Spegillinn - 01.05.1983, Blaðsíða 9

Spegillinn - 01.05.1983, Blaðsíða 9
Fengin að láni — án leyfis — úr Hara Kiri. Svo var árvekni yfirkjörstjórnar fyrir aö þakka aö upp komst um meiriháttar kosningasvindl við alþingiskosningarnar á dögunum. Rannsóknarblaðamaður Spegilsins og formaður yfirkjörstjórnar komu upp um metorðastreðara nokkurn, sem var orðinn úrkula vonar um að komast í framboð á vegum stjórnmálaflokkanna hafði gripið til þess örþrifaráðs að smygla sér inn á kvennalistann. Þykir rétt að birta ekki nafn þessa ólánsmanns að svo stöddu þar sem ekki hefur náðst í alla ættingja hans. Vegna þessa máls hefur landskjörstjórn ákveðið að tekin verði upp kyngreining við allar kosningar í framtíðinni og slíkt bundið í lög. Þótt hæst hafi borið hið ósvífna uppátæki karls þess sem smyglaði sér inn á kvennalistann var það þó ekki einasta kosningasvindlið. Eins og meðfylgjandi myndir úr Morgunblaðinu sýna, en þær voru teknar á kjördag, var mjög misjafnt hvað frambjóðendur fengu marga atkvæðaseðla til ráðstöfunar. Jón Baldvin er til dæmis með fulla vasa af atkvæðaseðlum á sama tíma og Ólijó fékk engan seðil; og ekki virðist ætla að verða nokkurt lát á Albert við að troða atkvæðum í kjörkassan. Eins og fram kemur annars staðar í blaðinu hefur Spegillinn farið fram á það við forseta að hann fyrirskipi aðrar kosningar sem allra fyrst, bæði vegna þessa mikla kosningasvindls svo og vegna kolvitlausra úrslita. 9

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.