Fálkinn - 30.08.1961, Blaðsíða 21
Notið grófan hör í sterkum lit, t. d. fallega bláum, einnig er ágætt að nota ullar-
garn. Saumað með perlugarni nr. 5; hvítu, og t. d. drapplituðu til að mynda
hvíta skugga í kantinn í hring. — Ferhyrningar í mynstrinu = 1 þráður. —
Saumið fyrst flatsauminn í röndunum með hvítu, dragið síðan hvítan eða drapp-
litaðan þráð í gegn eins og mynstrið sýnir. — Gætið vel að því að sporin séu
bein og takið ekki of fast á; svo að efnið dragist ekki saman.
undir höfuð leggjast að ná honum
strax úr.
2. Reynið að gera ykkur ljóst, hvað
valdið hefur blettinum.
Dökkir blettir eru oftast fitublettir.
Harðir blettir eru oftast sykurblettir.
Mjúkir, ljósir blettir eru oft mjólk.
Aðrir blettir, eins og t. d. kaffi, te,
blek o. s. frv. eru auðþekktari.
3. Afmarkið blettinn með því að þræða
í kringum hann með tillausu þræði-
grani, sem stingur þó í stúf við efn-
ið sjálft.
4. Notið fyrst væg hreinsiefni, grípið
aðeins til þeirra sterkari, sé þess
brýn þörf.
5. Notið mjúkt undirlag, sem dregur
til sín hreinsiefnið og blettinn. ‘Berið
hreinsiefnið á með bómullarhnoðra
eða pjötlu úr sjálfu efninu. Til að
ekki marki fyrir blettinum á eftir,
er hann blettur fyrst, síðan nuddað
varlega frá miðju út að brún, svo
ekki myndist skarpar brúnir.
6. Leiki vafi á, hvað valdið hefur blett-
inum, skal ætíð byrja á því að nota
fituuppleysanleg hreinsiefni, ekki
vatn, sem festir suma bletti svo, að
nær illmögulegt er að ná þeim úr
á eftir, jafnvel þótt hin réttu hreinsi.
efni séu notuð. Leiki vafi á því, hvort
efnið þoli hið tilskylda hreinsiefni,
skal það reyrit á pjötlu fyrst eða
saum, sé ekki annað fyrir hendi.
7. Gleymið ekki að bursta flíkina vel,
áður en hún er blettahreinsuð. Laust
ryk getur valdið tjóni. Standið við
opinn glugga, þegar hreinsað er.
Sjálfsagt er að á hverju heimili séu
til hin algengustu hreinsiefni, en munið
að geyma þau velmerkt, og aldrei í
sama skáp sem matur og drykkur er
geymdur. Bezt í sérstökum, aflæstum
skáp, þar sem börn ná ekki til, þar eð
sum þeirra eru mjög eldfim og önnur
eitruð.
Helztu hreinsiefni, notkun þeirra og
eiginleikar:
Benzín: Leysir upp fitu. Mjög eldfimt.
Glyzerin: Leysir upp plöntulitarefni,
eins og t. d. súkkulaði, ávaxtalit, gras-
grænu, kaffi. te og vín.
Terpentína: Leysir upp nýja málningar-
bletti, prentsvertu, fernis. Mjög eld-
fimt.
Tetraklómlefni: Leysir upp fitu. Ekki
eldfimt, en eimurinn er eitraður, er
þyngri en andrúmsloftið, leitar því
niður á gólf.
Hreinsið blettinn áður en hann hefur
tíma til að þorna.
Oxalsýra: Leysir upp blek, ryð o. fl.
Mjög eitruð. Aðeins nothæf á hvít og
litarföst efni.
Salmíak: Notað við fitubletti og skylda
bletti á dökkum, litarföstum efnum.
Umferðarslettur eru oft erfiðar við-
ureignar.
Brintoverilte: Notað við sviðna bletti.
Ekki nothæft á lituðum efnum eða
hör, rayon, nylon, perlón og dracon.
Vínsýra: Nothæft á ullar- og silkiefni.
Leysir upp blek, grasgrænu.
Edikssýra: Notuð á svitabletti og þvag-
bletti.
Algengustu blettirnir eru:
Fitublettir. Reynandi er að ná þeim
burt með volgu kartöflumjöli, sem lát-
ið er liggja á blettinum í nokkrar klst.
Burstað vel á eftir. Endurtekið ef
þörf er á. Annars er notað benzín,
tetraklorkolefni eða blettavatn. Fari
bletturinn ekki við notkun þessara
hreinsiefna, bendir það til þess að
í honum hafi verið annað en fita. Oft
nást eftirstöðvarnar burt með því að
bursta. Arinars skal reýnt með salmí-
aki og vatní.
Mjólkur- og rjómabletti skal strax skola
úr með köldu vatni. Þegar þeir eru
orðnir þurrir, eru þeir hreinsaðir sem
fitublettir. Ath. að nota ekki heitt
vatn.
Berja- og ávaxtablettir á bómull losna, sé
þeim dyfið nokkrum sinnum í sjóð-
andi vatn. Á viðkvæmari efni er not-
að salmíak eða boraxupplausn.
Kaffi-, te- og kakaóblettir. Nýir kaffi- og
teblettir hverfa, sé þeim dyfið í sjóð-
andi vatn. Nýja kakaóbletti á að þvo
úr köldu vatni. Núið gamla bletti með
glyceríni, síðan þvegnir á venjuleg-
an hátt.
Umferðablettir, sem ekki nást burt með
því að bursta þá, eru þvegir, fyrst úr
vatni og síðan með fituuppleysanlegu
hreinsiefni.