Fréttablaðið - 27.08.2009, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 5gallabuxur ● fréttablaðið ●
G-star
Blade pant slim
stærðir: 29–36
Þvottar: Bláar
Snið: Slim fit, frekar
lág íseta, þröngar
niður.
Herrasnið
Diesel
Darron 8SV
Stærðir: 29-36
Þvottar: 5 litir í boði
Snið: Comfort fit,
meðal há íseta,
þrengjast aðeins
niður.
Herrasnið
Nudie
Easy Emil
Stærðir: 30-36
Þvottur: Blue fall
Snið: Loose fit, víðar
um læri, beint snið.
Herrasnið
Diesel
Darron 88Z
Stærðir: 29-36
Þvottar: 5 litir í boði
Snið: Comfort fit,
meðal há íseta,
þrengjast aðeins
niður.
Herrasnið
KYNNING
Gallaefni eru vinsæl í herra-
tískunni í dag að sögn Gunn-
laugs Bjarka Snædal og er
mikil vinna lögð í smáatriði
gallabuxna.
„Dökkar gallabuxur eru náttúr-
lega enn þá mjög vinsælar,
hvort sem þær eru dökkbláar
eða svartar,“ segir Gunnlaugur
Bjarki Snædal, rekstrarstjóri
herradeildar NTC. „Þær standa
alltaf fyrir sínu.“
Bjarki segir að nú sé meira
að koma inn af þvottum og ljós-
ari buxum. „Forsmekkurinn
af því var í sumar þegar komu
klóraðar og rifnar gallabuxur.
Eins er lögð meiri vinna í smá-
atriði gallabuxnanna, til dæmis
frágang á vösum, tölum og
saumum.“
Bjarki segir gallaefni vera að
koma mjög sterkt inn. „Gallaefni
er svo sem búið að vera mjög
sterkt og svo er aldrei að vita
nema við förum að sjá gömlu,
góðu gallajakkana aftur uppi á
borðinu,“ segir Bjarki og heldur
áfram: „Íslenskir karlmenn eru
trúir sínum galla buxum. Þegar
þeir finna réttu buxurnar og
rétta sniðið vilja þeir eiga nóg
af þeim.“
Aðspurður segir Bjarki niður-
mjóar buxur á undanhaldi þótt
enn séu þær mjög vinsælar.
„Núna eru að koma beinni buxur
með meiri vídd heldur en í niður-
mjóu gallabuxunum. Okkur
á að líða vel,“ segir Bjarki og
leggur áherslu á það að galla-
buxur henti við hvaða tækifæri
sem er. „Hvort sem fólk er að
fara út að skemmta sér, í vinn-
una eða skólann standa galla-
buxur alltaf fyrir sínu. Úrvalið
er þannig í dag að bæði er hægt
er að finna buxur sem eru fínar
og hversdagslegar,“ útskýr-
ir Bjarki og bætir við að mjög
mikilvægt sé að leita aðstoðar
starfsfólks verslananna til að
finna rétta sniðið.
„Við erum með mjög mikið
úrval af gallabuxum, bæði
í Sautján, Retro, Deres og
Urban,“ upplýsir Bjarki og telur
upp merki á borð við Diesel, G-
Star, Nudie, Levi‘s, Dr. Denim
og Tiger. Bjarki segir að í dag
höfði gallabuxur alls ekki til
einhvers eins aldurshóps frek-
ar en annars. „Úrvalið er það
mikið í dag að allir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Ef menn
vilja vera sportlegir þá klæða
þeir sig í gallabuxur.“
Meiri vinna lögð í
smáatriði og frágang
Bjarki (annar frá vinstri) segir úrval gallabuxna svo mikið í dag að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● RIFNAR GALLABUXUR URÐU HÁ-
TÍSKA Í byrjun 10. áratugarins urðu rifnar
gallabuxur ekki aðeins uppreisnarklæðn-
aður pönkara heldur fór „fína“ fólkið að rífa
nýju gallabuxurnar sínar og ganga í þeim
götóttum. Julia Roberts var þannig
klædd í mörg ár til að mynda – í
stórum víðum peysum, striga-
skóm og rifnum gallabuxum.
Hún þótti reyndar ganga
í þeirri tísku helst til
lengi og var valin verst
klædda konan oftsinnis
af tískugúrúm í Holly-
wood. Rifnar gallabuxur
voru gjarnan steinþvegnar –
alveg ljósbláar sem sagt – en þær
snjóþvegnu voru oftar heilar. Ljósbláar
gallabuxur tilheyra fyrri hluta 10. ára-
tugarins en hafa ekki átt upp á pallborð-
ið síðustu árin þótt öðru hverju taki tísku-
spekúlantar til við að hvetja fólk til að rífa
buxurnar sínar. - jma
Gallabuxur hafa veitt listamönn-
um innblástur í gegnum árum.
Þannig söng Elton John um „Blue-
jean baby“. David Bowie tekur
gallabuxur inn í lagið Jean Genie.
Aðrir sem fjallað hafa um galla-
buxur í dægurlagatextum sínum
eru Junior Brown, Billy Ocean og
Blur. - jma
Sungið og ort
um gallabuxur
Blur er meðal þeirra hljómsveita sem
sungið hafa um gallabuxur.