Spegillinn - 01.12.1954, Blaðsíða 15
SPEGILLINN
1B7
bæjarins. Segir í samþykktinni að stoCna skuli nú þegai tvær
lúSrasveitir fyrir 15—1® meðlimi hvora.
LÚÐRASVEITIR ' gefst. Sagt er, að sumir kennarar láti sér fátt um þetta finnast; segja
á nú að fara að stofna í barnaskólum vorum; tvær til að byrja með, sem er, að börnin blási þegar nægilega á kennarana, þótt ekki sé verið
og ca. 15 börn í hvorri. Svo á auðvitað að auka starfsemina, ef vel að auka þa® með opinberum róðstöfunum.
sízt var ástæða til að vera fyrirfram að amast við Jóni
prófessor Helgasyni sem ræðumanni, úr því að liann var
hér staddur á annað borð — fyrir hreina tilviljun.
Auðvitað var ræða hans sköruleg og margt orðið í tíma
talað, aðeins hefðu heimbjóðendurnir átt að spandera bíl
og sýna honum hin nýju hverfi höfuðborgarinnar, og þá
vitanlega ekki lilaupa yfir Boulevard Bingo og Snobhill,
þótt erlend nöfn beri. Þá hefði liann getað fengið liugmynd
um afdrif einhvers af peningunum, sem liann var að lýsa
eftir í ræðunni og virtust þar alveg hafa gufað upp. Enn-
fremur hefði meira að segja mátt sýna honum einn ný-
sköpunartogara og jafnvel einhver hraðfrystihús og síldar-
verksmiðjuna á Skagaströnd. Að því loknu hefði hann get-
að spurt nafna sinn Sigurðsson um aurana, í sambandi við
hina spurninguna, sem lögð var fyrir hann, og hefði að
líkindum orðið álíka fátt um svör við báðum — eins og
líka til var ætlazt.
Ekki var neitt úr strætóverkfallinu hinn 1. desember,
og þegar þetta er ritað, eru mestar horfur á, að bílstjórarn-
ir verði gerðir að föstum embættismönnum bæjarfélagsins
og settir í launaflokk með slökkviliðsmönntnn og fleiri
góðmn mönnum, svb að allir megi vel við una. Þykir þetta
sniðuglega gert af Gunnari Thór., en það er eins og ég
hef alltaf sagt: svona er að hafa góðan borgarstjóra á hætt-
unnar stundu. Þó að einstöku skóarar sem fundu peninga-
lykt af væntanlegu verkfalli, hafi kannske bölvað eitthvað
svolítið, þá eru þeir svo fáir gagnvart öllum hinum, sem
blessa frammistöðu borgarstjórans okkar.
Það má teljast til nokkurra tíðinda, að Sáphýsingar, sem
gátu sér allmikinn orðstír í merkilegum kosningum, fyrir
fám árum, hafa nú aftur risið úr öskunni og í þetta sinn
í Norræna félaginu og velt sjálfum Guðlaugi Rósinkrans
af forsetastóli þar og sett Gunnar Thor. í staðinn; stefna
sýnilega að því, að allir forsetar á landinu verði af einni
og sömu familíu, og ber slíkt vott um einræðiskennd. Sumir
segja, að þetta eigi að verða nokkurskonar lokaæfing eða
generalprufa fyrir næstu kosningar, og ef svo er, verður
það skiljanlegra, en aðrir halda því fram, að þarna sé bara
verið að reyna til hlítar þolrifin í stjórnarsamvinnunni.
LEIKSKRÁ
L. R. fyrir „Frænkuna" er nú út komin í þriðja upplagi, og þykir
með eindæmum. Oss furðar í rauninni ekkert á þessu og munum því
ekki gera það að frekara blaðamáli. Annað mál er, að vér værum til í
að eyða nokkrum línum, þegar skráin að lokuðu dyrunum fer að koma
út í endurprentun.