Fréttablaðið - 27.08.2009, Page 42

Fréttablaðið - 27.08.2009, Page 42
26 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is Menntaskólinn við Sund hóf fyrsta starfsár sitt haustið 1969 undir heitinu Menntaskólinn við Tjörnina. Var hann fyrstu árin starfræktur í húsnæði Mið- bæjarskólans við Fríkirkjuveg. Tæp- lega 200 nemendur hófu nám við skól- ann og voru orðnir á sjötta hundrað tveimur árum síðar. Í dag eru nem- endur tæplega átta hundruð talsins en skólinn er í fyrrum húsnæði Voga- skóla, þangað sem hann var fluttur al- farið árið 1976. Ári síðar var skólanum gefið núverandi nafn: Menntaskólinn við Sund. Már Vilhjálmsson, rektor Mennta- skólans við Sund, segist ekki vongóð- ur um að komast úr „bráðabirgðahús- næðinu“ á afmælisárinu en húsnæði Vogaskóla var alltaf hugsað sem slíkt. „Við erum búin að bíða í fjörtíu ár eftir að byggt verði fyrir skólann og það hefði nú verið gaman að slíkt gerðist á afmælisárinu,“ segir Már en slær á létta strengi og segir að þess í stað ætli skólinn að færa skólakerfinu gjöf. „Við höfum frá árinu 2005 unnið að endurskoðun á skólastarfinu og í vetur munum við ljúka smíði á nýju kerfi sem ætlað er að leysa af hólmi núverandi bekkjarkerfi. Þá erum við að vinna að nýrri skólanámskrá. Þetta er námsskrá sem gengur út frá vinnuframlagi nem- andans og hvaða hæfni hann á að búa yfir í lok náms.“ Már segir að smíði nýja kerfisins verði lokið um áramótin en hann kall- ar nýja skólakerfið „lotubundið bekkj- arkerfi“ og er ætlunin að kerfið verði tekið í notkun næsta haust en í vetur verður gerð tilraun með það hjá völd- um hópi nemenda. „Við ætlum að halda í það besta sem fyrir er í bekkjarkerf- inu en um leið ná miklum sveigjan- leika í skólastarfinu. Þannig stokkum við upp brautir, sumar námsgreinar verða kenndar yfir allt árið en aðrar verða skipulagðar í styttri lotum. Kerf- ið er þannig að nemendur verða áfram í bekk með félögum sínum og sækja með þeim ákveðnar námsgreinar og fá þannig þann félagslega stuðning og festu sem einkennir bekkjarkerfið. Í öðrum greinum gefst nemendum kost- ur á að laga stöðu sína og bæta sig þar sem þeir eru veikir fyrir án þess að missa tengslin við bekkinn.“ Hver lota stendur yfir í átta og hálfa viku, þar sem fáar greinar verða tekn- ar á fullum hraða. Námsmati lýkur í lok lotu. Námið verður verkefnatengt að miklu leyti. Már segir að áhersla verði lögð á þrennt í lotukerfinu: Nátt- úrulæsi, menningu og sögu og með því að stórauka verkefnatengt nám verði nemendum kennt að vinna í praktískum lausnum. „Með þessu nýja kerfi munum við geta tekið á móti nemendum þar sem þeir standa þegar þeir koma inn í skól- ann en það getum við ekki gert í dag þar sem allir fara í sama prógramm- ið.“ Starfsfólk skólans hefur unnið að því að smíða nýja kerfið vel og lengi en sams konar fyrirkomulag þekkist ekki hér á landi. En telur Már það rekstr- arhagkvæmt? „Skólinn hefur verið einn ódýrasti skólinn í rekstri hingað til en við teljum að þetta kerfi sé enn hagkvæmara,“ segir Már. Nýja kerf- ið er ekki eina gjöf skólans í vetur því bryddað verður upp á ýmsum óvæntum uppákomum í vetur til að halda upp á afmæli skólans. juliam@frettabladid.is MENNTASKÓLINN VIÐ SUND: Á FJÖRUTÍU ÁRA AFMÆLI Þróa lotubundið bekkjarkerfi LE CORBUSIER (1887-1965) LÉST ÞENNAN DAG. „Rými, ljós og skipu- lag. Þessir þrír hlutir eru manninum ekki síður mikilvægir en brauð og rúm.“ Le Corbusier var svissnesk- franskur arkitekt, hönnuð- ur, rithöfundur og málari. MERKISATBURÐIR 1914 Togarinn Skúli fógeti lend- ir í árekstri við tundurdufl og sekkur á Norðursjó. 