Fálkinn - 30.08.1961, Qupperneq 3
Kaffi er kjördrykkur, en reynið einnig
JOHNSON & KAABER
KAFFI - UPPSKRIFT NR. 4
FLJÓTGERÐUR KAFFIDESSERT.
1 dl rjómi
1 msk. flórsykur
1 Yz msk. brennt og malað kaffi
12 stk. marengs-smákökur.
Þeytið sykurinn saman við rjómann og hrærið kaffið út í.
Myljið marengs-smákökurnar og setjið rjóma og marengs á
víxl í frekar djúpa dessertskál eða glös. Látið standa í ca. 1
klst. í kæliskáp eða á öðrum köldum stað. Um leið og þetta
er framreitt, er stráð ristuðum möndluspónum yfir. (Möndl-
urnar afhýddar og skornar langsum og ristaðar ljósbrúnar
á þurri pönnu).
★
JOHNSON & KAABER
KAFFI - UPPSKRIFT NR. 5
RJÓMARÖND MEÐ KAFFIBRAGÐI.
1 dl mjög sterkt lagað kaffi
2 egg
4 dl rjómi
100 gr sykur
6 blöð matarlím
Dálítið af rifnu súkkulaði.
Setjið matarlímið í kalt vatn og látið liggja í ca. 20 mínútur.
Hrærið saman á meðan í tvennu lagi: 1) eggjarauðurnar
og helming sykursins; 2) rjómann og afgang sykursins. Hrær-
ið kaffið saman við eggjarauðurnar og sykurinn og bætið
rjómanum (stífþeyttum) og matarlíminu (sem hefur verið
uppleyst yfir gufubaði á venjulegan hátt) út í. Hrærið vel
frá botninum, þegar matarlímið er sett út í, og setið það
allt út í í einu. Er rjómaröndin byrjar að stífna, eru stíf-
þeyttar eggjahvíturnar settar út í. Látið í skálina eða ílátið,
sem framreiða á í, og skreytið með rifnu súkkulaði. Borið
fram með smákökum.
D.Johnson &Kaaber %
Vikublað. Otgefandi: Vikublaðið Fálk-
inn h.f. Ritstjóri: Gylfi Gröndai (áb.).
Framkvæmdastjóri Jón A. Guðmunds-
son. Rltstjórn, afgreiðsla og auglýs-
ingar: Hallveigarstig 10, Reykjavík.
Sími 12210. — Myndamót: Myndamót
h.f. Prentun: Félagsprentsmiðjan h.f.
GREINAR:
Elskhugi Katrínar miklu.
Skemmtileg frásögn um ásta-
mál þessarra frægu konu .. Sjá bls. 6
íslenzkur fáni á Rockefeller
Center. Loftleiðir flytja skrif-
stofur sínar í ný og glæsileg
húsakynni í miðstöð athafna-
lífs New York borgar .... Sjá bls. 10
Sinfónía Skurðanna. Rætt við
tvo káta hljómlistarmenn . . Sjá bls. 18
SMÁSÖGUR:
Villt blóm. Saga um ástir og
ævintýri í íslenzkri sveit . . Sjá bls. 12
Dans í dómkirkju. Spennandi
smásaga eftir E. M. P. Dare Sjá bls. 16
Litla sagan .............. Sjá bls. 16
FRAMHALDSSÖGUR:
Krá hinnar sjöttu hamingju .. Sjá bls. 24
Eldflugan, framhaldssaga eftir
Frederik Marsch........... Sjá bls. 24
ÍSLENZK FRÁSÖGN:
Einar prestlausi, Þorsteinn frá
Hamri skrifar skemmtilega
frásögn um sínkan sáluhjálp-
ara ...................... Sjá bls. 8
ÞÆTTIR:
Dagur Anns skrifar Reykjavík-
urbréf ................... Sjá bls. 22
Astró spáir í stjörnurnar .... Sjá bls. 31
Kristjana skrifar kvennaþátt Sjá bls. 20
Auk þess Pósthólfi, Glens og
margt fleira.
Forsíðumyndin er tekin ný-
lega á götunni og er af ungri
stúlku, sem leitar skjóls und-
ir regnhlífinni sinni. Okkur
fannst hún tímabær þessi
mynd, þar sem óðum haust-
ar að og regnið mun þá jafn-
vel steypast í enn ríkari
mæli niður. (Ljósm. Oddur
Ólafsson).