Fálkinn


Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 33

Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 33
Hinn nýi elskhugi drottningarinnar var einstakur húðarletingi og hafði eng- in áhugamál önnur en hirða launin sín sem „persónulegur aðstoðarforingi". — Hann hét Wassiltsjikoff. Slíkur keppi- nautur var ekki hættulegur Orloff. Árið 1772 hafði Katrín sæmt Orloff fursta- tign. Titillinn átti að vera sárabót fyrir missi friðilsstöðunnar. Orloff varð nú að horfa upp á, að annar maður hefði réttindi þau — og skyldur, — sem hann hafði haft áður. En hann tók því með jafnaðargeði og náði brátt sömu völdum og hann hafði haft áður. Hann varð einkavinur nýja elskhugans og virtist ekki skilja, hversu hlægilegur hann var í þeirri aðstöðu. Orloff gerðist nú at- hafnameiri en nokkru sinni fyrr. Hann eyddi kynstrum af fé, hann var rudda- legri, íburðarsjúkari og hégómlegri en nokkru sinni áður. Katrín lét sér þetta lynda og jós í hann gjöfunum. Það var eins og hún vildi sýna, að þakklæti hennar væri sterkara en ástríðan. Til æviloka var það sannfæring hennar, að Orloff væri göfugasti, bezti og greindasti maðurinn á jarðríki. Árin liðu og Orloff lifði sama hams- lausa lífinu í St. Pétursborg, þar til refsidómurinn féll. Fjörtíu og þriggja ára varð hann ástfanginn af gullfallegri nítján ára gamalli stúlku, ungfrú Zino- vieff, sem raunar var skyld honum. Og hér var ekki um neina skyndiást að ræða, heldur hreina og djúpa tilfinn- ingu, sem gagntók hann og gerbreytti lífi hans. Hann varð skyndilega allt ann- ar maður og lifði eingöngu fyrir ást sína. Þau giftust og fluttust til Sviss. En fimm árum síðar lézt hún þar úr berklaveiki. Þegar Orloff kom aftur til St. Péturs- borgar var hann óþekkjanlegur. Hann var lamaður af sorg yfir konumissinum. Af sorginni og svalli fyrri ára fékk hann heilasjúkdóm, sem hann barðist við í tvö ár. Hann varð vitskertur og í vit- firringunni lifði fortíðin í hug hans. Hann fékk æðisköst og þóttist sjá keis- arann sáluga ógna sér . Þá öskraði hann af hræðslu, hljóp og faldi sig og makaði sig í framan með því, sem hendi var næst til þess að gera sig óþekkjanlegan. Loks frelsaði dauðinn hann frá þján- ingunum 1783, Hann dó einmana, hrelldur og yfirgefinn. Og þó ekki yfir- gefinn. Þegar Katrin drottning frétti andlát hans varð hún yfirkomin af sorg. Hún fékk hitasótt og lagðist fyrir. í hennar augum -— en aðeins hennar -— stóð ávallt einhver undraljómi af Orloff. Hann var fegurðin og krafturinn. Hann var ein af hetjum endurfæðingar- tímabilsins, sem lifði, syndgaði og dó í fegurð. Hún vafði draumahjúp um þetta úrþvætti og lét sér aldrei skiljast, að hann hafði aldrei haft til að bera glæsimennsku endurnýj unartímabilsins, og að ljóminn, sem henni fannst stafa af honum, var ekki annað en endurskin- ið rJ öllum gullmilljónunum, sem hún hafði sóað í hann. STIÖRNUSPÁIN Hrútsmerkiö. Það mun borga sig að breyta svolítið út af hinum daglega vana í þessari viku og láta til skarar skríða, því að það ríður á að grípa gæsina meðan hún gefst. Ef til vill munuð þér kynnast nýju og skemmtilegu fólki, sem mun verða yður mikil stoð, er fram líða stundir. Nautsmerkið. Reynið að leiðrétta