Fréttablaðið - 27.08.2009, Qupperneq 50
34 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Það er alltaf eitthvað áhugavert að gerast í heimi danstónlistarinnar.
Á tíunda áratugnum spruttu upp margar nýjar stefnur á hverju ári og
sköpunargleðin var slík að við hliðina á danstónlistinni hljómaði rokk-
ið eins og úrelt hjakk aftan úr forneskju. Svo hægðist á þróuninni og
mönnum varð ljóst að framtíð tónlistarinnar væri kannski ekki endi-
lega bundin við tækniframfarir. Það fer minna fyrir danstónlistinni í
dag heldur en fyrir tíu árum, en það er fullt af góðum hlutum í gangi
engu að síður. Og nú eru danstónlistarmenn, rétt eins og rokkarar og
popparar, farnir að horfa til baka og endurvinna sitthvað úr fortíðinni.
Gömlu meistaraverkin eru farin að líta dagsins ljós í viðhafnarút-
gáfum. Nýlegt dæmi um það er tímamótaplatan Minimal Nation frá
1994 með Robert Hood sem var endurútgefin í sumar. Og danstónlistar-
útgáfurnar eru að fagna tímamótum, Warp er 20 ára og fagnar áfang-
anum með útgáfu heljarinnar kassa og svo er þýska teknó-útgáfan
Kompakt tíu ára.
Kompakt var stofnuð í Köln af þeim Wolfgang Voigt, Michael Mayer
og Jürgen Paape til að gefa út allt sem þeim dytti í hug. Á þessu tíu
árum sem eru liðin frá því að Kompakt fór að gefa út plötur hefur hún
haldið mjög háum gæðaviðmiðum, en líka markað sér sérstöðu.
Kompakt-menn eru hrifnir af minimalískri teknótónlist, en eru á
sama tíma opnir fyrir því að blanda hana með óvenjulegum hlutum,
hvort sem það er poppaður söngur, transtónlist eða eitthvað annað.
Á meðal þeirra sem hafa gefið út hjá Kompakt eru Superpitcher, Gui
Boratto, The Orb, Thomas Fehlmann og The Field sem sendi frá sér
hina margrómuðu From Here We Go Sublime fyrir tveimur árum.
Og svo Gus Gus auðvitað. Nýja Gus Gus platan 24/7 kemur út hjá
Kompakt 14. september. Gus Gus þarf auðvitað enga sérstaka gæða-
vottun, en hér er hún samt komin.
Gæðavottun Gus Gus
GUS GUS Hið nýja heimili Gus Gus, þýska útgáfan Kompakt, fagnar tíu ára afmæli í ár.
> Plata vikunnar
Egill Sæbjörnsson - Egill S
★★★★
„Níu árum á eftir hinni
rómuðu Tonk of the Lawn
er loksins komin ný plata frá
Agli Sæbjörnssyni. Flott plata.
Vonandi verður biðin styttri eftir
þeirri næstu.“ TJ
> Í SPILARANUM
Arctic Monkeys - Humbug
Nögl - I Proudly Present
Þorvaldur Þór Þorvaldsson - Þorvaldur Þór Þorvaldsson
Polvo - Prism
Brendan Benson - My Old, Familiar Friend
ARCTIC MONKEYS BRENDAN BENSON
Sænska tónlistarkonan
Fever Ray hefur hlotið
mikið lof fyrir fyrstu sóló-
plötu sína sem kom út í vor.
Margir telja að hún verði
ofarlega á listum yfir bestu
plötur ársins 2009.
Fever Ray heitir réttu nafni Karin
Dreijer Andersson og sló fyrst í
gegn í elektródúettnum The Knife
með bróður sínum Olof Dreijer.
The Knife hefur gefið út þrjár
plötur og fékk frábæra dóma fyrir
þriðju plötu sína, Silent Shout.
Hún var valin plata ársins 2006
af Pitchfork og hlaut sex sænsku
tónlistarverðlaunin árið eftir.
Skömmu síðar var tilkynnt að
The Knife ætlaði í þriggja ára frí
og spilaði þar inn í að Karin átti
von á öðru barni sínu og þurfti á
hvíld að halda. Þarna gafst henni
um leið tími til að sinna nýju sóló-
verkefni sínu. Plötuna tók hún að
mestu upp á heimili sínu suður af
Stokkhólmi á sjö mánuðum.
Systkinin í The Knife eru þekkt
fyrir að vera heldur fjölmiðlafæl-
in; eru lítið gefin fyrir tónleika-
hald og gefa fá viðtöl. Þess vegna
kemur það fáum á óvart að Fever
Ray hefur verið hulin mikilli dulúð
síðan hún steig fyrst fram á sjón-
arsviðið. Á tónleikum kemur hún
oft fram máluð á sérkennilegan
hátt eða með grímu og viðtölin eru
einnig af skornum skammti. Öll
áhersla er lögð á tónlistina sjálfa,
þannig að öllum sé ljóst að hennar
persóna sé aldrei aðalmálið.
