Fréttablaðið - 27.08.2009, Side 49
FIMMTUDAGUR 27. ágúst 2009 33
Susan Sarandon er í samningaviðræðum um
að leika í framhaldsmyndinni Wall Street 2:
Money Never Sleeps í leikstjórn Olivers Stone.
Sarandon mun leika móður ungs verðbréfa-
sala á Wall Street (Shia LaBeouf) sem lendir
í klónum á Gordon Gekko. Michael Douglas
hefur þegar samþykkt að endurtaka hlutverk
sitt sem Gekko, auk þess sem Frank Langella
verður í leikaraliðinu. Framleiðsla myndar-
innar hefst í New York í næsta mánuði.
Sarandon er þessa dagana að leika í sjón-
varpsmyndinni You Don´t Know Jack sem
fjallar um ævi læknisins umdeilda Jack
Kevorkian. Barry Levinson leikstýrir henni
og með önnur aðalhlutverk fara Al Pacino og
John Goodman. Hún sést næst á hvíta tjaldinu
í The Lovely Bones í leikstjórn Peters Jackson.
Þar eru aðrir leikarar Mark Wahlberg, Rachel
Weisz og Stanley Tucci.
Susan í Wall Street
SUSAN SARANDON Fer
að öllum líkindum með
hlutverk í Wall Street 2.
Bítlarnir eru heitt viðfangsefni í
kvikmyndir þessa dagana. Í sein-
ustu viku var tilkynnt að Robert
Zemeckis ætlar sér að gera end-
urgerð af myndinni Yellow Sub-
marine með „motion capture“
tækni. Í gær kom fram í Variety
að nú hyggst David Permut fram-
leiða mynd um umboðsmanninn
Brian Epstein.
Epstein uppgötvaði Bítlana á
Carvern Club í Liverpool og kom
þeim til EMI þar sem þeir gáfu
út sína fyrstu plötu. Hann dó úr
ofneyslu eiturlyfja 32 ára gam-
all, 1967.
Hvað Bítlana varðar einblínir
myndin á upphafsár hljómsveit-
arinnar. Permut vonast til að
fá afnot af upprunalegri tónlist
þeirra í myndina, sem reynist
yfirleitt þrautin þyngri. - kbs
Bíómynd um
líf Epsteins
A HARD DAYS NIGHT Spurt er hvenær sú
Bítlamynd verður endurgerð? Epstein og
Yellow Submarine eru á leið á tjaldið.
Kvikmyndaframleiðandinn Warn-
er Bros. ætlar að endurgera
ævintýrakvikmyndina Excalibur
frá árinu 1981. Bryan Singer
verður framleiðandi og hugsan-
lega leikstjóri. Excalibur fjallar
um leitina að hinum heilaga kal-
eik til að bjarga lífi Arthúrs
konungs. Í myndinni koma við
sögu sverðið Excalibur, riddarar
hringborðsins og galdramaðurinn
Merlín. John Boorman leikstýrði
fyrstu myndinni.
Excalibur
endurgerð
„Þetta er stóraukinn fjöldi,“ segir
Garðar Stefánsson sem skipulegg-
ur kvikmyndasmiðju Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem
verður haldin í næsta mánuði.
Um eitt hundrað umsóknir frá
ungu kvikmyndagerðarfólki í
Evrópu og Ameríku hafa borist
vegna smiðjunnar en á síðasta ári
voru þær um 25 talsins. „Ísland er
orðið mjög þekkt land og alræmt.
Við erum búin að fá mjög mikla
umfjöllun í fréttunum og það er
líka ódýrt að koma hingað. Við
höfum líka verið að kynna þetta
vel úti,“ segir Garðar um þennan
mikla fjölda.
Í kvikmyndasmiðjunni, sem
stendur yfir í þrjá daga, fær fólk
tækifæri til að hittast í Reykjavík
og upplifa það sem er að gerast í
kvikmyndaiðnaði beggja vegna
Atlantshafsins. Staðsetningunni er
ætlað að brúa bilið á milli heims-
álfanna tveggja, bæði landfræði-
lega og menningarlega. „Hug-
myndin er að fólk sé að fara úr
stuttmyndinni yfir í mynd í fullri
lengd og þessi smiðja er ætluð
sem stökkpallur fyrir það. Þátt-
takendurnir fá ráðleggingar frá
gestum sem sækja hátíðina heim
og íslenskum leikstjórum,“ segir
Garðar. Búið er að loka á umsóknir
erlendis frá en Íslendingum stend-
ur enn til boða að sækja um, eða
þangað til 1. september. Á endan-
um verður 50 til 60 manna hópur
valinn og því komast mun færri að
en vilja. Í framhaldinu gefst hinu
unga kvikmyndagerðarfólki færi
á að senda inn mynd til sýningar á
hátíðinni og keppa um hvatningar-
verðlaun RIFF, Gullna eggið. - fb
Hundrað útlendingar sóttu um
GARÐAR STEFÁNSSON Um eitt hundrað
umsóknir frá ungu erlendu kvikmynda-
gerðarfólki hafa borist vegna kvik-
myndasmiðjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Optic Reykjavík ehf.
S: 552 2002 Hamrahlíð 17
Húsi Blindrafélagsins 105 Rvk.
Dagslinsur
Kr: 2.490.-
Mánaðarlinsur
Kr: 4.900.-
Silikon-
mánaðarlinsur
Kr: 8.900.-