1946 Einangrun Siglufjarðar er rofin þegar fyrsti bíllinn kemur þangað yfir Siglu- fjarðarskarð. 1951 Listasafn Íslands opnar sýningarsali í húsnæði Þjóðminjasafnsins. 1975 Síðasta keisari Eþíópíu, Haile Selassie, deyr. 1979 IRA myrðir Lord Louis Mountbatten, frænda Elísabetar Bretadrottning- ar með því að koma fyrir sprengju á sumarleyfisbát hans. 1991 Moldóva fær sjálfstæði frá Sovétríkjunum 2003 Jörðin er nær Mars en nokkurn tímann síðustu 60.000 árin. Á þessum degi árið 1994 fékk kvikmynd Frið- riks Þórs Friðrikssonar, Bíódagar, norrænu kvik- myndaverðlaunin Amanda fyrir bestu norrænu kvikmyndina. Friðrik Þór veitti verðlaununum sjálfur viðtöku í beinni sjónvarpsútsendingu frá Hauganesi í Noregi. Í umsögn dómnefndar segir að verðlaunin séu veitt kvikmyndinni vegna þess hversu „aðgengi- leg hún sé og að í henni sé að finna næma til- finningu fyrir mannkærleika og ljóðrænu“. Um verðlaunin kepptu fjórar aðrar myndir og var þetta í 22. skiptið sem kvikmyndahátíðin var haldin. Um tólf hundruð gestir sóttu hana. Hand- ritshöfundar myndarinnar voru þeir Friðrik Þór og Einar Már Guðmundsson en myndin var frum- sýnd 30. júní sama ár. ÞETTA GERÐIST: 27. ÁGÚST 1994 Bíódagar fær Amanda-verðlaunin BÍÓDAGAR Í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar. REKTOR SKÓLANS Már Vilhjálmsson segir að afmælisgjöf skólans sé smíði nýs nemendakerfis sem sé bæði rekstrarlega hagkvæmt og styðji nemendur betur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Sigríðar Ingimundardóttur Hornbrekku, Ólafsfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Hornbrekku. Gíslína Helgadóttir Ingimar Antonsson Sigurður Helgason Ágústa Pétursdóttir Hannes Helgason María Jónsdóttir Ingimundur Helgason Arndís Friðriksdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkæri eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, Eggert Snorri Símonsen Jónsgeisla 43, 113 Reykjavík, lést mánudaginn 24. ágúst á Landspítalanum við Hringbraut. Brynja Símonsen Ottó W. Eggertsson Rut Guðmundsdóttir Sigrún B. Eggertsdóttir Hafdís L. Eggertsdóttir Magnús G. Gunnarsson Þórunn M. Eggertsdóttir Böðvar B. Þorvaldsson afabörn og aðrir aðstandendur. Okkar ástkæra, Agna Guðrún Jónsson áður til heimilis Barðavogi 1, Reykjavík, lést á Hrafnistu, Vífilsstöðum mánudaginn 24. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda Kristján S. Sigmundsson Guðrún H. Guðlaugsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, lang- afi og langalangafi, Kári Ísleifur Ingvarsson trésmíðameistari, Hrafnistu, Reykjavík, lést þriðjudaginn 25. ágúst síðastliðinn. Katrín Sigríður Káradóttir Ölver Skúlason Stefán Arnar Kárason Stefanía Björk Karlsdóttir Anna Káradóttir Karsten Iversen og aðrir afkomendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, Stefán Magnússon Ásgötu 12, Raufarhöfn, lést laugardaginn 22. ágúst. Kristjana Ósk Kristinsdóttir Kolbrún Stefánsdóttir Særún Stefánsdóttir Guðrún Stefánsdóttir Magnús Stefánsson Stefán Jan Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, Bjarni Bentsson fv. yfirverkstjóri hjá Flugmálastjórn, Digranesvegi 80, Kópavogi, lést sunnudaginn 16. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 28. ágúst kl. 13.00. Unnur Jakobsdóttir Bent Bjarnason Helga Helgadóttir Anna Þórdís Bjarnadóttir Stefán R. Jónsson Jakob Bjarnason Þóra Kristín Vilhjálmsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.