Fálkinn - 30.08.1961, Page 10
10^
FALKINN
ekki sakar það að margt starfsfólkið
er íslenzkt og býður af sér ágætan
þokka. í afgreiðslunni eru litmyndir af
þeim stöðum, sem Loftleiðir fljúga til.
Geta fjórir afgreiðslumenn unnið þar
samtímis, og ákveðið hefur verið að
bjóða Ferðaskrifstofu ríkisins þar svæði
nokkurt til þess að hafa þar upplýsinga-
miðstöð fyrir bandaríska ferðamenn,
sem vilja fræðast um ísland og ef til
vill ferðast þangað, enda virðist nú sem
ferðamenn vestra hafi æ vaxandi áhuga
á því að kannn svo til ókunna stigu
og menn séu almennt orðnir leiðir á
því að fara alltaf til meginlands Evrópu,
vilja reyna eitthvað annað og ólíkara
þeirra eigin þjóðlífi.
Það er næstum undarlegt til þess að
hugsa, hve Loftleiðum hefur vaxið fisk-
Hin nýja söluskrifstofa Loftleiða í Rockefeller Center. í gluggum er
íslenzkt keramik og fleira íslenzkra mun.
Blátt, hvítt og rautt og fáni íslands
blaktir við hún á Rockefeller Center
í fyrsta sinni. Þetta er miðvikudaginn
12. júlí. Lesandi góður, hvað er á seyði?
Loftleiðir hafa flutt afgreiðslu sína
og skrifstofur á þennan stað, þar sem
öll stóru flugfélögin hafa skrifstofur og
afgreiðslur sínar. Hin nýja söluskrifstofa
er á götuhæð í Rockefeller Center, en
skrifstofan er á sjöttu hæð. Þarna er
allt morandi í hvers konar ferðaskrif-
stofum og umferð er þarna geysimikil.
Um fimmtán milljónir manna ganga þar
fram hjá árlega. Fyrir framan afgreiðsl-
una eru fagrir skrúðgarðar á sumrum,
þar sem fólk getur notið veitinga undir
beru lofti, en á veturna er þarna skauta-
svell og skemmta sér þar þúsundir við
þá yndælu íþrótt. En verði einhverj-
um litið við, þá fer varla hjá því, að
hann reki ekki augun í skilti, þar sem
á stendur „Loftleiðir Icelandic Airlines".
Því má til sanns vegar færa, að sá
staður sé vart til, sem heppilegri er
slíkum skrifstofum. — í glugga af-
greiðslunnar skarta íslenzkir leirmunir
frá leirmunagerðinni Glit, ank annarra
fallegra íslenzkra muna. Er inn er kom-
ið, blasa við manni mjög smekkleg hús-
gögn og okkur er tjáð, að þau séu frá
Danmörku, Finnlandi og Noregi. Á aðal-
veggnum skarta þrjár stórar myndir eft-
ir Ásgrím Jónsson. Þetta eru allt frum-
myndir, sem vöktu hina mestu athygli
gesta, og hafa Loftleiðir fullan hug á
að fá að heiman frummyndir eftir ís-
lenzka listamenn til þess að geta sýnt
allt hið bezta í íslenzkri myndlist á
hverjum tíma. Munu Loftleiðir annað
hvort kappkosta um að fá myndir keypt-
ar eða til láns, í því skyni að sýna
þær þarna og kynna íslenzka myndlist.
Söluskrifstofan er bæði nýtízkuleg og
íslenzk í senn, og er enginn vafi á því
að hún er mjög góð landkynning, og
ur um hrygg á fáeinum árum, þetta
litla félag, sem átti eina litla flugvél,
þegar það var stofnað, en nú á það
þrjár stórar „Cloudmaster“-vélar og er
í þann veginn að kaupa þá fjórðu, þegar
þetta er ritað.
Hin fjórða Cloudmaster flugvél Loft-
leiða verður búin öllum hugsanlegum
öryggistækjum og er innrétting vélar-
innra svipuð og á hinum flugvélunum.
Fyrst um sinn mun flugvélin fara ýms-
ar ákveðnar aukaferðir, sem þegar hafa
verið ráðgerðar á tímabilinu ágúst—
september. Loftleiðir kaupa þessa vél
af Pan American flugfélaginu og er
kaupverð áætlað 25 milljónir íslenzkra
króna. í sumar hafa félaginu borizt svo
mikið að farbeiðnum, að því hefur ekki
verið unnt að sinna þeim öllum, þess
vegna mun flugvélin fljúga aukaferðir,
unz öllum farbeiðnum hefur verið sinnt,
en mun þá koma inn á áætlunarferðir
félagsins. Vélin mun einnig verða not-
uð til þess að þjálfa nýjar áhafnir og
flugliða, sem þurfa að fá árlega þjálfun.
Er þessi vél kemur, munu Loftleiðir
bæta við fimm áhöfnum eða samtals
35 manns. Hjá Loftleiðum fljúga nú
eingöngu íslenzkar áhafnir, en þær verða
20, þegar hinar fimm bætast við. í flug-
liði félagsins munu því vera 140 manns.
Hinar fjórar Cloudmaster flugvélar geta
nú flutt 360 manns í einu eða 1280 far-
þega á viku og þykir mörgum það álit-
legur fjöldi. Stjórn félagsins hefur ekki
í hyggju að kaupa fleiri vélar að sinni,
þegar þessi er komin, enda þykir mörg-
um þetta nóg vera.
Hér ganga um götur 15 milljónir manna árlega. Þetta er lítið sýnishorn
af umferðinni.
ÍSLEN