Fréttablaðið - 27.08.2009, Qupperneq 52
36 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> VALIN KONA ÁRSINS
Tímaritið Billboard hefur valið Beyoncé
Knowles konu ársins og verður hún
heiðruð við hátíðlega athöfn í New
York 2. október næstkomandi.
Ritstjóri blaðsins, Bill Werde,
segir Beyoncé vera marg-
faldan platínulistamann
og fjölhæfa konu sem hafi
veitt bæði popptónlist-
arbransanum og -konum
úti um allan heim innblástur
með tónlist sinni, dansi, stíl og
vinnu að mannúðarmálum.
Söngvarinn Chris Brown hefur
verið dæmdur í fimm ára skilorðs-
bundið fangelsi og til að inna af
hendi minnst 1.400 klukkustundir
í samfélagsþjónustu. Sem frægt
er orðið kærði fyrrverandi kær-
asta Browns, söngkonan Rihanna,
hann fyrir barsmíðar í febrúar
í ár. Árásin átti sér stað eftir að
Brown fékk símaskilaboð frá
fyrrverandi kærustu, við það
reiddist Rihanna og fór parið að
rífast. Brown réðst svo á Rihönnu
eftir að hún neitaði að fara út úr
bílnum sem þau óku og sló hann
söngkonuna meðal annars í and-
litið og tók hana kverkataki.
Samfélagsþjónustan sem
Brown mun þurfa að sinna verð-
ur meðal annars að þrífa veggja-
krot af opinberum byggingum.
Dómurinn felur einnig í sér að
Brown verði að halda sér í ákveð-
inni fjarlægð frá Rihönnu næstu
fimm árin, hann má því ekki
hafa tölvusamskipti við hana
eða hringja í hana auk þess sem
hann verður að sitja námskeið um
heimilisofbeldi.
Haldi sig frá
Rihönnu
CHRIS BROWN Dæmdur í fimm ára
skilorðsbundið fangelsi.
Það að leita að myndum af leik-
konunni Jessicu Biel á alnetinu
getur haft slæmar afleiðingar í
för með sér. Fyrirtækið McAfee,
sem sérhæfir sig í vírusvörnum
fyrir tölvur, gefur árlega út lista
yfir nöfn þeirra
stjarna sem hvað
oftast geyma tölvu-
vírusa. Í ár trón-
aði nafn Jessicu
efst á listanum,
en samkvæmt
McAfee þá voru
tuttugu prósent
líkur á að fá
tölvuvírus
ef menn
skráðu
nafn
hennar
inn á leit-
arvélar.
Bey-
oncé,
Jennifer
Aniston
og Jessica
Simpson
voru einn-
ig á meðal
topp tíu.
Jessicu Biel
fylgir vírus
Bardagaíþróttakappinn Alex
Reid sem er nýr kærasti glamúr-
fyrirsætunnar Jordan, segist
vera yfir sig ástfanginn. Í nýlegu
viðtali við tímaritið New! segist
hann hafa kollfallið fyrir kyn-
bombunni við fyrstu kynni. „Ég
hef sagt henni að ég elski hana á
hverjum degi frá því við kynnt-
umst, örugglega um milljón sinn-
um á dag,“ var haft eftir vöðva-
búntinu. „Mér hefur aldrei liðið
svona áður. Aldrei. Mér hefur
aldrei liðið jafn vel í sambandi.“
Reid og Jordan kynntust í afmæl-
isveislu fyrir tæpum tveimur
mánuðum og hafa verið óaðskilj-
anleg allar götur síðan.
Elskar Jordan
Hönnunarfyrirtækið ELM Design frum-
sýndi nýja vor- og sumarlínu fyrir árið
2010 í síðustu viku. Hönnunarfyrirtækið
ELM Design, sem hefur verið starfrækt í
tíu ár, hélt á dögunum sérstaka frumsýn-
ingu á nýrri vor- og sumarlínu fyrir árið
2010. Sama lína verður sýnd á tískuvik-
unni í París í september. Af myndunum að
dæma voru gestir afar ánægðir með það
sem koma skal.
Sýndu sumartísku næsta árs
HÖNNUÐIRNIR Matthildur Halldórsdóttir, Erna Steina Guð-
mundsdóttir, Lísbet Sveinsdóttir og Kristín Hrafnkellsdóttir, en
þær þrjár fyrrnefndu eru eigendur ELM Design.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÁNÆGÐIR GESTIR Sigurbjörg
Gröndal og Gestur Bárðason
voru hrifin af sumartísku
næsta árs.
SNEMMA BEYGIST KRÓKUR-
INN Íris Ólafsdóttir og Tómas
Gestsson mættu með unga
dóttur sína, Ernu.
