Fálkinn


Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 8

Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 8
EINAR PRESTLAUSI Á sjötta tug 18. aldar stundar nám í Hólaskóla ungur maður sem er á ýmsan hátt meiri fyrir sér en æskilegt þykir. Námsgáfur hefur hann ágætar, og er slíkt að sjálfsögðu ekki lastað; hraust- ari er hann og glímnari en aðrir skóla- sveinar, og sá eiginleiki hefur laungum verið í hávegum hafður á voru landi; og hvorttveggja þetta væri auðvitað blessunarlegasta guðsgjöf á mennta- setrinu ef ekki fylgdu þau ódæmi sem raun er á; svo hrekkjóttur og illgjarn er pilturinn að eingínn getur við hon- um séð. Og fyrst þegar við höfum sög- ur af honum í skólanum stundar hann það gráa gaman að kveikja í hárinu á félögum sínum meðan þeir sofa. Skólakennararnir líta að sjálfsögðu straungum augum á atferli þessa baldna nemanda, en geta þrátt fyrir allt ekki annað en viðurkennt gáfur hans og námshæfni; enda fær hann í hvívetna meðmæli þeirra í þeim efnum. En piltar hugsa honum þegjandi þörfina. Síðan líður að þeim tíma er skelmir þessi útskrifast með ágætum og býst til heimferðar; það er árið 1754. Hann fer í sín beztu klæði. Skólasveinar, félagar hans, hafa víst eitthvað í huga, því þeir leiða hann úr hlaði með mikilli viðhöfn, allir sem einn. Einn geingur á undan og teymir hest hans, en þeir leiða pilt á eftir og sýngja lofsaungva á latínu. Hann lætur sér þetta vel lynda. En við traðargarðinn er kálgarður sem veitt hefur verið í vatni, svo þar er leðja djúp; og þegar prósessían líður þar hjá sem forin er dýpst, þá verða skjót um- skipti. Einn félaganna þrífur hatt stráks og varpar útí forina en hinir fylgja fast eftir og steypa kvalara sínum á kaf. Það fyrsta sem hann ,sér þegar höfðinu skýt- ur upp er það að nokkrir piltar siga hundum á reiðskjóta hans, en allur þorri þeirra stendur í röð á bakkanum og sýngur níðljóð á latínu. Og hvort sem honum líkar betur eða verr, þá er það þarna sem hann biður fyrirgefníngar á brotum síhum og þykir fótur sinn fegurstur er hann sleppur burt og röltir í humátt á eftir hesti sínum. ★ Það var séra Eiríkur Hallsson í Grímstúngu, vinsæll maður og vel kynntur, sem árið 1754 tók við Einari syni sínum úr Hólaskóla. Einar hefur lítillega verið kynntur nú þegar, en eina sögu úr æsku hans mætti segja til viðbótar því hún sýnir hve krókurinn beygist snemma til þess sem síðan einkenndi hann: þegar fátæklíng- ar komu að Grímstúngu og báðu um matarbita, var það siður Einars að koma með matarglefsu og rétta til þeirra. En þegar hinn snauði með feginleik í aug- unum bjóst til að taka við bitanum, þá sagði piltur: „Ójá, maður; það er hérna.“ Að svo mæltu át hann matinn sjálfur. Séra Eiríkur fór þess brátt á leit við biskup að hinn nýbakaði stúdent feingi prestvígslu. Biskup var hinsvegar treg- ur til jáyrða. En þegar prestur hafði nauðað um þetta lánga hríð, svaraði biskup þeim orðum er síðan þóttu sann- mæli: „Hempuna skal hann fá, en hrekkvís verður hann alltíð.“ Árið 1759 varð Einar svo aðstoðar- prestur föður síns, þá rúmlega tvítug- ur, og þegar séra Eiríkur dó 1777, fékk Einar Grímstúngu eftir hann. í 135 ár höfðu forfeður hans verið prestar í Grímstúngu hver eftir annan og jafnan verið mikils virtir. En „séra Einar var ólíkur forfeðrum sínum, hjákátlegur í mörgu og sérlyndur og ekki þokkasæll af sóknarfólki sínu, hrekkjamaður og illmenni — en gáfaður var hann“. Einar fékk þeirrar konu er Þóra hét, dóttir Jóns prests Sigurðssonar á Kvía- bekk, væn kona. Einar var auðugur að fé. en nízkur svo mjög að með fádæm- um var. Við sjálfan sig sparaði hann ekkert, en konu, börn og hjú sín svelti hann. Af hjónabandinu er það stytzt að segja að Þóra festi ekki yndi með Einari og fór að Haukagili til ríks bónda þar, Ólafs Jónssonar, og þar andaðist hún. f móðuharðindunum 1784—85 fór margt húngraðra förumanna um land, en kæmi einhver slíkur að Grímstúngu, var viðkvæðið hjá séra Einari: „Átt þú hér nokkurt kvígildi á leigu- stöðum? Nirfill í Koti, Ríki mann í Hvammi, Heimski Bjarni í Túngu,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.