Spegillinn - 01.12.1954, Blaðsíða 32

Spegillinn - 01.12.1954, Blaðsíða 32
SPEGILLINN 2D4 Ætluðu að veiða dúfur bak við vínbúðina Nýborg. Gnmsamlegir vefdimenn handteknrr, bunir hmfum 09 töng. — Alltaf ertu með þessa hótfyndni. Þetta sem er róman- tízkt, listrænt og vinsælt óskalag. Maður kemst varla hjá því að læra eitthvað af þessu útvarpi, en svo er það bara eitthvað, sem maður á ekki að læra. Á ég kannske að syngja eitthvað abstrakt? — Þú ert nú víst ekki alltaf svo mikið gefinn fyrir það nonfígúratvíva, sagði Hallbjörg, — En það er tími til að syngja og tími til að þegja, eftir því sem við á, frá menning- arlegu sjónarmiði. — Sér er nú hvað sjónarmiðið og hátíðlegheitin. Jæja. Hvað ætlarðu þá að gefa fleira af jólagjöfum? Mannbjörgu jafngildi Laugarássbyggingarleyfis. Díalín Hitlersbíl. Eg skal ekki trufla upptalninguna. — Það er sosem lítið á það að treysta. Eg veit að dóttur- félag eins og Profit mun gefa góða raun og mikinn arð, en það ætti ekki að rjúfa menningartengslin, svo að þér væri hollt að taka mig alvarlega. Jólagjafalistinn er raun- ar ekki fullsaminn enn, en ég hef hugsað mér að gefa þvotta- ráðskonunni okkar gott listaverk og hef þá augastað á ein- hverju eftir hann Svein, því hans myndir- eru „karlmann- legar . . . og . . . hafa ákaflega sterka náttviru“, eins og maðurinn í Vísi sagði. — Þetta finnst mér hreint ekki svo vitlaust. Ef þvotta- ráðskonan þarfnast endilega einhvers með ákaflega sterkri náttúru í, þá hefur þú í það minnsta gert það litla, sem í þínu valdi stendur, sagði Hálfdán og reyndi að hlæja, án þess að konan heyrði. — Ég mátti sosem vita að það sé til lítils að nota list- fræðileg hugtök í sambandi við þig, en mér verður það einhvernvegin á, að nota livert tækifæri til þess að koma þér í skilning um menningarleg verðmæti, ef hægt væri. IJallbjörg lá hugsi nokkra stund, en ekkert heyrðist frá Hálfdáni. Hann var sofnaður, þreyttur eftir erfiðan dag við að stofna Profit h.f. og tilgangslaust mas um miðja óveð- ursnótt, en það hafði lækkað verulega á kokkteilflosk- unni. Enn var koldimmt úti og rumburnar komu æðandi inn yfir nesið og lömdu jafnvel gluggana á Gróðramel 13, þar sem hjónin sváfu fyrir innan, en tóm flaska stóð á nátt- borðinu. Svo þakka ég þeim sem lásu og óska gleðilegra jóla fyrir þeirra hönd. Bob á beygjunni. Tékknejkt pcAtulín Matar- og kaffistell jafnan fyrirliggjandi í fjolbreytfu úrvali ★ Jon Jóhannesson I Co. Austurstrœti 1 — Sími 5821
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.