Fálkinn


Fálkinn - 26.12.1962, Síða 19

Fálkinn - 26.12.1962, Síða 19
Það er gamall siður að stíga á stokk og strengja heit — ætla sér mikið á komandi ári. En það er nú svo með þessi heit að þau eru oft gleymd hinn næsta dag — enda gerð í sæluvímu hins líðandi augnabliks. Einu sinni steig maður á stokk og strengdi þess heit að aldrei skyldi hann giftast nokk- urri konu. Næst þegar hann kvaddi ár var hann giftur, skilinn — og giftur aftur. -á Þetta ár sem nú er að líða hefur verið okkur íslendingum að mörgu leyti gott ár. Mikið hefur fiskast en heyleysi hrjáði bændur. Eitt hótel höf- um við eignast. Er það bændahótelið Saga og hefði það þótt góð lygasaga fyrir nokkrum árum að bændur mundu eiga eftir að eignast Söguhótel í Reykja- vík. En þetta virðist ganga eins og í sögu. Ekki er fráleitt að minnast á íþróttir en sjaldan hafa þær staðið með meiri blóma en þetta ár. í knattspyrnu tókst okkur að sögn sérfræðinga að vinna stórsigur á írum þegar þeir unnu okkur 4:2. Verður að gera þá kröfu til forráða- manna knattspyrnunnar að þeir sam- kvæmt þessum nýju reglum fari yfir fyrri landsleiki íslands því vera má að þeir leikir sem áður voru taldir tapaðir séu unnir. Þá sendum við keppendur á Evrópumeistaramótið í frjálsum íþróttum og komst sá er mest talar um íþróttir svo að orði um þetta mót í út- varpinu: íslendingar hlutu að þessu sinni aðeins eitt stig á móti þessu og eiga þeir það Vilhjálmi Einarssyni að þakka. Þá hóf nýtt dagblað göngu sína með miklum myndarskap en varð ekki að sama skapi langlíft. Prentarar urðu skelfingu gripnir og óttuðust að nú þyrftu þeir að vinna, gerðu verkfall og drápu blaðið. Þá var stofnuð ný bóka- útgáfa sem hefur það takmark að geð- bæta alla landsmenn og stendur að henni merkur pamfíll. Er vonandi að örlög hennar verði önnur en áðurnefnds blaðs. Landsmót héldu hestamenn að Þingvöllum og mættu þar margir hesta menn fullir af áhuga og þótt einstaka maður hafi kannske setið nokkuð aftar- lega á merinni verður að telja að þetta mót hafi heppnast vel. Þá kom fram ný íþrótt er nefnist Limbó og er eink- um fólgin að komast sem lengst niður á við og er ekki að efa að þetta á eftir að verða þjóðaríþrótt hérlendis. Rétt er að geta merks atburðar er kona — and- Ég vissi alltaf, að svona mundi fara. — Súptu á aftur Siggi minn! fætlingur okkar —• skoraði mætan mann á hólm. Hefur þessi hólmganga ekki enn farið fram né tilhögun ákveðin svo og með hvaða vopnum skuli barizt. Við gerum þá tillögu í þessu máli að vopn verði látin liggja milli hluta en í þess stað þreyti hlutaðeigendur kappdrykkju að fornum sið. Þá var kvikmynduð skáldsagan „79 af stöðinni“ og voru menn ekki á eitt sáttir um ágæti þess- arar myndar. Sögðu sumir að myndin næði ekki að vera nema svona 70 til 71 af stöðinni. Strandferðaskipin hafa aldrei staðið betur undir nafni en þetta ár. Andatrú var mikið rædd á árinu og er ekki séð fyrir endann á þeim um- ræðum ennþá. Eru á sveimi margir and- ar og sumir illir og erfiðir viðureignar. FALKINN 19

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.