Fréttablaðið - 27.08.2009, Qupperneq 36
27. ÁGÚST 2009 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● gallabuxur
Lee Denver
Stærðir: 30-38
Þvottar: einn litur
Snið: Boot cut, há
íseta, útvíðar.
Herrasnið
Lee Ranger
Stærðir: 30-48
Þvottar: tveir litir
í boði
Snið: Regular fit,
beint snið, há íseta.
Herrasnið
Wrangler Roxboro
Stærðir: 30-44
Þvottar: einn litur
í boði
Snið: Loose fit, milli
há íseta, víðar yfir
læri, beinar niður.
Herrasnið
Wrangler Alaska
Stærðir: 30-44
Þvottar: einn litur
í boði
Snið: Loose fit, há
íseta, beinar niður.
Herrasnið
KYNNING
Gallabuxur sækja stöðugt
í sig veðrið í vinsældum og
eru nú orðnar viðurkenndar
sem almennur klæðnaður
við flest tækifæri að sögn
Péturs Ívarssonar í Hugo/
Boss í Kringlunni. Þó er ekki
sama gallabuxur og galla-
buxur.
„Á þeim tíu árum sem þessi
verslun hefur starfað hefur
gallabuxnasala aukist gríðar-
lega mikið almennt. Úrvalið hjá
okkur endurspeglar það því við
höfum aukið það mikið,“ segir
Pétur. Hann tekur fram að notk-
unin hafi líka breyst því galla-
buxur þyki víðar viðeigandi en
áður og menn kaupi sér mis-
munandi gallabuxur til að nota
við ólík tækifæri. En er þá ekki
flókið að vita hvaða gallabuxur
henta hvar? „Nei,“ segir Pétur
brosandi. „Þetta er ósköp ein-
falt. Aðalatriðið er að fólki líði
vel í fötunum og sé öruggt með
sjálft sig.“ Svo kemur hann með
leiðbeiningar fyrir herrana.
„Nú síðustu misseri hafa
dekkri og þrengri gallabuxur
þótt fínni en aðrar og menn nota
þær með þröngum, fínum jökk-
um. Meðan aðrar, aðeins víð-
ari buxur, sem þó hefur verið
nostrað við með ýmsum hætti,
þykja sportlegri og eru notaðar
við strigaskó og köflótta jakka.
Svo er þetta persónubundið og
sumir eru mjög vanafastir. Það
er til dæmis hópur af fólki sem
vill bara útvíðar buxur og hann
hefur því miður haft úr litlu að
moða undanfarin tvö ár. Þó er
til gríðarlega mikið úrval því
gallabuxnaheimurinn er rosa-
lega stór og við erum alla jafna
með buxur í tuttugu mismun-
andi stílum en þessar útvíðu
vantar.“
Inntur um eigin smekk kveðst
Pétur nota þrengri gallabux-
ur í vinnunni en í sumarfríinu
og það sé gegnumgangandi hjá
flestum.
Þar sem Bossbúðin selur
fínni fatnað líka eins og jakka-
föt er Pétur spurður hvort galla-
buxnatískan hafi haft mótandi
áhrif á jakkafatalínurnar. „Já,
að mörgu leyti. Við höfum ekki
selt jakkafatabuxur með fell-
ingum síðan 2000 og það sem
þótti þröngt í jakkafötum fyrir
tveimur árum teljast núna klass-
ísk föt. Þetta helst í hendur. Þeir
sem vilja þrengstu gallabuxurn-
ar velja þrengstu jakkafatasnið-
in. Meira að segja þeir sem vilja
hafa buxurnar lausar eru farn-
ir að taka aðeins þrengri buxur
en áður.“
Verð gallabuxna er kapítuli
útaf fyrir sig. Pétur hefur svör
á reiðum höndum þegar hann
er spurður af hverju þær séu
svona dýrar. „Það er eins með
gallabuxnaefni, saumaskap og
aðrar tískuvörur. Þetta er bara
mismunandi vara. Vefnaður-
inn getur verið ólíkur og það
eru alls konar smáatriði í snið-
um og skreytingum. Eftir því
sem meira er nostrað við hlut-
inn verður hann dýrari.“
Flottar og viðeigandi við
flest almenn tækifæri
„Það er eins með gallabuxnaefni, saumaskap og aðrar tískuvörur. Þetta er bara mismunandi vara. Vefnaðurinn getur verið
ólíkur og það eru alls konar smáatriði í sniðum og skreytingum,“ segir Pétur í Bossbúðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hefur þér nokkru sinni virst sem
bossinn á manneskjunni sem
labbar fyrir framan þig blikki
þig vinalega? William A. Jones
upplifði þetta þegar hann fylgd-
ist með konu á gangi á undan sér
og fékk í kjölfarið hugmynd að
nýjum gallabuxum sem kallast
Winkers, samkvæmt metro.co.uk.
Jones er fimm barna faðir og sjö
barna afi og býr í Everett, Wash-
ington.
Til að athuga hvort að galla-
buxur geti í raun blikkað nokk-
urn prófaði hann að mála augu á
gallabuxur dóttur sinnar og viti
menn, augun blikkuðu til Willi-
ams og þar með var viðskiptahug-
mynd fædd. En Winkers eru ekki
bara gallabuxur með augum sem
blikka samferðamenn fólks held-
ur hafa endur sem virðast kvaka,
uglur sem blikka og letilegt ljón í
frumskógi einnig prýtt afturenda
viðskiptavina Jones. Hvert par er
handmálað og eru engar tvennar
buxur eins. Kannski myndu flest-
ir telja það mesta kost buxnanna
þann að eftir því sem fólk fitnar
og fyllir betur upp í þær, því betur
lítur hönnunin út.
William A. Jones málar myndir aftan á gallabuxur. Þegur fólk gengur í þeim virðast
augu blikka og endur kvaka á þann sem á eftir gengur.
Bossi sem blikkar þig á göngu