Spegillinn - 01.12.1954, Qupperneq 34

Spegillinn - 01.12.1954, Qupperneq 34
ZD6 SPEGILLINN Rakarinn minn sagði við Hanníbal, um leið og hann stóð upp og leit á lirúgu af kratahári á gólfinu: — Jæja, ég vona nú, að þú komir aftur, þegar þetta er farið að vaxa og takir einliverja félaga með þér. Hanníbal gerði það sama og sagt er að höfðingjar hafi fyrir sið: hann glotti og borgaði, skælbrosti til mín um leið og liann fór, en það hafði liann aldrei gert meðan hann var heiðarlega að vinna sig upp í flokkinn, með því að vera flugumaður hjá krata-píslunum. — Ég kem hér bara ekki án þess að þú sért að inn- byrða einhvern flokk, sagði ég og mátti heyra aðdáun í tóninum, ef vel hefði verið hlustað. — Ojæja, það er gott hvað gengur, svaraði hann drýginda- lega. — Ég hygg ég sé á góðum vegi að safna Sameinaða Vinstri hingað á stofuna, að minnsta kosti leit Hermann hér inn í gær, en hann segist langa afskaplega til að vera vinstri maður þó að hann eftir atvikum verði að vera hægri, já, já, svona gengur það, að menn lenda ekki alltaf á þeirri réttu búrhillu. — Ertu ekki alveg hætur að raka íhaldið, þegar allt er fullt hjá þér af rauðum og rauðskjóttum? — Læt ég það vera. Það slæðist alltaf hér inn ein og ein sál, ef hún þarf að flýta sér. Til dæmis rakaði ég Ingólf í gær, áður en hann fór í Blóðbankann. — Hvað er hann að vilja þangað? — 0, þetta vanalega. Þangað fara menn ekki nema til þess að leggja inn. Og svo fá þeir kaffi á eftir. Ingólfur sagðist ekki vilja vera minni en Gunnar Thór., sem hafði þá farið þangað fvrir skemmstu og lét vel yfir viðtökunum. — Hefurðu heyrt, að Blóðbankinn ætlar að fara að stæla kollegana og stofna útbú? — Nei, er það alvara? — Ojá, lieldur betur. Þeir ætla að setja upp útbú á hverri rakarastofu. — Ekki þýddi það mikið lijá mér, sagði rakarinn minn og setti upp frómleikssvip. Andskotinn hafi það ef ég lief séð blóð síðan á lærlingsárunum, en þá var það líka upp til axla, maður. Meistarinn lá á því lúalagi að láta mig raka óvini sína, sem komu á stófuna og hvíslaði þá að mér inn leið, að ég mætti gjarnan vera svolítið skjálfhentur; hann skyldi ekki berja mig fyrir það. En maður passar nú betur upp á svoleiðis, þegar maður er sjálfur orðinn meistari, og hefur engan að skamma nema sjálfan sig. — Ertu búinn að gefa lýsi? spurði ég og snarsló út í aðra sálma. -— Lýsi?? Það rennur nú ekki af manni lýsið, eins og tímarnir eru. En til bvers ætti maður að gefa það? — Veiztu ekki, maður, að þjóðkirkjan ætlar að gefa bágstöddum Öröbum fjögur tonn og það fyrir jólin. — Nei, en annars er ég í frjálslynda og óháða söfnuð- inum, og hann ætti eftir þessu aldrei að gefa meira en 25 gramma glas, svo að ég vona, að ég sleppi billega við það. En því eiga Arabar svona bágt? — En helvízkir Júðarnir, sem alltaf eru að angra þá. Þú veizt nú, hvernig þeir fara með okkur á Kæseruniun og Israelsjeppunum, og þá geturðu farið nærri um, hvernig meðferðin muni vera á næstu nágrönnum, sem auk þess eru sjálfsagt að stríða þeim öðru hverju. En hvað segirðu um nýju hervæðinguna gegn Bakkusi? Aríðandi orð§ending, til fastra áskrifenda SPEGILSINS. I þrjú ár sarnfleytt hefur áskriftarverði SPEGILSINS vcri‘8 haldið óbreyttu, þó meira af vilja ' en mœtti, eins og œ betur hefur komió í Ijós. Veróhœkkun frá nœsta nýári er því óumflýjanleg, og mun nema kr. 15.00, svo að þá kostar árgangurinn kr. 75.00. Geta má þess, «3 í lausasölu kostar hann nú þegar kr. 87.00, og mun þaö ver<$ haldast óbreytt, enn um sinn. En þessa vœntanlegu veröhœkkun getur hver áskrifandi, sem vill, LOSNAÐ VIÐ, me3 lítilli fyrirhöfn, þ. e. me3 því a3 útvega blaðinu EINN nýjan, skilvísan áskrifenda, EYRIR JANUARLOK 1955, en vegna innheimtunnar veröur aö setja þetta úmatakmark. Hver nýr áskrifandi, sem gefur sig fram sjálfur og sendir um leiö nafn annars nýs áskrifanda, nýtur að sjálfsógöu þessara sömu hlunninda. Viröingar fyllst, Afgreiösla SPEGILSINS, Sími 2702 — Reykjavík — Pósthólf 594. 0

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.