Neisti - 20.05.1984, Blaðsíða 31

Neisti - 20.05.1984, Blaðsíða 31
ins með samningum við Sovétríkin, eru af þessum toga spunnar. Gagnrýni breskra íhaldsmanna með Margaret Thatcher í broddi fylkingar á stefnu friðarhreyfinganna hefur einnig beinst mjög að tillögum þeirra um ein- hliða afvopnun, sem „ógni öryggishags- munum vestrænna þjóða“..Vegna þess að einhliða afvopnun myndi losa kverkatak heimsvaldasinna á verkalýðs- ríkjum og þjóðfrelsishreyfingum, geta heimsvaldasinnar og talsmenn þeirra ekki fallist á slíkt, en eru hinsvegar boðnir og búnir að ræða tvíhliða afvopn- un, sem myndi staðfesta hemaðaryfir- burði heimsvaldaríkjanna. Hinn mikli styrkur friðarhreyfing- anna og hinn víðtæki hljómgrunnur, sem málstaður þeirra hefur notið byggir ekki f.o.f. á almennum andheimsvalda- sinnuðum markmiðum, heldur því, að þessi barátta beinist að áþreifanlegum og nærtækum markmiðum. Andheimsvaldasinnuð viðhorf hafa áratugum saman verið útbreidd um alla Evrópu, t.a.m. en ekki beinst gegn víg- búnaðarkapphlaupinu aðallega, heldur öðmm viðfangsefnum. Með endumýj- un vígbúnaðarkapphlaupsins, er stað- setning meðaldrægra eldflauga í Evrópu komst á dagsskrá, beindust sjónir manna að þessum málum á ný. Samtímis varð NATO á ný eitt af mál- um málanna, en barátta gegn NATO var í algeru lágmarki meðal svonefndrar ’68 kynslóðar. Pað var einnig vegna þess, að þá var ekkert að gerast á þessum vettvangi, en næg verkefni annarsstað- ar. Meðaldrægu eldflaugamar breyttu þessu. Hið augljósa samhengi milli NATO-aðildar og eldflauga hefur magnað andstöðu almennings gegn NATO á ný, og barátta gegn hemaðar- stefnu og vígbúnaði beinist því í vaxandi mæli gegn þessu hernaðarbandalagi heimsvaldasinna. Áþreifanleg tilefni Allt friðartal veraldarinnar er fánýtt í samanburði við að koma í veg fyrir aukningu kjarnorkuvígbúnaðar í raun og veru, stöðva eitt raunvemlegt eld- flaugakerfi, leggja niður eina raunvem- lega herstöð. Þess vegna er það ákaflega mikilvægt að gera sér grein fýrir því að baráttan gegn kjamorkuvígbúnaðinum hefur og hefur alltaf haft áþreifanleg tilefni. Nú er það staðsetning Pershing II flauganna í Evrópu, samhliða allsherjarendumýj- un vopnabúra Bandaríkjanna, sem hafa kallað á andsvar almennings, og virkar aðgerðir gegn þessu nýja stigi vígbúnað- arkapphlaupsins. Hér á landi hafa það einnig verið áþreifanleg verkefni, sem hafa skapað hreyfingunni brennidepil, hún hefur beinst gegn aðild íslands að árásabanda- Iagi heimsvaldasinna, NATO, og her- stöðvum Bandaríkjanna hér á landi. Pessi barátta hefur verið á undanhaldi hér hin síðustu ár, samtímis mikilli efl- ingu hreyfinga kjarnorkuandstæðinga í Evrópu, Bandaríkjunum og tilurð hreyfinga gegn kjamorkuvígbúnaði austantjalds, sem em óháðar stjóm- völdum þar. Það er mikilvægt að halda áttum við þessar aðstæður, gera sér grein fyrir orsökum þess að illa gengur nú, og móta framtíðarstarfið í ljósi þess. Verkalýðsstéttin á íslandi og banda- menn hennar hafa miklu hlutverki að gegna í hinum heimssögulegu átökum, sem eiga sér brennidepil í Mið-Ameríku um þessar mundir, en snúast um framtíð mannfélags yfirleitt, og hvort því miðar áfram, til sósíaliskra þjóðfélagshátta, eða hvort því hnignar, og herstjórar búnir gereyðingarvopnum stýri mann- kyninu inn í myrkvið valdstjómar og villimennsku. Hér er ekki eingöngu um stuðning við byltingar í öðmm Iöndum að tefla, en einnig hann: Verkafólk á íslandi hefur stutt og verður að styðja betur alþýðu- byltingarnar í Mið-Ameríku. Verkalýðsstéttin á íslandi og banda- menn hennar verða einnig að gera hreint fyrir sínum eigin dymm — reka NÝJA ALÞ JÓÐAHYGG JAN starfslið, t.d. lækna og hjúkmnar- fólk, en ekki síður fólk, sem fer til almennra starfa, hleypur í skarðið fyrir verkamenn úr vamarsveitum al- þýðu, sem kallaðir em til að verja landamæri gegn árásum gagnbylting- arsinnaðra skæmliða á vegum CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna. Hjálparliðamir deila kjömm með alþýðufólki, búa margir saman í skál- um, hádegisverðurinn er ein skjald- baka ásamt baunum og maís, og drykkur með, „sem minnir óljóst á kaffi“. Flugfarið greiða hjálparliðamir sjálfir. Meðal þeirra sem hafa skipulagt ferðir hjálparliða er samstöðunefnd- in með Nicaragua í Austurríki. Að ósk Sambands landbúnaðarverka- manna í Nicaragua óskuðu þeir eftir fólki til að aðstoða við bómullampp- skemna og önnur landbúnaðarverk- efni, í janúar og var þess vænst að 15 manns myndu fara til Nicaragua. En umsóknimar urðu hvorki meira né minna en 300, og nefndin neyddist til að velja úr 100 þeirra til fararinnar. Alþýða Mið-Ameríku er ekki ein í baráttu sinni. Hún hlýtur stuðning víða að, ekki síst frá Kúbu og öðrum verkalýðsríkjum. En það em ekki aðeins ríkisstjóm- ir, sem styðja byltinguna. Fjöldi ein- staklinga um allan heim hefir undan- farið Iagt land undir fót, og farið til Nicaragua til að vinna í þágu bylting- arinnar. Þegar hafa 600 manns farið frá Bandaríkjunum, og alls em nú um 2500 hjálparliðar að störfum í Nicaragua. Hér er bæði um að ræða sérhæft

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.