Neisti - 20.05.1984, Side 15

Neisti - 20.05.1984, Side 15
sinnar í Washington farnir að óttast að fordæmi kúbönsku byltingarinnar gæti haft slæm áhrif fyrir þá á meginlandinu. Kenndy Bandaríkjaforseti setti af stað áætlun, sem átti að tryggja efnahagsleg- ar framfarir og stöðugt stjórnarfar borg- arlegs lýðræðis í rómönsku Ameríku. Pessi áætlun fór algerlega út um þúfur því hvergi nærri tókst að uppfylla miklar og knýjandi þarfir alls þorra almennings innan ramma auðvaldsskipulags undir oki heimsvaldastefnu. Borgaralegt lýð- ræði varð æ fátíðara í álfunni eftir því sem leið á áratuginn. Herforingjastjóm- ir ríktu með mikilli grimmd í Brasilíu 1964-68, Bólivíu 1964-71, Chile og Uruguay eftir 1973 og Argentínu eftir 1976. Þessar stjórnir hafa staðið fyrir stöð- ugum ofsóknum gegn landsmönnum sínum og svifist einskis. Undir því yfir- skini að verið sé að berjast gegn hryðju- verkamönnum hafa ofsóknimar einkum beinst gegn verkalýðsfélögunum og stjórnmálaflokkum sem byggðir em á fylgi verkafólks og bænda. Öll slík sam- tök voru gerð ólögleg og baráttumenn þeirra ýmist drepnir, hraktir í útlegð eða látnir sitja í dýflissum herforingjanna. Menntamenn og kirkjunnar menn og jafnvel talsmenn borgaralegra stjóm- málaflokka sættu svipaðri meðferð, ef þeir mótmæltu harðstjórninni. Ógnarstjórn og „sjokkmeðferð“ Engin aðferð var of ómannúðleg til að herforingjarnir gætu ekki notað hana í ofsóknum sínum. Barsmíðar, pynting- ar, bókabrennur, mannrán og gíslataka barna eru meðal þeirra tækja sem þessir vinir Bandaríkjanna notuðu til að hræða heil þjóðfélög til hlýðni. Fórnarlömbin skiptu tugum þúsunda. Þegar valdhafarnir þóttust hafa hrætt almenning til hlýðni við sig hófust þeir handa við að framkvæma efnahags- stefnu sem skilaði hámarksgróða fyrir heimsvaldasinna og kapítalistana innan- lands. Allri tollavemd og eftirliti með erlendum viðskiptum var aflétt með þeim afleiðingum að þjóðlegur iðnaður sem byggður hafði verið upp á 6. og 7. áratugnum féll saman, verðbólga marg- faldaðist og sífellt meiri auður safnaðist í æ færri hendur. Opinber fyrirtæki vom seld einkaaðilum á uppboði. í kjölfar ofsókna á hendur verkalýðsfélögunum lækkaði kaupgjald stórlega. Félagsleg þjónusta hríðversnaði og var hún þó ekki mikil fyrir. Þessi „sjokkmeðferð“ sem var harka- legast beitt í Chile af hagfræðingum hins svonefnda Chicagoskóla, en þeir vom ráðgjafar Pinochets, byggist á þeirri kenningu að þurrka eigi burt ófram- leiðna geira efnahagslífsins og auka út- flutning á afurðum landbúnaðar og úr námugreftri. Slíkar aðgerðir áttu að opna leiðir að traustara efnahagshfi og nýjum hagvexti. 1 von um að þessar spár rættust fengust stórfelld lán í bönkum heimsvaldalandanna til að fjármagna stórverkefni og innflutning á vélum. Bankastjórar í heimsvaldalöndunum álitu vænlegt að veðja á þessar herfor- ingjastjórnir og hvöttu til meiri lántöku. En mestur hluti lánanna fór í brask með fjármagn, innflutning á óhófsvamingi eða aðra óframleiðna fjárfestingu. Kreppa auðvaldsskipu- lagsins Það er nú borðliggjandi að þessar her- foringjastjómir náðu ekki þeim póli- tísku og efnahagslegu markmiðum sem til var ætlast. Þrátt fyrir mikil áföll hefur alþýða manna ekki látið bugast. Og „sjokkmeðferðin" skilaði ekki hagvexti heldur efnahagskreppu og hmni. Samfara enfahagskreppunni 1981-82 sem kom hart niður á þjóðum rómönsku Ameríku átti sér stað ný sókn heimsbylt- ingarinnar í Mið-Ameríku og á Karíba- hafi. framhald 15

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.