Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1961, Qupperneq 6

Fálkinn - 07.06.1961, Qupperneq 6
Sveinn Sæmundsson ræðir við Stefán Jónasson, skipstjóra á Akureyri: TIL SJOS ÞEGAR SAGA atvinnuveganna á ís- landi verður skráð er verðugt að þátt- ur þeirra manna, sem um aldamótin síðustu ruddu nýjum atvinnuháttum braut, og sem margir hverjir af stór- hug og dugnaði brutust til efna og áhrifa, skipi þar heiðurssess. Stefán Jónasson skipstjóri á Akureyri er einn þeirra, sem setti hvað mestan svip á útgerð frá Norðurlandi um tíma, reyndi fyrstur nýja atvinnuhætti, svo sem að fara héðan til vetrarsíldveiða við Noreg o. fl. Stefán, sem í haust verður 80 ára, býr ásamt konu sinni á efstu hæð í húsi sínu Strandgötu 43 á Akureyri. Þaðan er víðsýnt: Úr stofuglugganum sér hann allt sem fram fer á höfninni og úr Norðurgluggum út á Eyjafjörð. „Stefán er mesti heiðurskarl,“ hafði velmetinn Akureyringur sagt við mig er ég innti eftir þessum aldna skipstjóra og framkvæmdamanni, og hann bætti við: „Eflaust getur hann sagt þér margt skemmtilegt frá liðnum tímum.“ Með þetta veganesti gekk ég á fund Stefáns Jónassonar. GOLÞORSKUR Á BRODDSTAF. — Jú, Stefán heiti ég, rétt er Það. Komdu inn fyrir, góði minn. Hins veg- ar hef ég fátt að segja, — fátt, sem er í frásögur færandi. — Ert þú Akureyringur? — Já, það er að segja ég fæddist á bæ hérna rétt hjá og flutti hingað fimm ára gamall. Faðir minn stundaði sjómennsku framan af en síðar aðallega daglaunavinnu. Akureyri hefur tekið miklum breytingum síðan. Vinna var þá aðallega við verzlanir staðarins. Stundum stopul. Útræði var talsvert hérna þá. Fiskurinn líka meiri en nú, og sérstaklega í ár, en loðnan hefur ekki komið inn í fjörðinn. — Hvað er þér minnisstætt frá ung- lingsárunum? — Það er auðvitað ýmislegt, en fæst sögulegt. Einu sinni vorum við tveir fram á Oddeyri, víst báðir ellefu ára. Við vorum með dorg. Ég þurfti að skreppa hérna inn fyrir, rétt þar sem olíutankarnir eru núna, og þegar ég kom þangað, sá ég rígaþorsk í flæðar- málinu, heila tprfu, sem var að eltast við loðnuna, en hún var alveg uppi í landsteinum. Nú voru góð ráð dýr. Mér datt fyrst í hug að stela fiskistöng frá karli, sem átti bát þarna rétt hjá og hét Jón Halldórsson. Þorði samt ekki af ótta við að hann yrði reiður, en mundi svo allt í einu eftir brodd- staf, sem var til heima. Ég hljóp heim í spretti og sótti stafinn. Óð út í flæðar- málið, og þorskarnir syntu fyrir ofan mig. Ég stakk þá og henti í land. Þetta gekk eins og í sögu. Ég fékk stóra hrúgu af boltafiski á skammri stundu. Svo náði ég mér í pramma og fyllti hann. — Hvað varð þér úr þessum óvænta afla? — Maður spyrti þetta upp og seldi sveitamönnum. Það voru vöruskipti. Bændur komu með smjör í kaupstað- inn og aðrar landbúnaðarvörur og fengu sjómeti i staðinn. Eitt pund af smjöri var jafnvirði lýsipunds af signum fiski. RÓIÐ ÚR HRÍSEY. — Hvenær gerðist þú útgerðarmaður? — Fyrsti báturinn, sem ég eignaðist, var fjögurra manna far. Við rerum frá Hrísey. Ég var þá innan við tvítugt. Átján