Fálkinn


Fálkinn - 30.08.1961, Page 31

Fálkinn - 30.08.1961, Page 31
Dans í dómkirkju - Frh. af bls. 17. aði í þúsund mola, og glerbrotin skáru mig illilega í andlitið. Ég varð lamað- ur af skelfingu, því að hin forna flík var vafin um andlit mér, margra alda gömul ólykt var að kæfa mig. Með ör- væntingarafli tókst mér að slaga á fæt- ur og slíta mig rausan af flíkinni. Hún leið í loftinu fyrir ofan mig, smám sam- an bólgnaði hún út og mátti sjá manns- mynd í henni. Kistan, sem hið dularfulla afl hafði kastað mér frá, var böðuð rauðleitum bjarma. Lokið lá hjá henni, og upp úr henni var einhver vera að rísa með hryllilegu skrölti, bein fyrir bein. And- rúmsloftið var orðið þykkt af hinni ó- geðslegu lykt af svínsblóði og rotnandi mannsholdi, rauði bjarminn óx og lýsti hvelfinguna. Skríðandi, hægfara fótatak beindi at- hygli minni eitt andartak frá óvininum yfir höfði mér að þrepunum. Hrollur fór um mig, er ég sá hempu St. Pierre de Vérome koma í átt til mín, og hún klæddi skelfilega veru, skrípi úr rotnandi mannsholdi, sem bein- in stóðu út úr. Ég gat ekki æpt. Ég skreið undir bekkinn, en ískaldur stormur velti mér á bakið, og rétt við andlit mér heyrð- ist grimmdarlegur hlátur, serh kom frá tveim röðum af lausum tönnum, svört- um og skemmdum, sem svifu yfir hrygg- súlu. Mér fannst ég geta séð miðana hanga við beinin: „Tennur heilags Eutrops. Hryggjarliðir heilagrar Jóhönnu af Tou- louse.“ Hægt og hægt bættust fleiri ógn- vekjandi verur úr dauðraríkinu við. Bein Játmundar skröltu inn í hina dans- andi skikkju heilags Dominikusar. Ó- samstæð beinagrind safnaðist saman úr leifum Jóhönnu, Raymonds, Hippolytus- ar og fleiri dýrlinga. Lokið á skríni St. Gilberts flaug upp á gátt og enn ein skopstæling á manns- mynd reis úr henni. Leifar Jóhönnu og Eutrops snerust í rauðleitum bjarma, unz bein þeirra voru þakin mynd naktr- ar konu, sem virtist lostafögur, þangað til maður sá maðkana, sem féllu úr munni hennar og skriðu um á brjóst- unum. Hún þokaðist nær, og af henni lagði ólýsanlegan óþef. Þá hófst hin æg'ilegasta tónlist, sem nokkurn tíma hefur glumið í mannleg- um eyrum, tónlist samin af djöflinum sjálfum, sem aðeins er mögulegt að leika með beinfingrum hinna fordæmdu á fiðlustrengi úr mannagörnum. Þessi hræðilega samkoma í presta- klæðunum hóf nú að dansa. Einhverjir tveir kipptu mér á fætur og drógu mig inn í hringinn. Tónarnir urðu stöðugt tryllingslegri, stundum seiðandi, stund- um afskræmdir sálmar. Þegar dansinn náði hámarki, tóku glottandi hausarnir að syngja Te Deum Laudamus við dans- lag frá miðöldum, en beinagrindurnar börðu sér á rif með framhandleggjum eftir hljóðfallinu. Við dönsuðum hring eftir hring. Hið síðasta, sem ég man, er að ég barðist við að losna úr úldnum greipum Ját- mundar og viðbjóðslegum krumlum St. Gilberts. Loks rak ég upp hræðilegt öskur og sló af alefli í rotnandi glottið á Jóhönnu-Eutrop, er það hringsólaði að mér til að gefa mér hinn óaftur- kallanlega koss helvítis. Ég missti með- vitund .... Kæri Astró. Ég les alltaf þætti þína og hef mikið gaman af. Nú lang- ar mig til að skyggnast inn í framtíðina og þess vegna skrifa ég þér í þeirri von að þú sendir svar. (Fæðingardag og fæðingarstað er sleppt hér samkv. beiðni bréfritara). Ég missti móður mína, þegar ég var fjögurra ára og ólst upp hjá vandalausum og átti engri ástúð að mæta. Fór í ourtu átján