Plata Fever Ray er drunga-
leg þar sem asískir tónar krydda
útkomuna víðast hvar. Oft á tíðum
bjöguð rödd Karinar svífur síðan
yfir léttum elektrótöktunum á
seiðandi hátt. Breska tímaritið
Q gaf plötunni fjórar stjörnur af
fimm mögulegum og líkti Fever
Ray við Björk Guðmundsdóttur:
„Ef þið hafið einhvern tímann
velt fyrir ykkur hvernig Björk
myndi hljóma ef hún væri föst í
snjóskafli þá er svarið að finna
hérna,“ sagði í dómnum. Platan
fékk einnig fjórar stjörnur í Mojo,
fimm stjörnur í The Guardian og
81 af 100 hjá Pitchfork. Sjálf segir
Karin að Fever Ray sé nokkurs
konar andleg persóna sem hafi
mismunandi raddir og geti breyst
í alls konar form.
Karin hefur nefnt tvo áhrifa-
valda við gerð plötunnar. Ann-
ars vegar myndina Dead Man
eftir Jim Jarmusch, þar sem
Neil Young samdi alla tónlistina,
og hins vegar sjónvarpsþættina
Miami Vice þar sem tónlist níunda
áratugarins var í forgrunni. „Ég
reyni að fanga þessa tilfinningu
sem myndast þegar þessir náung-
ar sigla í burtu á þessum hraðbát
með stórar vélar seint á kvöldin.
Þetta eru eins og tónlistarmynd-
bönd í þáttunum þegar þeir spila
háværa tónlist yfir öllu og bruna
áfram á bátnum. Það lítur frábær-
lega út,“ segir Karin.
freyr@frettabladid.is
Hin drungalega Fever Ray
FEVER RAY Fever Ray, drungaleg á tónleikum með hvíta og svarta andlitsmálningu og
rauðar linsur. NORDICPHOTOS/GETTY
Útgáfufyrirtækið Icelands
Airport Route hefur gefið út
safnplötuna Audio 101: Reykja-
vik sem hefur að geyma dans-
tónlist úr ýmsum áttum. Á
meðal flytjenda á plötunni
eru Yagya, Plugg´d, Exos
og Oculus & Trix. Simon
Latham, sem var í bresku
danssveitinni Soundsation á
tíunda áratugnum, safnaði lög-
unum saman, en hann rekur
einmitt Icelands Airport
Route í Reykjanesbæ. Hann
hefur áður endurhljóðblandað
lög með Birgittu Haukdal og
Hafdísi Huld. Útgáfupartí til
að fagna plötunni verður hald-
ið á skemmtistaðnum Club 101
á laugardaginn.
Dansvæn safnplata
SIMON LATHAM Latham rekur útgáfufyrirtækið Icelands Airport
Route sem er í Reykjanesbæ. MYND/ELLERT
Fyrsta plata trommuleikarans
Þorvaldar Þórs Þorvaldssonar er
komin út. Þorvaldur sækir inn-
blástur sinn í ýmsar tónlistar-
stefnur, þar á meðal popp, djass og
hip-hop, og var platan tekin upp á
meðan hann bjó í Bandaríkjunum.
„Ég var að læra úti og var búinn
að vera að semja tónlist alltaf mjög
stöðugt samfara námi. Ég var orð-
inn mjög óþreyjufullur að koma
þessu efni frá mér,“ segir hann.
Þorvaldur útskrifaðist með mast-
ersgráðu í tónlist frá New England
Conservatory í Boston árið 2007.
Þar áður hafði hann útskrifast með
BA-gráðu frá University of Miami
árið 2005. Að námi lokni flutti Þor-
valdur til New York þar sem hann
bjó í hálft annað ár og starfaði með
ýmsum tónlistarmönnum og ferð-
aðist með þeim víða um Bandarík-
in. Um síðustu ármót söðlaði hann
um og flutti aftur til Íslands.
Áður en Þorvaldur flutti til
Bandaríkjanna, var hann mjög
virkur í íslensku tónlistarlífi og var
meðlimur í ýmsum hljómsveitum,
jafnt í djass- og poppgeiranum. „Ég
var svolítið í poppinu í gamla daga
og sveitaballabransanum. Það var
mjög góð reynsla að vera í sveita-
ballabransanum á Íslandi. Það er
ágætt að hafa prófað það,“ segir
hann. „Ég er búinn að sanka að mér
reynslu héðan og þaðan. Þegar ég
bjó í New York var ég að spila með
ýmsum tónlistarmönnum. Það var
mjög athyglisvert líka að prófa það
hark. Það var mjög erfitt og það er
miklu erfiðara að lifa af í New York
en í Reykjavík.“
Með Þorvaldi leika á plötunni
nokkrir af ástsælustu tónlistar-
mönnum þjóðarinnar, þeir Eyþór
Gunnarsson, Óskar Guðjónsson,
Ómar Guðjónsson og bandaríski
bassaleikarinn Jon Estes.
Þorvaldur segir að platan sé
mjög melódísk og tilfinninga-
þrungin. „Tónsmíðarnar eru mjög
persónulegar og stjórnast svolítið
af tilfinningum mínum og hvernig
mér líður hverju sinni. Ég er mjög
tilfinningarík manneskja og ég
elska tilfinningar mínar, ég neita
því ekki,“ segir hann og bætir við
að platan sé einnig bæði rythmísk
og taktföst. „Lögin byggja oftar en
ekki á einum takti og tilfinningu.
Ég er oft með grúv í huga og svo er
það hvernig mér líður sem stjórnar
músíkinni ofan á grúvið.“ -fb
Bætir tilfinningum við takta
ÞORVALDUR ÞÓR ÞORVALDSSON Platan
er bæði melódísk og tilfinningaþrungin,
enda er Þorvaldur tilfinningarík mann-
eskja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA