Fálkinn


Fálkinn - 20.01.1964, Blaðsíða 26

Fálkinn - 20.01.1964, Blaðsíða 26
hamingju mína, ef liann hcfði ekki alltaf verið svo liögull og næstum fráhrind- andi í allri framkomu í hvert skipti, sem ég reyndi að kynnast högum hans nán- ar. Svo sagðist hann þurfa að fara burt í nokkra daga„ en ein vinkona mín fullyrti, að hún hefði einmitt þá séð hann á gangi í Bond Street, með annarri konu. Þegar hann svo hringdi aftur í mig, var ég ringluð og reið og heimtaði að fá að vita, hvar hann hefði haldið sig. — Annars er bezt, að við hitt- umst aldrei aftur, sagði ég. — Úr því það er svo mikils virði fyrir þig, skaltu svo sannarlega fá að vita það, líka! svaraði hann hryssings- lega..... Svo tók hann bílinn snöggt af stað og við ókum af stað í átt til Lundúna. Ætlaði hann að aka mér heim, þrátt fyrir allt? Nei, við ókum bara í gegnum borgina og þutum áfram í átt til Guildford, en ég þorði ekki að spyrja hvers vegna. Mér fannst hann aka mjög hratt, en hann ók samt alls ekki ógætilega, þótt hann notaði hvert tækifæri, sem byðist, til þess að aka fram úr öðrum bíl- um. Skömmu eftir að við komum til Guildford, beygðum við inn á hliðargötu, sem hlykkjaðist eftir landssvæði, sem var mér með öllu ókunnugt. Við héldum sama hraða, svo það var ber- sýnilegt, að hann var vel kunn- ugur og vanur að aka þessa leið. Skyndilega stanzaði hann snögglega fyrir framan stórt járnhlið, er var í girðingu um- hverfis stóran garð. Ekkert -hús var sjáanlegt frá þeim stað, er Það sem á undan er komið: Ég fékk martröð, og vakn- aði við það að ég æpti. Er ég opnaði augun stóð Paul, maðurinn minn, yfir mér, og þá vissi ég, að martröðin var sönn. Johnny hafði verið myrtur. Sá, sem ég elskaði, var dáinn. Ég mundi þetta allt saman nú. Kveðjubréfið, sem ég liafði skrifað Paul. Bréf, sem gat varla komið honum á óvart. Iljónaband okkar hafði Iengi ekki verið neitt raunverulegt hjóna- band. Paul var málfærslu- maður. Frægur, alltaf upp- tekinn. Áður en ég giftist honum hafði ég þráð ást, umhyggju og hamingju, en við höfðum ekki getað veitt hvort öðru mikið af þeim hlutum. Svo hitti ég Johnny og fannst líf mitt aftur fá tilgang. Ég ætlaði að yfir- gefa Paul, til þess að geta eytt því, sem eftir var ævi minnar, með Johnny. Er ég var á leið til hans stöðvaði Paul mig, og sagði mér, hvað hefði gerzt á „Akur- lendunum þremur“. Eftir það veit ég ekki almenni- lega, hvað gerðist, en Paul hlýtur að hafa komið mér heim aftur og í rúmið. Er ég kom aftur til sjálfrar mín bað ég hann um að fara inn til sín, og lá síðan Iengi og hugsandi um Johnny og okkar fyrstu kynni, þegar hann hjálpaði mér að skipta Um sprungið dekk á bílnum mínum á veginum til Lund- úna. Ég var að koma úr einni af þessum venjulegu heimsóknum til tengdamóð- ur minnar, sem bjó skammt frá Bournemouth. Mér datt alls ekki annað í hug, en það væri hrein tilviljun, að Jolinny ók þarna um. Þegar ég hitti hann aftur þrem vik- um síðar var það einnig af hreinni tilviljun og síðan fannst mér líða næstum því heil eilífð, unz hann. loks hringdi í mig. Síðan hitt- umst við reglulega, og ég held að ekkert hefði skort á hann lagði bílnum. Ég gerði mig líklega til þess að fara út úr bílnum með honum, en hann gaf mér þegjandi til kynna með svipbrigðum einum saman, að .það skyldi ég ekki gera. Síðan bað hann mig um að bíða eftir sér í bílnum, Svo gekk hann hröðum skrefum inn um hliðið. Eftir um það bil stundar- fjórðungs bið sá ég hann aftur í garðinum, en nú var hann ekki einn. Hann leiddi litla stúlku í blárri kápu, og ég. sá strax, að eitthvað var að herini, því hreyfingar hennar voru all- ar svo undarlegar. Ég sá samt ekki fyrr en þau voru komin alveg að bílnum, að .stúlkan var fáviti. Samt var hún falleg, með 26 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.