Fálkinn


Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 19

Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 19
Ómar semur borljóð sumardaginn langan, en Jón býr til fleygafúgu við textann. — Ég var nú ráðinn upp það. Þegar ég réði mig, sagðist ég heita Jón Ás- geirsson og vera 108 kíló, og ég var ráðinn upp á það. — Finnurðu einhverja fróun í því að vera á bor? Eða svo segir Ómar. — Það er allt undir samstillingunni komið, hve bergið undir er massivt og svo verða fallegar skvísur að ganga framhjá öðru hverju til að auka á dá- semdir tilverunnar. Svo þjálfar þetta líka eyrun, maður fær þetta fína músik- eyra. Er það ekki Ómar? — Það finnst mér, segir Ómar og glottir. — Annars erum við að semja sym- fóníu skurðanna, nei, borljóð. — Eigum við ekki að kalla hana fleygafúgu, skýtur Ómar inn í. Ég sem textann, en þú lagið. — Nú veit ég hvernig við höfum lag- ið, fyrst kemur skerandi loftborshljóð. Það táknar vinnugleðina. Síðan hægari kafli, trútt, trútt, með sprettum, svo fellt inn í þennan kafla dálítið blístur. Það er þegar skvísan gengur hjá og dill- ar sér í mjöðmunum. Þá byrjar Ómar að syngja. Svo kemur að lokum há- punktur verksins, ógurlegur tryllingur á fleygnum. (Verkstjórinn er þá kominn til að líta eftir vinnubrögðunum). — Eigum við ekki að hafa það frekar antiklímax, verkstjórinn stoppar vélina og segir hálf ólundarlega, segir Ómar: -— Jæja, strákar, þá er komið kvöld. — Ef þú vilt fá að vita eitthvað um músík, þá skaltu bara spyrja mig, ég hjálpaði t. d. undirleikaranum hans Óm- ars, hann gat ekki náð vissum punkti í laginu Mér er skemmt, ég sagði Óm- ari, að láta hann skrifta yfir 4/4 í 6/8. — Annars átt þú Ómar að fara að breyta um lög, þú átt að syngja dægur- lög, sem líkjast franska Rondóinum. — Eru þessi dægurlög ekkert nema frygðarhljóð og kynæsandi hljómar? — Lítið annað, þetta er hörmung að hlusta á þetta andskotans gaul. Við beinum nú samtalinu inn á aðr- ar brautir og í þeim svifum kemur verk- stjórinn, og Ómar er hálfhræddur um að hann skipi honum á sinn stað að vinna sitt ákveðna verk. — Láttu ekki svona, heldurðu hann leyfi ekki frægasta manni flokksins að tala við blaðamann, segir Jón. — Ég er ekkert frægur. — O, jæja, ég læt nú vera. Þegar smá- stelpur, svona 10 til 11 ára ganga fram- hjá þér, þá líta þær á þig: — O, gvuð — svo kafnar allt í hvísli og flissi. Það er eins og þær langi til að prjóna aftan við þetta! — Ó, gvuð, hvað hann er sætur. — Ég er nú vanur að segja blessuð- um börnunum, að ég heiti Ólafur Thors eða Hermann Jónasson, þegar þau spyrja mig að heiti. Þá verða þau svo dolfall- in, að þau spyrja ekki meir þann dag- inn. Svo koma þau askvaðandi daginn eftir og segja: — Þú ert hann Ómar hennar Botníu. — Ha, ha, Ómar, sem er trúlofaður henni Botníu. — — Annars er það ekki svo slæmt, en hitt er verra, að ég trúlofaðist skömmu seinna heldur en ég söng þennan texta inn á plötu. Og nú er aumingja kær- astan mín kölluð Botnía víða, þar sem hún kemur, þó að hún eigi ekki nema helminginn af líkamsþunga Botníu heit- innar. — — Það er annar maður hér í flokkn- um, sem rauðhærður er líkt og Ómar. Hann segist aldrei bíða þess bætur að hafa verið kallaður Ómar Ragnarsson. Krakkarnir hafa tekið hann stundum í misgripum fyrir Ómar, segir Jón. — — Hér gerist margt kyndugt, — segir Jón, ég get sýnt ykkur dálítið afar merkilegt eða jafnvel fram úr hófi ó- smekklegt. Einn strákanna var að grafa fyrir heimtaug í húsi einu hérna í Ból- staðarhlíðinni. Hann grefur undir hellur nokkrar, sem sorptunnurnar stóðu á. Hann tekur nú eftir, að á hellunum eru einhverjar áletranir og fer að lesa. Þetta eru þá legsteinar. — Jón leiddi okkur að staðnum og sýndi okkur steinana. — Finnst ykkur þetta ekki ósmekk- legt? Við tókum niður hjá okkur áletran- irnar og þar á stóð: C. 20501. WO. I. (RSM) A. B. Currie Canadian infantry corps. 3rd January 1941. Age 34. Rest in peaee. Framh. á bls. 27. ÍNÍA SKURÐANNA fXlkinn 19

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.