Spegillinn - 01.12.1954, Page 40
212
SPEGILLINN
Vettvangur kvenna
Inngangur.
Með réttu hefur það vakið almenna gremju, að Ríkis-
útvarpið skuli hafa komið hinum geysivinsæla þætti, Vett-
vangi Kvenna, fyrir kattar- eða að minnsta kosti útvarps-
ráðsnef. Hvort það var þó ekki huggulegra að sitja á kvöld-
in og ferðast með einhverri kvennfélagsforkonunni um ein-
hver meira eða minna sígræn og suðræn sólarlönd, og ekki
sízt að lieyra, hvað konurnar hefðu fengið að borða og
hvernig hverri einni hefði orðið af því. En það voru þessar
mataruppskriftir sem útvarpið liefur verið farið að hasast
upp á, en það er algjörlega ómaklegt, og ekki konunum að
kenna þó að útvarpsráð sé kannske eitthvað slæmt í maga
og þoli því ekki að heyra mannsins megin nefnt á nafn. Þó
ekki væri nema bara til að stríða því, er bezt að láta þessar
kvennfólkinuhelguðu línur hefjast á einni lítilli uppskrift,
sem vonandi er, að einhver limur ráðsins verði dæmdur
til að éta eftir um jólin.
Lifur á franska vísu.
Ef lifrin er ætluð einhverjum óvini, má svissa til og nota
lungu í staðinn. Þau eru þá skorin í þunnar sneiðar, sem
svo eru lagðar á rauðheita pönnu, og eru þá auðvitað ekki
lengi að brenna og verða að koli; mest 2-3 mínútur. Til
smekkbætis er svo gott að velta þeim upp úr natróni og pip-
ar, síðan má hella yfir þær ofurlitlu af súrum rjóma og
láta þær svo enn malla góða stund á pönnunni. Loks er
þetta borið fram ásamt heitum kartöflum, og ef vel hefur
til tekizt, má heyra brakið undir hverri tönn.
Jóla-rjúpur.
Taka skal hrafn, sem búinn er að lianga svo sem hálfsmán-
aðar tíma, en sé hann ekki fyrir hendi, má auðvitað nota
gamlan hana, sem er í lifanda lífi búinn að oftaka sig í
einhverju hænsnabúinu. Ef erfitt ætlar að reynast að ham-
fletta hann, má reyta hann í staðinn. að minnsta kosti allar
löngu fjaðrirnar, en ekki þarf að taka það svo nauið þó
að eitthvað af þeim styttri og smærri fari með á pönnuna.
Síðan er fuglinn soðinn og steiktur, eins og venja er til,
aðeins þarf húsmóðirin að muna eftir að setja liann á eld-
inn í tæka tíð fyrir jólin, eða sem svarar einum sólarhring
fyrir hvert aldursár hans.
Úr kvikmyndaheiminum.
Skeggið á Gregory Peck kostar 70 milljón ísl. krónur,
miðað við gengi krónunnar okkar á heimsmarkaðnum, 4.
des. 1954. Með því að fylgjast vandlega með krónusveifl-
unum, getið þér svo reiknað út, hvað það kostar, hvaða
tiltekinn dag sem er.
„Skemmtið ykkur í bólinu“, er nafnið á franskri kvik-
mynd, sem fyrir skemmstu barst til Belgíu og var þar tafar-
laust bönnuð, svo að Aðalbjargirnar þar í landi þurftu
Hjá okkur eruð það þér, sem segið fyrir verkum
HVAÐ VANTAR I BtTRIÐ?
Bara hringja, svo kemur það!
SILLI & VALDI
tslendingar!
Klæðið yður íslenzkum ullarfatnaði
Ullarverksmiðjan Framtíðin
Laugavegi 45 — Sími 3061.