Fálkinn - 20.01.1964, Síða 29
KVIKMYNDA
ÞÁTTUR
HAFIVARBTO SVAIIS
í hópi beztu kvikmyndaleikkvenna Bandaríkjanna. Séi>
staka athygli vakti leikur hennar í myndinni „Ég græt
að morgni“, sem sýnd var í Gamla Bíó fyrir nokkrum
árum. Árið 1959 fékk hún Oscars-verðlaunin fyrir leik
sinn í myndinni, I Want To Live.
Paul Saxol er leikinn af John Gavin. Vegur Gavin
hefur farið ört vaxandi seinni árin og nýtur hann nú
mikils álits sem góður kvikmyndaleikari. Af myndum,
sem Gavin hefur leikið í má nefna, A Time To Love
and A Time To Die, A Breath of Scandal, Spartacus,
og mynd Hitchocks Psycho, sem sýnd var í fyrra í
Háskólabíó.
Af öðrum leikurum má nefna, Vera Miles, Virginia
Grey og Charles Drakc.
Innan skamms mun Hafnarbio taka til syn-
ingar bandarísku myndina Back Street, sem
byggð er á samnefndri skáldsögu Fannie
Hurst. Bækur Fannie Hurst hafa notið mikilla
vinsælda og Hafnarbíó hefur áður sýnt mynd,
sem byggð var á einni sögu hennar.
Söguþráðurinn, sem er spennandi og við-
burðaríkur verður að venju ekki rakinn hér.
Þessi mynd er framleidd af Universal og
er David Miller leikstjóri. Þetta er litmynd
og sýningartíminn rúmlega 100 mínútur.
Aðalhlutverkið Rae Smith er leikið af
Susan Hayward. Það mun óþarfi að kynna
Susan, en allt síðan 1938 hefur hún verið
FÁLKINN 29