Fálkinn


Fálkinn - 20.01.1964, Blaðsíða 27

Fálkinn - 20.01.1964, Blaðsíða 27
langt, Ijóst hár og fíngert lítið andlit, en hún hafði enga stjórn á hnakkavöðvunum og því rið- aði höfuð hennar allan tímann. Munnur hennar var hálfopinn og bláu augun störðu meining- arlaust út í loftið. Á hægra gagnauga hennar var dökkrautt langt ör, sem náði alveg upp í hársvörðinn. Mér fannst allar aðstæður hræðilega ömurlegar, og hjarta mitt var næstum brostið, er ég sá, hversu ástúðlega Johnny horfði á litlu stúlkuna. — Johnny, hvíslaði ég. — Reyndu að fyrirgefa mér .... en ég vissi alls ekki að.. Hann virtist alls ekki heyra til mín. Hann bara þurrkaði umhyggjusamlega burtu slef- una, sem hafði runnið úr munni hennar. Allt í einu rétti hann úr sér og gamli hörkusvipurinn var aftur kominn í augu hans, er hann leit á mig og sagði: — Þetta er Melissa. En þar eð ég horfði á hann hjálparvana, hélt hann áfram: Ég dró að mér andann og ætlaði að bera fram við hann spurningu, en lét ekki verða af því. Það átti ekki við að spyrja hann nánar um stúlkuna meðan hún sat þarna á milli okkar. — Hvað ætlaðir þú að fara að segja? Ég sagði þér væri óhætt að segja hvað sem væri, því hún ber ekki skynbragð á neitt. Hún þekkir ekki einu sinni hjúkrunarkonuna sína. — Hefur hún .... hefur hún alltaf verið svona? spurði ég með hálfum huga. — Nei, hún var alveg eðlileg þar til hún varð tveggja ára. Þar sem hann gaf ekki nán- ari skýringu, hélt ég áfram: — Og þá kom semsagt eitt- hvað fyrir .... þegar hún var tveggja ára gömul? — Já, þú átt kollgátuna og það var eingöngu mín sök. — En Johnny þó. — Já, og svo? Röddin var þrungin beiskju. Mér rann til rifja að sjá hann. Hann hélt á- fram: — Þú hefur einmitt verið að skaddaðist á heilanum og það er engin von til þess að lækna hana. Nú er hún átta ára göm- ul og verður hjálparvana og ósjálfstæð alla ævi. Hún verð- ur aldrei fær um að klæða sig, borða sjálf og getur ekki lært að tala og hún skilur ekkert af því sem við hana er sagt. .... — Á hún heima þarna sem við vorum, spurði ég, er það einhverskonar dvalarhæli? — Það er hæli fyrir — fyrir börn eins og hana, sagði hann, opnaði bíldyrnar og gekk út. Hann kom aftur með stóran ís- köngul og fór að mata Melissu þegar hann hafði bundið fram- an á hana vasaklútinn sinn. Hún smjattaði af ánægju og ranghvolfdi augunum. Ég kenndi ósegjanlega í brjósti um barnið — og John- ny og þegar við höfðum ekið henni aftur til hælisins, gat ég ekki setið á mér að spyrja hann hvort hún væri dóttir hans. — Já, svaraði hann beisk- lega, — Melissa er dóttir mín. — En .... móðir hennar? — Vertu góður og segðu mér allt af létta. Úr því þú ert á annað borð farinn að segja mér undan og ofan því. Þegar hann hafði dregið djúpt andann eins og hann hefði tekið mikilvæga ákvörð- un, sagði hann: — Jæja, þú skalt fá að heyra alla söguna. Og eftir andar- taks hlé hélt hann áfram: — Við höfðum verið gift i þrjú ár, lifðum í hamingju- sömu hjónabandi, a. m. k. vissi ég ekki betur. Melissa var nýlega orðin tveggja ára. Ég hafði ekki haft minnsta grun um að Kathy hélt framhjá mér, Ég komst ekki að raun um það fyrr en eftir að hún dó. Pabbi hennar hafði gefið henni bíl og hún var að búa sig undir öku- próf. Ég vissi ekki um slysið fyrr en Kathy hringdi og það eina sem ég skildi var nafnið á staðnum þar sem slysið hafði orðið og ég yrði að flýta mér á vettvang. Auk þess varð ég að segja lögreglunni að ég hefði setið við stýrið....Lögreglan V. hluti Eftir Margaret Lynn — Þú getur sagt hvað sem þú vilt. Hún skilur ekkert hvort eð er. — Æ, Johnny, ég........Hann greip fram í fyrir mér og sagði: — Ertu þá ánægð? Þú vildir endilega vita hvar ég hefði ■ verið og ég var sem sagt með Melissu. — En ég gat þó ekki vitað ...., byrjaði ég á ný. Hann starði bara á mig og virtist þreyttur. Svo hristi hann höfuðið og sagði; — Hafðu auga með henni í bílnum, vertu svo væn. Við skulum fara á næsta kaffihús og kaupa handa henni ís. Henni þykir ís svo fjarska góð- Ur og þar sem flest annað er fyrir ofan hennar skilning..... kvarta undan því að vita ekkert um mig. Nú veiztu þó ýmislegt .... en það var ef til vill eins gott að vita ekki neitt. — En .... en hvað var það sem gerðist . .. . ? Ég kinkaði kolli spyrjandi til Melissu. Hann hafði einmitt stöðvað bílinn fyrir framan kaffihús, en sýndi ekki lit á því að fara út að kaupa ís. Hann starði á Melissu, dimmur á svip. Hún hafði tekið eftir hvíta húnin- um á gírstönginni og bar sig að því að reyna að ná taki á honum. Johnny tók í höndina á henni og færði hana að húninum. — Það skiptir engu máli lengur hvað ég gerði, sagði hann og andvarpaði. — Hún — Móðir hennar er dáin, svaraði hann af sömu hörk- unni. —v— Það var greinilegt að honum leið illa. Hnúarnir hvítnuðu af því hann hélt svo föstu taki um stýrið og ég lagði aðra höndina á handlegg hans. — Segðu mér hvað gerðist. Segðu mér allt. Það hlýtur að vera ímyndun og sjálfsásökun að halda því fram að þetta sé þér að kenna, hvernig Melissa er..... — Jæja, þú heldur það. Þó sat ég inni í fimm ár. Það var engu líkara en hjart- að hætti að slá í brjósti mér og ég gat ekki stunið upp orði. Fimm ára fangeisi...... var þó komin ásamt sjúkrabíl á staðinn þegar mig bar að, en það var skuggsýnt og auk þess allt á ringulreið svo enginn tók maður hennar hafði látið lífið í árekstri við annan bíl og þeir voru einmitt að bera konu úr þeim bíl yfir í sjúkrabílinn. Hún hafði meðvitund og þegar hún kom auga á mig, stundi hún því upp að þarna væri mað- ui’inn sem hefði ekið bílnum. — Þetta væri honum að kenna. Ég sá hann hlaupast á brott. .... Síðan missti liún meðvit- und. Ég taldi í fyrstu að hún hefði fengið taugaáfall og vissi ekki hvað hún var að segja. Eigin- maður hennar hafði láti lífið í Framhald á bls. 39. FÁLKINN 27

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.