Fálkinn


Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 18

Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 18
„Þetta er hálfgerð frat hitaveita, héraa er tnaður rekinn áfram með harðri hendi og eiginlega er atdrei timi til þess að tala..." Hér standa þeir Ömar Ragnarsson og Jón Ásgeirsson með hljóðfæri sitt. Uppi á Flókagötu, þeirri ágætu og fallegu götu, er leikinn fleygafúga frá morgni til kvölds. Jón Ásgeirsson tón- skáld leikur á loftbor eða fleyg, en Óm- ar Ragnarsson gamanvísnasöngvari syngur' undir. Það er sjaldgæft að hitta á tvo ágæta listamenn við svo kyndug- ar aðstæður. Rautt hár flaksast til í vindinum, þeir eru báðir rauðhærðir, Jón og Ómar. Okkur dettur helzt í hug, að fransmenn hefði skorið þá í beitu hér áður fyrr, ef þeir hefðu getað nælt í þessa fjörkálfa. Við hittum þá að máli sinn góðviðrisdag í júlí, þá hafði „kall- inn“ skilið þá að, við vitum ekki hvers vegna, þeir hafa ef til vill verið of vegna. Þeir hafa ef til vill verið allt of músikalskir fyrir fólkið í Flókagötu. Jón var kominn upp í Bólstaðarhlíð, en Ómar var kyrr á sama stað og áður. — Hér get ég æft mig í friði, þegar ég er á bornum, það heyrir nefnilega enginn neitt, varla ég sjálfur, sagði Óm- ar og strauk af sér rykið. — Hvar er Jón, vinnur hann ekki hérna með þér? — Hann er einhvers staðar að grafa fyrir heimtaug. Annars er honum mikil fróun í því að vera á bor, sérstaklega þegar hann sér lögulega skvísu ganga framhjá. Þá setur hann loft á borinn svona með rykkjum, trútt, trútt og gæt- ir síðan að hvort skvísan lítur við. Ef hún gerir það tekst hann allur á loft af fögnuði. Eitt sinn gerði hann þetta með borinn, ég lá þá uppi á skurðbakkanum og svaf. Trútt, trútt, alls þrisvar sinnum og viti menn, skvísan lítur við og brosir. Jón tókst allur á loft af fögnuði, hann er 108 kíló. Svo vakti hann mig. 'Ég lét þetta mig engu skipta, en þegar ég kom heim, sagði kærastan mín við mig: — Óskaplega er hann kammó, þessi vinnu- félagi þinn, Þessi skvísa var þá engin önnur en kærastan mín. — Þú ert ekki á bor núna, hvar er borinn? — Maður getur ekki alltaf verið að æfa sig, við erum svona að fokka í hinu og þessu. En komdu, við skulum hitta Jón. Við göngum þarna yfir moldarhrúg- urnar, Ómar stikar föstum skrefum og stekkur yfir skurðina eins og hindrunar- hlaupari á vellinum. Þetta er þó nokkur spölur að fara, því að Jón er efst í göt- unni, einn að moka mold. — Þetta er hálfgerð frat hitaveita, maður er bara rekinn áfram með harðri hendi, ,,kallinn“ er alls staðar á gægjum, segir Jón um leið og við komum. — Það var allt öðruvísi hérna í gamla daga, þá hafði maður það rólegt. — Er það satt, sem Ómar segir, að þú sért 108 kíló á þyngd? Á

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.