttugu daga með tvennum til þrennum tónleik- um á dag og á Menningarnótt voru 10 tónleikar sama daginn.“ Sveinn Kjartansson, yfirmað- ur tæknimála hjá Sýrlandi, segir vinnu við Jazzhátíð frábæra reynslu fyrir nemendurna. „Þó er ekki alveg ljóst hvað gert verð- ur við upptökurnar en þær verða varðveittar.“ -mmf Öll hátíðin tekin upp Ívar Baldvin segir að verkefnið sé sem eldskírn. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Djass í Norræna húsinu „Þetta eru útgáfutónleikar í til- efni útkomu plötunnar Mæri,“ segir Árni Heiðar Karlsson píanó- leikari um tónleika sem hann heldur á morgun klukkan átta í Norræna húsinu. „Með mér spila Matthías Hemstock trommuleik- ari og Gunnar Hrafnsson bassa- leikari.“ Árni Heiðar segir lögin öll frumsamin. „Á diskinum eru átta lög sem öll eru samin á síðustu tveimur árum,“ segir Árni Heið- ar sem kynnir plötuna á tónleik- unum. „Ég segi frá tilurð laganna og spila tónleikaútgáfur af þeim. Það er allt öðruvísi að heyra þau á tónleikunum því við „impróvi- serum“ mikið þegar við spilum saman.“ Á tónleikunum mun einnig koma fram austurríska tríóið hdv sem er á tónleikaferðalagi um heiminn. Hin alþjóðlega djass- keppni „Nýja kynslóðin 06“, sem þeir unnu, kom þeim á alþjóða- kortið. - mmf Árni Heiðar kemur fram á tónleikum í Norræna húsinu á morgun. ? KL 20 - ARVE HENRIKSEN, JAN BANG OG ANNA MARIA FRIMAN KL 22 - JÓEL PÁLSSON - VARP NARODNA MUZIKA - BALKAN PARTY, JAGÚAR - TAUMLAUST STU NASA Laugardag 29. agúst / Húsi opnar kl 19.30 Forsala hafin á midi.is 2500 kr fyrir allan pakkann - 1500 kr frá kl. 22 reykjavikjazz.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.