Spegillinn - 01.05.1983, Blaðsíða 38
X X
X xf
x x wy X x
Xxx
( X X >
x X X
xxx
: x x >
xxx
X X >
( X
X X
Trúnaðarmál
Ég hef verið neyddur til að
gefa eftirfarandi yfirlýsingu:
Þetta hef ég aldrei sagt við
blaðamann Þjóðviljans:
„Það er alltaf verið að velt-
ast með einhverjar tölur, þetta
er eins og í barnaskóla, nema
hvað menn höfðu þó reikn-
ingsbækur þar. Annars skil
ég þetta ekki. Maðurinn
(Geir) er búinn að hafa um-
boðið í 10 daga og það gengur
ekkert í þessum málum.“
Þetta sagði ég við blaða-
mann Morgunblaðsins. í trún-
aði.
Gunnar G. Schram.
Orðending til
áskrifandans:
Borgaðu áskriftina fyrr en
seinna. Annars ...
Spegillinn.
Þjónusta
Ég vil taka það skýrt fram
að ég er ekki eini hæfileika-
maðurinn í þingflokki Alþýðu-
flokksins. Þar eru einnig Kar-
vel Pálmason og jafnvel mætti
til nefna Jón Baldvin.
Kjartan Jóhannsson.
Hef efnahagsráðstafanir í
sérflokki á lager. Kjaraskerð-
ingarleiðir, gengisfellingar,
tillögur að atvinnuleysi og stór-
kostlegum eignatilfærslum.
Pantanasími Seðlabankans er
20500.
Jóhannes Nordal, doktor
í félagsvísindum.
Hef til sölu margskonar
erlendan klæðnað úr ull, leðri
og rússkinni. Óska jafnframt
eftir að kaupa ullarpeysur og
vel með farin Kórónaföt.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Verslun og viðskipti
Fjórir í poka. Reyfarakaup.
Kjúklingabændur.
Hringormanætur
fyrirliggjandi. Ennfremur
hringormaplokkunarvélar
með eða án fisktætara,
garnadráttarvélar og
pökkunarmaskínur.
Asíufélagið.
Flyt inn broslauka,
tannhvítti,
hrukkueyðismyrsl. Pantið
hjá mér heima eða hjá Þór í
Hæstarétti.
Ragnhildur Helgadóttir.
Óska eindregið eftir
ráðherrastöðu nú þegar.
Áskil mér rétt til að taka
hvaða tilboði sem er og hafna
engu.
Jón Baldvin.
Fundir & mannfagnaðir
Undirrituð viljum taka það
skýrt fram að við sóttum ekki
um stöðu yfirmanns á rás 2
við Ríkisútvarpið, þrátt fyrir
fjölda áskorana.
Ennfremur er það rangt að
við höfum beðist
nafnleyndar.
Haraldur Jóhannesson,
hagfræðingur.
Bragi Jósefsson, doktor.
Bryndís Schram,
sjónvarpsstjarna.
Auður Styrkársdóttir,
blaðakona.
Stjórnarmyndunar-
viðræðurnar hjá Geir
Hallgrímssyni fóru út um
þúfur vegna þess að hann
neitaði að viðurkenna að ég
er fjölgáfaðasti og hæfasti
flokksformaður í landinu og
ætti því skilyrðislaust að vera
forsætisráðherra hver sem
stefna stjórnar minnar yrði.
Fyrir ágæti mínu hef ég
bókaðar samþykktir þing-
flokks Alþýðuflokksins,
(fjórirmeð — tveirsátu hjá)
en Geir ekki. Þar á sést
munurinn.
Kjartan Jóhannsson.
Ýmislegt
Það er rangt sem gengur
fjöllum hærra a ég hafi reykt
hassið hennar mömmu. Ég
hef aldrei reykt hass í svo
miklum mæli. Ég er bara
svona.
Jóhanna Sigurðardóttir,
alþm.
Miði er möguleiki.
Gjaldheimtan.
Óskum eftir að leigja mjög
litla skrifstofu, miðsvæðis í
Reykjavík. Til sölu á sama
stað rúmgott húsnæði að
Hverfisgötu 8-10. Húsnæðið
er upplagt fyrir öfluga
stjórnmálastarfsemi.
Ennfremur er til sölu á sama
stað skristofuhúsgögn,
dagblað, bréfsefni og 3 bindi
af Karl Marx.
Alþýðuflokkurinn.
Vinna og ráðningar
Okkur íslendinga vantar
„Járnfrú". Hef eina til taks.
Þór Vilhjálmsson,
hæstaréttardómari.
Ég vil verða ráðherra.
Ég ætla að verða ráðherra.
Ég skal verða ráðherra.
Albert.
Vorhreingerningar
Hefði Alþýðuflokkurinn
haft einhvern úrvalsmann
sem forsætisráðherraefni,
hefði mátt ræða þann mögu-
leika að setjast í stjórn undir
hans forsæti. En því er ekki
fyrir að fara.
Steingrímur Hermannsson.
Frú Aslaug Ragnars,
blaðamaður og rithöfundur,
sem ég hef veitt árleg laun úr
starfslaunasjóði Iistamanna
er ekki eiginkona mín. Við
erum skilin.
Mangi Þórðarson,
form.
úthlutunarnefndarinnar.
Einkamál
Ef einhver hefur misskilið
orð mín varðandi afvopnun-
armál skal það áréttað hér og
nú, að ég er frekar hlynntur
friði í heiminum.
Séra Pétur Sigurgeirsson,
biskup.
Af gefnu tilefni vil ég taka
það fram, að þær
smáauglýsingar sem birtust í
síðasta tölublaði Spegilsins
og eignaðar voru mér, voru
ekki skrifaðar af mér og ekki
heldur þessi sem hér fylgir:
Grísir gjalda.
Gömul svín valda.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Af gefnu tilefni viljum við
taka fram að við erum ekki
„gömul svín.“
Svavar Gestsson
Guðmundur J. Guðmundsson
Guðrún Helgadóttir.
Sigurhátíð Jóns Baldvins
Hannibalssonar og Bryndísar
verður haldin í Broadway á
laugardag fyrir hvítasunnu.
Flóðhesturinn Júnó og
Skolli mæta.
Hafið með ykkur
gæludýrin og hvers kyns
kvikindi önnur.
Fh. undirbúningsnefndar,
Styrmir Gunnarsson,
ritstjóri.
< X x
X X >
~7---R---7---7--5?—5T"
XO0 X X X
( OOx X X