LÉTT OG LEIKANDI Hönnun ELM Design hefur vakið mikla
athygli víða um heim, enda eru flíkurnar sérstaklega fallegar.
HVÍT OG SUMARLEG Að sögn hönnuða ELM verða grænir, gulir
og hvítir tónar ríkjandi næsta sumar. Fyrirsætan klæðist hér
fallegri hvítri flík.
Dallas-leikarann Larry Hag-
man dreymir um að koma til
Íslands og veiða lax. Þetta
kemur fram í viðtali við
kappann sem birtist í
breska blaðinu Daily
Telegraph. Þar er leik-
arinn spurður út í hina
og þessa staði sem hann
hafi komið til í gegnum tíð-
ina, hvaða sumarleyfisstaðir
standi upp úr og þar fram eftir
götunum.
Hagman er hvað þekktastur
fyrir túlkun sína á olíu-óþokk-
anum J.R. sem sveifst einskis
við að ná sínu fram í barátt-
unni innan Ewing-fjölskyld-
unnar. „Mig langar að veiða
á Íslandi,“ segir Larry þegar
hann er spurður hvert
hann langi að fara næst í
frí. „Ég hef heyrt að þeir
séu með mjög fallegan
lax í ánum hjá sér þannig
að ég væri til í að pakka
Stetson-hattinum og halda
þangað,“ segir Larry sem,
ef marka má viðtalið, er
nokkuð víðförull maður.
Larry bætir því síðan
við að hann hafi heyrt að
Ísland sé eins og tunglið,
nema bara með hverum,
leirböðum og eldfjöllum.
„Þannig að þetta hljómar
allt saman mjög spenn-
andi. Það var samt synd
hvernig fór fyrir efna-
hagnum hjá þeim.“ - fgg
Dreymir um Íslandsferð
SPENNTUR FYRIR ÍSLANDI Larry
Hagman langar að koma til
Íslands og veiða lax.
Kelly Rowland segist loksins vera
búin að öðlast trú á hæfileika
sína eftir að hafa lifað í ótta síð-
astliðin ár. Í viðtali við dagblað-
ið USA Today segist söngkonan
hafa átt í erfiðleikum með sjálfs-
mynd sína þegar hún hóf sólófer-
il eftir að Destiny‘s Child hættu.
Sólóferill hennar gekk ekki sem
skyldi í Bandaríkjunum, en lög
hennar hafa náð á topp vinsælda-
lista út um allan heim.
„Ég er komin með endurnýjaða
orku og sköpunarkrafturinn er í
botni. Ég skemmti mér konung-
lega í hljóðverinu því nú er ég er
að taka upp danstónlist,“ segir
söngkonan.
Loksins sátt
við sjálfa sig
-sm
Undirbúningur er í fullum gangi
fyrir kvikmyndina Kóngaveg 7 í
leikstjórn Valdísar Óskarsdóttur.
Framleiðendur eru þeir Árni Fil-
ippusarson, Hreinn Beck og Davíð
Óskar Ólafsson, sonur Valdísar.
Þeir framleiddu einnig Sveitabrúð-
kaup sem var frumraun hennar sem
leikstjóri. Sú mynd hlaut fjórar til-
nefningar til Eddu-verðlaunanna
á síðasta ári, meðal annars fyrir
bestu mynd og bestu klippingu. „Við
erum spenntir fyrir því að vinna
aftur með Valdísi eftir ánægju-
legt samstarf við gerð Sveitabrúð-
kaups,“ segir Árni. „Við erum búnir
að vera að undirbúa þetta í tæpa tvo
mánuði og hefjum tökur vonandi
15. september,“ segir hann og lofar
skemmtilegri mynd. „Kóngavegur 7
er mitt á milli að vera gamanmynd
og drama. Þetta á að vera kóm-
edía með léttu og alvarlegu ívafi.“
Myndin gerist í hjólhýsahverfi og
segir frá atburðum sem eiga sér
stað þegar Júníor snýr aftur heim
til Íslands eftir þriggja ára fjar-
veru erlendis. Hann kemur heim
með ýmis vandræði í farteskinu og
vonar að faðir hans leyst úr þeim.
Valdís Óskarsdóttir hefur getið
sér gott orð sem einn fremsti klipp-
ari Íslendinga og hlaut hin eftir-
sóttu BAFTA-verðlaun fyrir klipp-
inguna á Eternal Sunshine of the
Spotless Mind. - fb
Tökur á Kóngavegi 7 að hefjast
FRAMLEIÐENDUR
Árni Filippusar-
son, Hreinn Beck
og Davíð Óskar
Ólafsson framleiða
Kóngaveg 7.