Fálkinn - 30.08.1961, Qupperneq 11
ZKUR FÁNI
á (Qockefiellei1 CeHtet
Þann 12. júlí hafði stjórn Loftleiða
boð inni í hinum nýju húsakynnum fé-
lagsins í Rockefeller Center, og var þar
saman kominn mikill fjöldi fréttamanna
frá stórblöðum þar í borg, ýmsir for-
ystumenn flugmála og forstjórar ferða-
skrifstofa og annarra fyrirtækja, sem
Loftleiðir eiga skipti við. Auk þess kom
til þessa hófs Thor Thors, ambassador
íslands í Washington, og keypti hann
fyrsta farmiðann í hinni nýju söluskrif-
stofu. í hinni nýju afgreiðslu verður að-
eins farmiðasala innt af hendi, en öll
önnur þjónusta verður veitt í skrifstofu
félagsins á sjöttu hæð í sömu byggingu.
★
Ef þér eigið nokkurn tíma eftir að
koma til New York-borgar, lesandi góð-
ur, á munuð þér fljótlega reka yður á
það, að íbúar þeirrar borgar eru ef til
vill öðruvísi í hátt en þér eigið að venj-
ast. Setjum svo, að þér standið ráðvilltir
á götuhorni og vitið ekki hvert halda
skal og reynið því að spyrjast til vegar.
Þér spyrjið lögregluþjón og hann svar-
ar: „Go straight away and turn left
(Haldið beint áfram, snúið til vinstri)“.
Því að umfram allt vill hann að ekkert
slys hendi yður á sínu umsjónarsvæði,
heldur vísar yður yfir í annað. Og enn
spyrjist þér til vegar og ókurteis veg-
farandi verður fyrir svörum: „Please,
shut up, I am in hurry.“ (Vilduð þér
gera svo vel að þegja, ég er að flýta
mér). Englendingur varð eitt sinn fyrir
þessu sama og þér núna. Síðar, er hann
kom heim, lýsti hann borginni eftir-
minnilega, enda hefur augsýnilega margt
borið fyrir augu hans, þó er hann ekki
eins harðorður um Ameríku og landi
hans Oscar Wilde, sem sagði, nýkom-
inn úr Ameríkuför: „íslendingar voru
gáfaðir, þeir fundu Ameríku, en gættu
þess vel að þegja yfir því.“ En fyrrnefnd-
ur Englendingur lýsti New York borg
með aðeins þremur orðum: „Hraði, pen-
ingar, glæpir.“ Lengra náði lýsing hans
ekki, en ef til vill er hún nógu ýtar-
leg. I New York borg eru allir að flýta
sér, menn eru í stöðugu kapphlaupi við
tímann, en hafa sjaldan betur. Og menn,
sem kunna að, flýta sér, flýta sér hægt.
Ef svo ber við, að menn þessir þurfi
að bregða sér út yfir pollinn, þennan
mikla og víðáttumikla poll, Atlantshaf-
ið, þá hugsa þeir með sér að kapphlaup
við tímann sé tilgangslaust í sjálfu sér
og taka sér far með Loftleiðum yfir
djúpa Atlantsála og með því spara þeir
sér líka fé. Peningar eru mikils virði
í New York og Loftleiðir er þekkt að
því að hafa ódýrustu fargjöldin yfir
þessa flugleið og veitir auk þess ágæta
þjónustu.
Dagur er að kveldi kominn. Þetta er
miðvikudagurinn 12. júlí. Senn er sólar-
lag, fánar margra landa blakta enn við
hún, en nú er verið að draga þá niður
hvern af öðrum, þar á meðal íslenzka
fánann, sem blakti þarna á Rockefeller
Center í fyrsta sinni. Brátt er rökkrið
fallið á og borgin ljómar öll af marg-
víslegum neonljósaskiltum í öllum regn-
bogans litum.
Stjórn Loftleiða í hinni nýju
skrifstofu.
Thor Thors ambassador kaupir fyrsta farmiðann í hinni
nýju skrifstofu.
Svipmynd af skrifstofunni að innan. Á veggjum
eru myndir af stöðum þeim, sem félagið flýgur til,
v.