ára. Kynntist frænda mínum, sem er fæddur 4. september 1915 og giftum við okkur 12. október 1940. Átt- um einn dreng. Við bjuggum saman þrjú ár, áttum vel sam- an og gott samkomulag á milli okkar, en allt í einu kynntist hann annari. konu, sem var gift svo víð skildum þarna tvenn hjón í einu. Drengnum hélt ég og hefur hann verið mitt yndi og eftirlæti enda ég vafið hann allri þeirri ástúð, sem ég á til, og hann í alla staði vel lukkaður. Nokkrum árum síðar kynntist ég öðrum manni, og bjuggum við saman tvö ár ógift en eignuðumst ekkert barn. Skildum síðan sakir óreglu hans. Síðan hef ég verið ein með drengnum. Hef ekki lagt út á þá hálu braut að giftast aftur þó það hafi staðið mér til boða. Ég er frekar kaldlynd að minnsta kosti við fyrstu kynni, enda mótaðist ég þannig í uppvext- inum. Er nokkur breyting sér- stök í vændum? Mun ég ekki búa við frekar lítil efni áfram eins og hingað til? Vinsamleg- ast birtið ekki fæðingardag og ár eða staði og helzt ekki nema það sem þurfa þykir. Svo bíð ég með óþreyju eftir svari. Með vinsemd, Þín „Daladís“. Svar til Daladísar. Um árið 1943 áttu sér stað geysi örlagaríkar afstöður hjá fyrrverandi eiginmanni þín- um. Þessar afstöður urðu ein megin orsök skilnaðar ykkar. Þegar þið kynntuzt og fellduð hugi saman var margt mjög hagstætt góðu samkomulagi ykkar á milli. Síðar þegar af- stöðurnar breyttust hlaut vá að vera fyrir dyrum. Þér láðist að geta þess að þú lentir í nokkuð skemmti- legu ástarævintýri, þegar þú varst 38 ára að aldri. Samt var hætt við að það samband hefði einnig endað á sama hátt og hin tvö, sem þú minntist á í bréfi þínu. Það er nú svo með mörg okkar, að við höfum ekki gæfu til að bera við hitt og þetta. Þar með talið hjóna- bönd. Þú varst vissulega ekki fædd undir sérlega gæfuleg- um afstöðum, eins og líf þitt hefur leitt í ljós. Ef til vill gæturðu gert mjög mikið í að bæta gang lífsins hjá þér með því að venja þig af kuldalegri framkomu, sem öllum fer illa. Það er til ákaflega einfalt og nytsamt boðorð úr Biblíunni viðvíkjandi hegðun, „Breyttu við náungann, eins og þú vilt að breytt sé við þig“. í þessari setningu felst ein af undir- stöðum velgenginnar. Þú hefð- ir einnig mátt temja þér meira glaðlyndi heldur en raun ber vitni um. Tilvera þín hefur byggzt mikið á alvörugefnu draumlyndi, sem auðvitað er gott út af fyrir sig, ef það gengur ekki út í þunglyndis- köst. Hér eru upptaldir helztu ágallar í fari þínu. Þér ber að vinna á móti þeim. Þú þarft að temja þér að sjá birtu og fegurð í hinu fábreytilega um- hverfi. Það eru svo merkilega margir, sem halda að sálræn hamingja og öryggi sé fólgin í gnótt eigna, lausafjár og fasta- fjár. Þetta er regin misskiln- ingur. Það vita flestir, sem i slíkar aðstæður komast og þetta vita einnig allir, sem við sálrænar rannsóknir fást. Hér er auðvitað undanskilin lík- amlegur skortur, eins og t. d. hungur, klæðleysi og húsa- skjól. Hin sanna lífshamingja er að finna fegurðina og kær- leikann í öllu, jafnt stóru sem smáu. Það er ágætt ráð að setj- ast niður nokkrar mínútur á dag og hugleiða betri viðburði dagsins og lífsins og njóta þeirra. Öllu sem manni er hvimleitt eðabrýturá einn eða annan hátt í bága við siðferðis. kennd manns ætti maður alls ekki að hugsa um. Gleyma hinu slæma en minnast hins fagra og hamingjuríka í lífinu. FALKINin 31

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.