Fálkinn


Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 16

Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 16
Ég íæcídist aftur niðnr og herti upp hugann, sagði við sjáifan mig, að þetta væru ekki helgispjöll. Ég gat heyrt hjartaslög mín í þögninni... SPENNANDI SMÁSAGA EFTIR M.P.DARE Óvíða á Bretlandseyjum, nema ef til vill í Wales, hafa gömlu skírin haldið þjóðerni sínu og „sjálfstæði" á sama hátt og hin fornu konungdæmi og com- tes í Suður-Frakklandi. Enn þann dag í dag telja Provence-búar sig ekki Frakka, enda sameinaðist héraðið ekki Frakklandi fyrr en 1480. Hið sama má segja um Languedoc, hitt gamla konungsdæmið, sem liggur í hinum fagra Garonnedal, norðna Pýr- eneafjalla. Ferðamenn hafa dregizt að fornminjum héraðsins, en hin forna höf- uðborg, Toulouse, hefur þó sloppið nokk- urnveginn. Áður en lengra er haldið, verð ég að kynna sjálfan mig. Ég og vinur minn, Allan Granville, höfum verið saman frá bernsku, gengið saman í skóla og numið hin sömu fræði, sögu. Sem betur fer erum við nægilega vel efnum búnir til að sleppa við að kenna, og við gát- um keypt gamla óðalsstofu í Leicester- shire. Þar stundum við rannsóknir okk- ar, utan skarkala heimsins, og blessun- arlega lausir við afskiptasamt kvenfólk. Tveir gamlir fánaberar úr hernum þjóna okkur að öllu leyti. Þeir heita Jakob og Jóhannes, eru bræður, og þeg- ar þeir heyra ekki til köllum við þá postulana. Fyrir nokkrum árum vorum við að rannsaka sögu Albigensanna. Stríðið, sem var háð til að útrýma þessum trú- villingum, kom mjög harkalega niður á Toulouse, sem búin er að vera krist- in síðan á þriðju öld kristninnar, er heilagur Sernin boðaði þar trú. Þar eð franska er annað móðurmál mitt, var ég látinn fara til Toulouse, þegar rannsóknir okkar kröfðust þess, en áður en ég lagði af stað, fékk ég aðstoð föður Mason. Þessi ágæti, lærði prestur hefur oft hjálpað okkur út úr afkimum kirkjusögu og laga, og vinátta hans hefur smátt og smátt aukizt, svo að varla líður nú vika án þess að hann heimsæki okkur á háværu og þefillu mótorhjóli. „Saga þessa héraðs hefur ennþá lítt verið rannsökuð,“ sagði hann og framdi þau helgispjöll að hella úr tóbaksdós á máldaga frá fimmtándu öld. Gran- ville stöðvaði hann með angistarveini, rétti honum dagblað og sagði um leið, að til slíkra hluta væru dagblöðin not- hæf, en varla til annars. „Til allrar ham- ingju þekki ég mann þarna suðurfrá, sem hefur bæði getu og vilja til hjálp- ar. Hann heitir faðir Saloux og er prest- ur í litlu þorpi i nágrenni Toulouse. Ég man ekki hvað staðurinn heitir, það eru mörg ár síðan ég kom þar, en hann er velþekktur fræðimaður um allt Suð- ur-Frakkland, ef þú spyrzt fyrir á Saint- Raymond safninu munt þú eiga létt með að finna hann. Ég skal pára hon- um bréf til að kynna þig.“ Síðan tók hann að veita mér upplýs- ingar, sem ferðahandbók mín innihélt ekki (frekar en annað, sem er raun- verulega athyglisvert). „í dómkirkju St. Sernin,“ sagði hann, „er gríðarmikið safn af helgum dóm- um, þar á meðal, því miður, bein tveggja enskra dýrlinga. Þau eru þarna fyrir tilverknað Lúðvíks áttunda, sem virðist hafa verið snillingur í líkránum af þessu tagi. Annar þeirrra er heilagur Játmundur kóngur, sem leið píslarvætti af höndum Dana árið 870, hinn er heilagur Gilbert ábóti, sem grundvallaði Gilbertínarregl- una. Ég er nú búinn að gleyma nánari atvikum, en það eru spjöld við kist- urnar. Mér finnst hart, að tveir af helg- ustu dýrlingum okkar skuli vera þann- ig í útlegð. Ég hef oft velt fyrir mér, hvort ekki væri hægt að fá beinunum skiiað.“ Nokkrum dögum síðar var ég á leið til Frakklands. Ferðin var hin ömurleg- asta, unz komið var suður um mitt Frakkland, en einnig þar bar skugga a gleði mína, því að annar klefafélaga minna var einn af þessum óþolandi mönnum, sem alltaf eru að reyna að draga mann inn í samræður. Sem betur fór tókst mér að þagga niður í honum. Þegar ég loks kom til Toulouse byrj- aði ég á að koma mér fyrir í þægilegu hóteli og skoðaði síðan bæinn. Dóm- kirkjuna lét ég bíða, unz ég hafði náð fundi föður Saloux. Ég rakst að sjálfsögðu á hann morg- uninn eftir í hinu forna bókasafni. Hann reyndist mér hinn bezti, og eftir að hann hafði leyst vanda minn, fór hann að sýna mér borgina. Of langt mál væri að segja frá öllu því, sem við skoðuð- um, nema einu húsi, en saga þess varp- ar nokkru ljósi á það er síðar gerðist. Við stönzuðum í gamalli götu framan við ríkulega útskorinn inngang að húsi frá Endurreisnartímanum. „Þetta hús,“ sagði faðir Saloux, „er hvergi nefnt í leiðsögubókum, hér um slóðir gengur það undir nafninu Hús djöfulsins, og saga þess réttlætir nafnið fyllilega. Forn skjöl geta þess, að það hafi verið reist fyrir mann að nafni Amaury de Moissac, sem bjó í því til dauðadags, árið 1563. Maður þessi var ekki í tölu guðs barna. Hann var einn af þessum kjánum, sem reyndu að búa til gull, en auk þess fékkst hann við svartagaldur, og hér í nágrenninu eru enn sagðar furðusögur um atferli hans. Síðasta verk hans tók þó öðru fram, og virðist hafa orðið honum að bana. Ég hef séð samtíma frásögn af því, skrifaða af dómkirkjuprestinum í St. Sernin. Eftir skjali þessu að dæma virðist hann hafa framkvæmt uppvakningu í sjálfri grafhvelfingu dómkirkjunnar, en eins og þú munt vita, eru þar leifar margra dýrlinga. í handritinu segir, að hin opinbera rannsókn hafi leitt í ljós, að Amaury hafi reynt að vekja upp dýrlinga. Ekki veit ég hversvegna hann hefur valið sér svo erfitt viðfangsefni, nema hann hafi viljað sigrast á helgi þessara sálna. En um það fáum við aldrei neitt að vita, því næsta morgun fannst Moissac DÓMKIRKJU 16 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.