Neisti - 20.05.1984, Qupperneq 24
Bretland
„Félag námuverkamanna í Bentley segir: Verkamenn sameinaðir verða aldrei
sigraðir.“
Árásaráætlun íhaldsins
Allar þessar afstæður koma skýrt
fram í verkfalli kolanámumanna.
Leiðtogi þeirra er vinstrisinninn
Arthur Scargill, og hefur hann und-
anfama mánuði varað við því að
stjómin stefndi að lokun meirihluta
námanna. Fyrst í stað vakti þessi
staðhæfing aðhlátur er nú orðið er
komið á daginn að hann hafði rétt
fyrir sér eftir allt saman. í fyrmefndri
Ridley skýrslu er varað við því að
ráðast beint að námamönnum, held-
ur skyldu veikari verkalýðsfélög gerð
að skotmarki. í fyrstu, stálverka-
menn, starfsmenn Leylandverk-
smiðjanna og lestarstjórar. Vatns-
veitustarfsmenn og kolanámumenn,
sem sterkari em skyldu í fyrstu fá
einhverju af kröfum sínum fullnægt,
en síðan ráðist gegn þeim.
Pessari áætlun var síðan fylgt í
stómm dráttum. Starfsmenn Ley-
land-verksmiðjanna hafa beðið
ósigra í einni deilunni af annarri, og
ósigur stálverkamanna í langvarandi
vinnudeilu 1980 leiddi til þess að
100.000 verkamenn urðu atvinnu-
lausir. Samtök starfsmanna ríkis-
stofnana biðu auðmýkjandi ósigur
1982, og á við sjálft, að réttur opin-
berra starfsmanna til að skipuleggja
sig í verkalýðsfélögum væri skertur
vemlega. Um þessar mundir er einnig
tekist á um rétt starfsmanna njósna-
miðstöðvarinnar í Cheltenham til að
vera í verkalýðsfélögum.
Röðin kemur að námunum
12 mars sl. hófst síðan verkfall
kolanámumanna, eftir að Ian Mc-
Gregor, formaður stjómamefndar
kolanámumanna, tilkynnti að 20 nám-
um yrði lokað á næsta f járhagsári og
20.000 verkamenn yrðu þar með at-
vinnulausir. Þessar námur em óhag-
kvæmar að mati stjómamefndarinn-
ar, eins og margar fleiri námur en
stjómamefndin metur þvílíkt út frá
skammtímasjónarmiðum eingöngu, í
samræmi við stefnu ríkisstjómarinn-
ar. Það er markmið hennar að grisja
úr þær námur þar sem úreltur tækja-
búnaður eða óhagstæð jarðvegsskil-
yrði gera það að verkum að hagnaðar
er ekki að vænta á næstunni, en selja
þær námur sem betur standa að vígi
einkafyrirtækjum, og em olíufélög
tíðast nefnd sem væntanlegir kaup-
endur.
Fyrir utan hið almenna pólitíska
markmið, að styrkja einkarekstur-
inn, hyggst stjómin vinna tvennt
með lokum kolanámanna. Annars-
vegar að spara sér styrk til kola-
námurekstursins, sem em nú þegar
hinir lægstu í Evrópu, eða tæpur
þriðjungur þess sem er í Þýskalandi
og tæpur fimmtungur styrkjanna í
Frakklandi eða Belgíu. Er kola-
námuiðnaðurinn í Bretlandi þó sýnu
umfangsmeiri en í þessum löndum.
Hins vegar er stjóminni mjög í mun
að bæta samkeppnisaðstöðu kjam-
orkuveranna, sem áætlað er að fram-
leiði um aldamótin áttfalt á við það
sem þau gera nú.
Verkfall undirbúið
Verkfallið átti sér nokkum að-
draganda innan samtaka kolanámu-
manna. A s.l. ári hvöttu námamenn í
Suður-Wales til allsherjarverkfalls
námumanna gegn yfirvofandi lokun
náma í Suður-Wales. í landsat-
kvæðagreiðslu studdu aðeins 39%
slíka aðgerð. Þó tókst verkamönnum
í Polmaisenámunni ekki einu sinni að
afla stuðnings í næsta nágrenni fyrr á
þessu ári.
Mikilsverðar ályktanir vom dregn-
ar af þessari reynslu, og nýttar í verk-
fallinu nú. Undirbúningur þess var
hafinn með 19 vikna yfirvinnubanni,
í því augnamiði að minnka kola-
birgðir og bæta þannig vígstöðu
verkamanna, og eins til að efla sam-
stöðuna innan námamannasam-
bandsins, áður en til útslitaomistu
drægi.
Yfirvinnubanninu var hvarvetna
framfylgt. En þegar námamenn í
Suður-Yorkshire hófu baráttu innan
námamannasambandsins fyrir alls-
herjaraðgerðum gegn lokun náma í
héraðinu, komu langvarandi and-
stæður upp á yfirborðið.
Innbyrgðis ágreiningur
námamanna
Þannig er mál með vexti, að náma-
svæðin era misgjöful, en á hverju
svæði fyrir sig era sérstök kaupauka-
kerfi, þetta veldur því að tekjur
verkamanna á gjöfulustu námasvæð-
unum umhverfis Nottingham era allt
að tvöfalt hærri en tekjur verka-
manna á lágframleiðnisvæðum. Þá
eru námumar á gjöfulustu svæðun-
um ekki í yfirvofandi hættu, og þar
eru nýfjárfestingar mestar, sem enn
eykur framleiðnimuninn og launabil-
ið.
Af þessum sökum era námamenn
tregari til aðgerða á Nottingham-
svæðinu en annarstaðar.
Hér er í sjálfu sér ekki um óyfir-
stíganlegt vandamál að ræða. Lausn
þess er þó mjög torvelduð af fjand-
samlegum fjölmiðlum, sem hafa
lagst á eitt um að fordæma verk-
Formaður landssambands námuverka-
manna, Arthur Scargill.
24