ára. Faðir minn var með á bátn- um í Hrísey. — Svo hafa skipin farið stækkandi og útgerðin vaxið? — Já, um aldamótin keypti ég segl- skipið Helenu, sem var tuttugu og tveggja tonna kútter. Ég keypti hana af Jóni Norðmann og fékk hana alla út á krít. Nei, maður gat ekki vaðið inn í bankana í þá daga. Ég átti að borga þúsund krónur á ári, en heildar- verðið var þrjú þúsund krónur. — Hvaða veiðarfæri voru notuð við síldveiðar um þetta leyti? — Við vorum með reknet og söltuð- um mestan hluta aflans um borð. Helena var seglskip og það hefði tekið of lang- an tíma að fara inn eftir hverja lögn. Venjulega höfðum við þetta þannig, að við söltuðum úr tveim til þrem lögn- um, og þá voru tunnurnar sem við höfðum með okkur, orðnar fullar og saltið búið. Síðan, eftir að vera búnir að fá á annað hundrað tunnur af ferskri síld í viðbót, sigldum við inn og tókum þá í leiðinni tunnur og salt. VÉLSKIP. Á sílldarvertíð 1908 lágum við í höfn á Siglufirði. í þá daga var lítið um bryggjupláss og við lágum úti á leg- unni. Norðmaður, sem var á Helenu með mér, kom um borð eina nóttina og var við skál. Hann sagði mér, að nýlegt norskt skip, sem líka var á síld- veiðum, væri til sölu og að ég skyldi kaupa það. Ég hafði ekki mikil pen- ingaráð og tók þessu fjarri. Norsarinn hélt áfram að nudda um þetta, og eftir nokkra daga fór að koma í mig hugur að athuga þetta nánar. Skip þetta hét Norðurljósið, og átti að kosta níu þús- und krónur. Norsarinn minn sagði, að ég skyldi láta Helenu upp í kaupverðið og borga sex þúsund krónur í pening- um, og mundi hann sjá um að ég fengi góðan greiðslufrest. Svo ólíklegt sem þetta var, gengu kaupin saman á þessum grundvelli. Norðurljósið var seglskip en með hjálp- arvél. Ég átti að borga þúsund krónur um leið og kaupin færu fram og aðrar þúsund krónur í marzmánuði næsta ár. Ég átti létt með að borga fyrstu pen- ingana, vegna þess að við vorum á síld- inni, en þegar kom fram í marzmánuð átti ég enga peninga og útlitið var ekki gott. Ég setti í mig kjark og fór á fund Friðriks Kristjánssonar bankastjóra og spurði hann hvort það væri nokkur leið að hann lánaði mér eitt þúsund krónur til að halda skipinu. Hann lánaði mér þetta með orðinu og án þess að ég Þyrfti að fá ábyrgðarmenn. Það þótti mér vænt um. — Þekktir þú nokkuð til vélfræð- innar? — Nei, ekki hið minnsta. Samt fór svo, að ég varð allfær í þeim fræðum. Við fórum til Akureyrar um haustið og þar tók ég alla vélina sundur, stykki fyrir stykki, og raðaði þessu í kring um mig og reyndi að átta mig á til hvers hver hlutur væri. Þetta gekk ágætlega, og eftir það vissi ég hvernig þetta átti að vera. — Hvenær og hvar lærðir þú sigl- ingafræðina? — Veturinn 1910—1911 var ég í Stýrimannaskólanum í Reykjavík og lauk prófi um vorið. Fékk þá réttindi til að sigla skipum allt að 600 lestum „Við hittumst niður á dekki. Við fundum eflaust bæði, að við þurftum mikið að tala saman og settumst á kistu á þilfarinu. Tunglskinið speglaðist í öldufallinu... 6 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.