Fálkinn - 03.07.1963, Side 4
séð & heyrt
Japanir láta ekki að sér hæða. Þeir kunna að selja sína vöru,
það verður ekki af þeim skafið. Nýlega fann baðfataframleiðandi
upp á því að sýna framleiðslu sína í járnbrautarlest. Og auðvitað
voru það þokkadísir, sem sýndu fatnaðinn. Sagt er að farþegun-
um hafi þótt ferðin skömm, enda þótt leiðin hefði verið löng.
ÆSKAN.
Lögfræðingur nokkur sat niðursokkinn í skjöl sín og heyrði því
ekki, þegar dyrnar voru opnaðar hægt og inn gekk feiminn, ungur
drengur. Andlit hans var allt vott af tárum.
— Hvað var það fyrir þig, ungi maður?
— Ertu lögfræðingur?
— Já, hvað viltu mér, ungi maður?
— Ég vil — — fá skilnað frá pabba og mömmu.
FEÐURNIR.
Egypskur málari, Ibrahim Madi að nafni, kom á lögreglustöð-
ina í þorpi sínu og bað um að vera handtekinn.
— Konan min er að fæða áttunda barnið, sagði hann, og ef það
verður stúlka, er ég hræddur um að ég berji hana.
Konan hans bjargaði lífinu. Hún fæddi þríbura, og það voru allt
drengir.
Þessar buxur, sem ballerinan er í, kallar leikhúsfólk, sparibuxur.
Unga stúlkan á myndinni er annars frá Suður-Afríku og valin til
þess að vera dansfélagi hins rússneska, Rudolf Nureyev, en flúði
land fyrir nokkru og dansar eins og kunnugt er við Konunglega
Ballettinn í Lundúnum. Prima ballerinan heitir annars, Vyvyan
Lorrayne.
Winston ChurchilL var
eitt sinn spurður að því
hvaða hæfileika stjórn-
málamaður þyrfti að hafa.
Churchill svaraði:
— Hann verður að sjá
fyrir, hvað gerast muni
á morgun, næsta mánuð
og næsta ár, — og að
þeim tíma liðnúm, verð-
ur hann að útskýra,
hvers vegna það gerðist
ekki.
★
Victor Hugo hitti Alexander Dumas á götu.
Hugo var öskuvondur. Hann hélt á dagblaði.
— Þessi blaðamaður hér heldur því fram,
að Vigny hafi fundið upp hið sögulega drama.
— En það fífl, hrópaði Dumas, það veit
það hver sála, að það var ég.
Alfred Hitchcock
kom einhverju sinni
til Parísar. Toll-
þjónninn sem gætti
að hvort vegabréf
farþeganna, sem
komu með flugvél-
unum væru í lagi,
tók eftir því að í
passa Hitchcock var
hann titlaður fram-
leiðandi.
— Hvað er það, sem þér framleiðið?
— Gæsahúð, svaraði Hitchcock.
★
Ungur nemandi spurði Sókrates um skoð-
un hans á hjónabandinu.
—- Þú ættir að kvænast, svaraði Sókrates;
ef þú færð góða konu verðurðu hamingju-
samur í lífinu, — en ef þú eignast slæma
konu, færðu tækifæri til þess að verða heim-
spekingur.
Eiginkona Sókratesar heyrði þetta svar
hans og varð öskuvond. Hún stóð þá einmitt
við gluggann og ætlaði að hella út skólp-
vatni. En í reiði sinni skvetti hún því á
Sókrates.
En Sókrates lét það ekki á sig fá og sagði:
— Ég vissi það fyrir — eftir þrumuveð-
ur kemur ætíð regn.
★
Otto Borchsenius hefur sagt frá því, að
Holger Drachmann kvartaði stundum undan
hve reikningarnir frá skraddaranum væru
háir. En Drachmann var óvenju hár vexti.
Þegar Drachmann átti skáldafmæli, sendu
klæðskerarnir Carl & Martin Larsen honum
svohljóðandi hamingjuósk:
— Óskum yður innilega til hamingju. Við
vitum bezt, hve stór þér eruð.
4
FALKINN