misskilning þann, sem hefur verið milli yðar og náins vinar. í þessari viku munu þér öðlast dálitla uppbót á laun yðar. Á föstudag skuluð þér ákveða hvort þér ættuð að framkvæma ákvörðun þá, sem þér hafið lengi haft í huga. Tvíburamerkið. Þér skuluð gæta varúðar gagnvart perseónum, sem eru að smjaðra fyrir yður. Dálítið ástarævintýri mun lífga upp hinn gráa hversdagsleika. Ef þér réttið persónu nokkurri hjálparhönd, munu þér eignast þar vin alla ævi. Krabbamerlcið. Þrátt fyrir það að dálítið atvik hafi sett yður úr jafn- vægi, skuluð þér ekki vera hrædd við afleiðingar þess. Þér skuluð ekki láta freistast af lokkandi tilboðum, því að stjörnurnar segja, að lítið mark sé á þeim takandi. Happa- tala yðar er 997. Ljónsmerkið. Umfram allt verið þolinmóðir, því að langur tími mun líða unz breytingar er að vænta 1 lífi yðar. Þó að þér séuð ef til vill ungir, getur ör Amors hitt yður. Þér skuluð ekki vera of gagnrýninn á bresti annarra, því að þér eruð ekkert betri sjálfir. Jómfrúarmerkið. Enda þótt þér hafið diplómatshæfileika í ríkum mæli, munu þér lenda í vandræðum og jafnvel rifrildi í þessari viku. Annars seg.ia stjörnurnar að vikan sé full af gleði og róm- antískur ljómi leikur yfir síðustu dögum hennar. Vanrækið samt ekki daglegar skyldur. VogarsJcálarmerkið. Þrátt fyrir andstöðu frá mörgum hliðum, getur svo farið, að þér náið stöðu þeirri, sem mun breyta lifnaðarháttum yðar algjörlega. Innan skammt munu þér fá góðar fréttir frá gömlum vini. Treystið á yður sjálfa og hæfileika yðar, þá getið þér búizt við að hugmynd yðar komist í framkvæmd. Sporðdrekamerkið. Þér þarfnist svolítillar uppörvunar og hana fáið þér hjá jafnöldrum yðar, en gamla fólkið mun dæma yður hart og yfirleitt megið þér búast. við harðri gagnrýni hvaðanæva. Þér skulið hætta að gera gys að ákveðinni persónu, því að það getur orðið afar hættulegt. Bogmannsmerkið. Sá taugaslappleiki og óstyrkur, sem hefur þjakað yður um langa hríð, mun læknast í þessari viku mjög óvænt, og þér getið gengið til vinnu yðar af fullum krafti. Munið að heppni er oft með í djörfum áformum. SteingeitarmerJcið. Gætið yðar á freistingunum, einkum í ástamálunum. Vik- an mun byrja mjög vel og mun vera full af gleði og óvænt- um skemmtilegum atvikum. Þér skuluð ekki láta aðra hafa of mikil áhrif á yður, heldur reyna að vera sem sjálfstæð- astur í skoðunum. Vatns b eramerkið. Þér munuð starfa mikið og vel þessa viku, enda munu þér uppskera eins og t.il var sáð. Reynið að taka ákveðna afstöðu í máli nokkru, sem þér hafið lengi verið á báðum áttum með. Veljið því það skynsamlegasta, enda þótt það verði yöur ef til vill dýrt. FisJcmerJcið. Þér eruð í erfiðri aðstöðu, en þar munu þér reyna hvað vinir yðar eru yður trúir. Að því er varðar fjármál, þá skuluð þér vera mjög varkár. Ef þér hafið stjórn á skapi yðar, mun lífið leika alls staðar við yður. Gætið yðar á áfengum drykkjum. 21. MARZ — XO. APBJi 21. APfiil - 21. MAl 22. MAl - 21. lONl 22. rom — 22. rmj 23. JOU — 23. AGOST 24. AGÚST- 23. SEPT. 24. SEPT. - 23. OKT. 24. OKT. - 22. NÓV. 23. NÓV. -- 21. DES. 22. DES. - 20. JAN. 21. JAN. — 19. FEBH. 20. FEBR. - 20. MABZ

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.